Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Síða 6
6 Fréttir 30. desember 2011 Áramótablað
Milljarða afskriftir Péturs
n Félagið Höfðaborg keypti hlutabréf í Glitni 2008
H
öfðaborg ehf., eignarhalds-
félag í eigu Péturs Guðmunds-
sonar, eiganda verktakafyrir-
tækisins Eyktar, skilur eftir
sig 3,5 milljarða króna skuldir sem
ekkert fæst upp í. Þetta kemur fram
í auglýsingu um skiptalok félagsins
sem birt er í Lögbirtingablaðinu.
Félagið keypti hlutabréf í Glitni
af móðurfélagi sínu, Holtaseli ehf.,
árið 2008 og skuldsetning þess til-
komin vegna þessa. Um þetta segir í
ársreikningi félagsins fyrir árið 2009:
„Höfðaborg ehf. var stofnað á árinu
2006, en eiginleg starfsemi hófst í
félaginu á árinu 2008 þegar félagið
keypti hlutabréf í Glitni banka hf.
og aðra fjármálagerninga af móður-
félagi sínu Holtaseli ehf. sem töpuð-
ust að stórum hluta í hruninu 2008.
Stjórnendur félagsins eru í sam-
vinnu við viðskiptabanka félagsins
að vinna að lausnum fyrir félagið.
Ef ekki kemur til eftirgjafar skulda af
hálfu viðskiptabanka er rekstrarhæfi
félagsins brostið.“
Holtasel var einnig eigandi Eyktar
og eignarhaldsfélagsins Höfðatorgs
sem stofnað var utan um nýbygg-
ingu í Borgartúni sem ber sama nafn.
Höfðatorg skuldaði 23 millj-
arða króna í lok síð-
asta árs
og hefur Íslandsbanki yfirtekið fé-
lagið að mestu. Tapið af hlutabréfun-
um í Glitni og 3,5 milljarða afskrift-
irnar lenda því á Höfðaborg en ekki
Holtaseli, fyrrverandi móðurfélagi
Eyktar og Höfðatorgs, þar sem hluta-
bréfin og skuldirnar vegna þeirra
voru færðar yfir í Höfðaborg af ein-
hverjum ástæðum árið 2008.
ingi@dv.is
Keypti af Holtaseli Höfðaborg keypti
hlutabréf í Glitni af móðurfélagi sínu
Holtaseli árið 2008. Félögin
eru í eigu Péturs
Guðmunds-
sonar, eiganda
Eyktar.
Útgáfa DV
Ekkert blað kemur út á mánudag-
inn en næsta tölublað DV kemur út
miðvikudaginn 4. janúar. Fréttavakt
verður hins vegar á DV.is yfir áramót-
in eins og alla aðra daga. Ritstjórn
DV óskar landsmönnum nær og fjær
velfarnaðar á komandi ári með þökk
fyrir árið sem er að líða.
Fólki gekk misvel í snjónum
Ofurölvi í
snjóskafli
Um hálf tvöleytið á fimmtudag
skullu tveir strætisvagnar saman
á Laugavegi með þeim afleiðing-
um að flytja þurfti farþega úr öðr-
um þeirra á slysadeild til aðhlynn-
ingar. Nokkru síðar fór bíll út af
Vesturlandsvegi, nærri Leirvogsá,
og valt. Tvær konur voru í bíln-
um en talið er að þær hafi sloppið
ómeiddar. Þrátt fyrir að ótal öku-
menn hafi fest bíla sína og lent í
vandræðum vegna færðarinnar
segir lögreglan að umferðin hafi
gengið bærilega. Flestir aki í sam-
ræmi við aðstæður.
Gangandi vegfarendur geta einn-
ig átt erfitt með að komast leiðar
sinnar. Tveir menn lentu í tals-
verðum hrakningum. Annar
þeirra fannst í snjóskafli í einu af
úthverfum borgarinnar. Sá var í
mjög annarlegu ástandi og fékk
að hvíla sig í fangageymslu lög-
reglunnar þar til hann var orð-
inn ferðafær. Hinn var líka illa
á sig kominn og átti erfitt með
að standa í fæturna sökum ölv-
unar. Viðkomandi, sem var jafn-
framt ekki klæddur til útiveru, var
ósáttur við afskipti lögreglu og var
tekinn með valdi og færður í lög-
reglubílinn. Eftir stutta stund náði
maðurinn áttum og var honum
síðan ekið til síns heima en þar
skildi hann við lögregluna og var
bara sæmilega sáttur við hennar
störf.
