Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Síða 13
Fréttir 13Áramótablað 30. desember 2011
Nýtt ár,
nýr kraftur, nýir tímar
Icelandic Group hefur allt frá stofnun, árið 1942, gegnt mikilvægu hlut verki í íslensku efnahagslífi.
Með því að byggja á reynslu Íslendinga af sjávarútvegi og fylgja fast eftir þróun til nútíma tækni og
nýrra aðferða við veiðar, vinnslu og markaðssetningu hefur fyrirtækið eflst og dafnað á sjötíu árum og
náð sterki stöðu á alþjóða markaði, til far sældar fyrir land og þjóð.
Árið 2012 er afmælisár og markar jafnframt nýjan áfanga í sögu Icelandic Group. Okkar bíða ný
verkefni og við stefnum af einurð og dug til móts við nýja tíma.
Icelandic Group óskar öllum Íslendingum, til sjávar og sveita, gæfu
og gengis á nýju ári.
Hugsið um dýrin um áramót
n Ólafur Dýrmundsson gefur góð ráð
Á
ramótin geta reynst dýrum
erfið vegna mikillar og lang-
dreginnar notkunar flug-
elda og sprengiefna. Þetta
á ekki aðeins við um gamlárskvöld
heldur er töluvert um notkun flug-
elda um nokkurra daga skeið fyr-
ir og eftir gamlárskvöld. Áður fyrr
var notkunin svo til alveg bundin
við gamlárskvöld auk þess sem há-
vaðinn var minni og var það mun
hagstæðara dýrunum. Dýravernd-
arsamband Íslands hvetur dýra-
eigendur til að hafa þetta í huga á
þessum tíma árs og gera allt til að
láta dýrunum líða betur. Mikil flug-
eldanotkun um áramótin skerði
dýravelferð og dýraeigendum beri
bæði lagaleg og siðferðileg skylda
til að vernda dýrin.
Á heimasíðu sambandsins er
grein eftir Ólaf Dýrmundsson dýra-
lækni en þar segir að bæði stór og
smá dýr hræðist glampann og ekki
síst drunurnar frá sprengjunum. Við
slíkar aðstæður geti þau auðveld-
lega farið sér að voða. Sem dæmi
um það hafi hross ætt út í ógöngur
í fjöllum og klettum. Eins séu marg-
ir hundar og kettir viðkvæmir fyr-
ir sprengjunum sem eru kallaðar
„hamfarir“ af manna völdum.
Ólafur bendir á nokkur ráð til
að draga úr vanlíðan dýra yfir ára-
mótin en í gripahúsum, svo sem
hesthúsum, sé algengt að láta ljós
lifa og loka gluggum. Þá sé jafnvel
gott að byrgja þá, láta loftræstivift-
urnar halda loftinu sem hreinustu
og hafa kveikt á útvarpi. Það séu
einnig dæmi um að gæludýraeig-
endur leiti aðstoðar dýralækna og
fái róandi lyf fyrir hunda á gamlárs-
kvöld.
gunnhildur@dv.is
Áramótin Blossar og sprengingar
um áramótin geta hrætt dýrin.
Dularfull örlög
rögnu EsthErar
hefur hún haldið henni áfram með
aðstoð annarra fjölskyldumeðlima
og einstaklinga.
Herdís segir það hafa verið mik-
inn létti þegar fjölskyldan heyrði af af-
drifum barna Estherar, frábærar fréttir.
Hún segist vona að í framhaldinu nái
fjölskyldan að byggja góð tengsl við
son hennar sem fékk nafnið Robert
þegar hann var ættleiddur af fóstur-
fjölskyldu sinni. Hún vonast til að mál-
inu ljúki fljótlega. Í náinni framtíð geti
gögn frá barnaheimilinu varpað nán-
ara ljósi á örlög Estherar. Á því hafi Ró-
bert áhuga.
Þrjár fjölskyldur hafa komið að leit-
inni að Esther með einum eða öðrum
hætti í 60 ár. „Fjölskyldan hefur aldrei
gefist upp. Faðir minn endurvakti mál-
ið um 1990. Hann hefði orðið 71 árs í
dag. Ég vona að það verði fjallað um
þetta mál af mikilli varkárni og tekið
tillit til þess að það eru miklar tilfinn-
ingar þarna að baki.“
Hjálp úr óvæntri átt
Lillý Valgerður Oddsdóttir las sögu
Rögnu Estherar í fjölmiðlum síðasta
vor og snart saga Estherar og barna
hennar hana djúpt. Í kjölfarið hafði
hún samband við Herdísi og bauð
fram aðstoð sína. Lillý Valgerður fann
mikilvæg gögn í málinu sem varð til
þess að börn Estherar fundust. Herdís
Elísabet segist vera Lillý Valgerði afar
þakklát fyrir hjálp hennar og stuðning.
„Mér finnst það þó mjög mikilvægt að
það komi fram að þetta ferli er búið að
taka mjög langan tíma og þegar Lillý
Valgerður Oddsdóttir kemur að mál-
inu þá er til ógrynni af gögnum um
hvað er búið að vera að gera og hvað
verið sé að gera í málinu. Málið var í
fullri vinnslu þegar hún býður fram
hjálp sína. Við létum Lillý í té öll gögn-
in sem búið var að safna í gegnum tíð-
ina þar sem hún var svo yndisleg að
bjóðast til að aðstoða fjölskylduna.“
Herdís segir fjölskylduna vera afar
þakkláta fyrir að hafa loksins náð sam-
bandi við Robert son Estherar.
„Það var mér mikill heiður að fá að
hringja fyrsta símtalið fyrir hönd fjöl-
skyldu Estherar. Robert sagði mér að
hann sjálfur hefði leitað að fjölskyld-
unni sinni í hartnær tvo áratugi án
árangurs. Hann sagðist ekki hafa haft
hugmynd um að einhver hefði verið að
leita að honum allan þennan tíma. Ég
veit að það eru margir fjölskyldumeð-
limir sem bíða í ofvæni eftir að fá að
tala við hann.“
Móðurást Ragna Esther með Raymond
fjögurra mánaða.