Loks stöðvaði lögreglan fólk sem
ætlaði að róa út í Viðey á miðviku-
dagskvöldið – í slæmu veðri. Þess
má geta að fólkið, sem var allsgáð,
var ekki í björgunarvestum.
n Rúmlega 7,5 milljarða skuldir í tveimur eignarhaldsfélögum n Fjárfestingarfélagið
Sund keypti bílaumboð fyrir metfé árin fyrir hrun n Einungis milljarður á móti skuldunum
Afskrifa milljarða
hjá Sundurunum
T
vö félög sem eru í eigu eig-
enda fjárfestingarfélagsins
Sunds, Eignarhaldsfélag-
ið Sævarhöfði og Fasteigna-
félagið Sævarhöfði, hafa ver-
ið tekin til gjaldþrotaskipta. Þetta
kemur fram í tilkynningu í Lögbirt-
ingablaðinu. Skiptastjóri félagsins er
Magnús Guðlaugsson.
Heildarskuldir félaganna tveggja
nema samtals rúmlega 7,5 millj-
örðum króna. Á móti eru eignir sem
nema eingöngu rúmum milljarði
króna, aðallega fasteignir. Þetta þýðir
að lánardrottnar félaganna þurfa að
afskrifa milljarða króna af skuldum
þeirra.
Félögin voru í eigu Gunnþórunn-
ar Jónsdóttur, eftirlifandi eiginkonu
Óla Kr. Sigurðssonar í Olís, sonar
hennar Jóns Kristjánssonar, Páls Þór
Magnús sonar, Kristins Þórs Geirs-
sonar og Birgis Ómars Haraldssonar.
Félög sem tengdust Sundi voru stór-
tæk í fjárfestingum á Íslandi á árun-
um fyrir hrun.
Áttu B&L og Ingvar Helgason
Umrædd tvö eignarhaldsfélög tengd-
ust meðal annars kaupum Sunds á
bifreiðaumboðinu B&L af Gísla Guð-
mundssyni og fjölskyldu hans árið
2007. Kaupverðið á B&L var ekki gefið
upp en talið var að það næmi tveimur
til þremur milljörðum króna. Í frétt-
um frá árinu 2007 var sagt að fjár-
festingarbankinn VBS hefði séð um
kaupin fyrir hönd Sunds. Þegar þetta
gerðist átti Sund fyrir bifreiðaumboð-
ið Ingvar Helgason.
Eignarhaldsfélag Íslandsbanka,
Steinvirki, leysti bifreiðaumboðin tvö
hins vegar til sín í upphafi þessa árs
sem þýðir að Glitnir hafi verið stærsti
lánveitandi þeirra félaga Sundar-
anna sem héldu utan um bifreiða-
umboðin tvö. Í síðasta mánuði seldi
Miðengi, dótturfélag Íslandsbanka,
bifreiðaumboðin tvö til Ernu Gísla-
dóttur, dóttur Gísla Guðmundsson-
ar, fyrrverandi eiganda B&L. Kaup-
verðið var ekki gefið upp en ætla
má að það nemi einungis litlum
hluta af söluverði þeirra fyrir hrun.
Afskriftir vegna þessara eignarhalds-
félaga Sundaranna munu því lenda
að mestu á Íslandsbanka, samkvæmt
þessu.
Fengu 32 milljarða króna lánaða
Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþing-
is er fjallað um fjárfestingar Sunds
á árunum fyrir hrunið, meðal ann-
ars kaupin á Bifreiðum og land-
búnaðarvélum og Ingvari Helga-
syni. Í skýrslunni kemur fram að frá
því í jan úar 2007 og fram að banka-
hruni hafi hlutabréfakaup Sunds og
tengdra félaga í íslensku bönkun-
um þremur numið tæplega 32 millj-
örðum króna á því tímabili. Félagið
fjárfesti einnig í FL
Group, Straumi, Bakkavör, Byr og
fleiri félögum. Heildarskuldir Sunds
og tengdra félaga námu 64 millj-
örðum króna við bankahrunið sam-
kvæmt skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis.
Eigendur Sunds hafa misst
megnið af eignum eignarhalds-
félaga sinna eftir hrunið 2008,
meðal annars umrædd bif-
reiðaumboð. Þá eru viðskipti
þeim tengd til rannsóknar hjá
embætti sérstaks saksóknara.
Þrotabú eignarhaldsfélagsins
Ice Properties, sem var dóttur-
félags Sunds, hefur sömuleið-
is stefnt Páli Þór Magnússyni
vegna færslu á tíu fasteignum
út úr félaginu eftir efnahags-
hrunið 2008. Fasteignirnar,
meðal annars Hressingar-
skálinn svokallaði í Austur-
stræti og húsnæði í
Kringlunni, voru seldar út úr Ice Pro-
perties og til IceCapital/Sunds án
endurgjalds þann 20. október, eftir
íslenska efnahagshrunið. Uppgjöri
á málum sem tengjast eigendum
Sunds er því hvergi nærri lokið.
Skilja eftir sig milljarðaskuldir Félög Sundaranna keyptu meðal annars bifreiðaumboðin Ingvar Helgason og B&L. Tvö af félögum
þeirra eru nú gjaldþrota. Jón Kristjánsson var einn af eigendum Sunds og Birgir Ómar Haraldsson er einn nánasti samstarfsmaður hans í
fjárfestingum.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Leggjum grunn að
góðri heilsu 2012