Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Page 14
14 Annáll 30. desember 2011 Áramótablað
Hetjur, Harmleikir
og falskar minningar
Janúar
Lamaðist í slysi í
Austurríki
1. janúar
n Pétur Kristján
Guðmundsson,
25 ára, slasað-
ist alvarlega
þegar hann
hrapaði niður
fjallshlíð í borg-
inni Innsbruck í
Austurríki á nýárs-
nótt. Hann hlaut mænuskaða við
fallið og lamaðist fyrir neðan mitti.
Bjargaði fólki úr
brennandi húsi
2. janúar
n Steinþór Stefánsson bjargaði lífi
fjögurra ungmenna þegar hann gekk
fram hjá brennandi húsi snemma
morguns. Hann hringdi í neyðarlín-
una og hófst svo handa við að vekja
fólkið með því að berja á glugga og
veggi hússins. Slökkviliðs- og lög-
reglumenn voru sammála um að
Steinþór hefði unnið mikla hetju-
dáð.
Agnes Braga-
dóttir gerði árás
n Agnes Bragadótt-
ir, blaðamaður á
Morgunblaðinu,
skrifaði frétt þar
sem hún hafði
eftir ónafngreind-
um vitnum að Ingi
Freyr Vilhjálms-
son, fréttastjóri DV,
hefði réttarstöðu grunaðs
manns í „rannsóknum“ lögreglu. Í
fréttinni var njósnamálið á Alþingi
og birtingu á gögnum sem tengjast
viðskiptamönnum spyrt saman. Var
því haldið fram að Ingi Freyr hefði
greitt manni þóknun fyrir að stela
þessum gögnum. Lögreglan greindi
strax frá því að Ingi Freyr hefði ekki
réttarstöðu grunaðs manns. Morg-
unblaðið baðst að lokum afsökunar
á fréttinni.
Illa farið með
ketti
n Mikið var fjallað
um illa meðferð
á dýrum á árinu
og þá sérstaklega
köttum. Svo virð-
ist sem margir hafi
reynt að komast
hjá kostnaði við að
lóga dýrunum með því
að skilja þau eftir á víðavangi, eða í
yfirgefnu húsnæði. Þar beið þeirra
oft ekkert nema svelti. Þá fundust
þrettán dauðir kettlingar í runna í
Breiðholtinu í maí en þeim hafði
greinilega verið drekkt. Yfir 500 kett-
ir hafa komið inn í Kattholt á þessu
ári og yfir 200 köttum þaðan hefur
verið lógað.
Jón stóri stofn-
aði Semper Fi
n Jón Hilmar Hallgrímsson, betur
þekktur sem Jón stóri, stofnaði sam-
tökin Semper Fi. Um 200 manns
sóttu um að ganga í samtökin. Að-
spurður sagði Jón að þetta væri ein-
göngu hugsað sem félagsskapur fyrir
karlmenn sem hafa gaman af því
að „hittast, lyfta saman og stunda
bardagaíþróttir“. Hann sagði af-
brotamenn vera að finna í hópnum
og að þeir væru velkomnir.
Horfinn af
yfirborði jarðar
10. janúar
n Lögreglan lýsti í fyrsta skipti eftir
Matthíasi Þórarinssyni, 22 ára, sem
ekkert hafði spurst til í nokkrar vikur.
Bíll Matthíasar fannst brunninn og
yfirgefinn nokkrum dögum síðar
skammt frá malarnámunum á
Kjalarnesi en engin ummerki um
hann sjálfan. Ekkert hefur til
Matthíasar spurst nú í rúmt ár en
jafnvel er talið að hann hafi farið
úr landi. Móðir Matthíasar lýsti
honum sem sjálfstæðum og
sérvitrum en var viss um að hann
hefði ekki farið sér að voða.
Hörð kosninga-
barátta í VR
n Siðfræðingur-
inn Stefán Einar
Stefánsson til-
kynnti framboð
sitt til formanns
VR í byrjun árs.
Hann var þá meðal
annars þekktur fyrir
umdeilda smölun á
ungum sjálfstæðismönnum
til Ísafjarðar til að tryggja skoðana-
bróður sínum kosningu til formanns
SUS. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir,
mótframbjóðandi Stefáns Einars í
formannskjöri VR, kærði hann til
kjörstjórnar. Hún vildi meina að
hann hefði brotið gegn reglum um
meðferð á útprentaðri kjörskrá og
hefði fengið aðgang að kjörskránni
á tölvutæku formi. Stefán Einar var
kosinn formaður VR þann 30. mars.
Sjonni Brink lést
17. janúar
n Sigurjón Brink, þáttar-
stjórnandi og tónlistar-
maður, varð bráðkvadd-
ur á heimili sínu þann
17. janúar, aðeins 36 ára
gamall. Hann lét eftir sig
fjögur börn og eftirlifandi
eiginkona hans er Þórunn
Erna Clausen. Sjonni, eins og
hann var alltaf kallaður, átti að taka
þátt í forkeppni Eurovision nokkr-
um dögum eftir að hann lést. Hann
ætlaði að flytja lagið Aftur heim, sem
hann samdi sjálfur við texta Þórunn-
ar. Félagar Sjonna heiðruðu minn-
ingu vinar síns með því að flytja lag-
ið og fóru með sigur af hólmi. Þeir
kölluðu sig Vini Sjonna.
Eyraroddi
gjaldþrota
n Útgerðarfyrirtækið Eyraroddi á
Flateyri var úrskurðað gjaldþrota
í janúar og var það reiðarslag fyrir
þorpsbúa. Mikil óánægja hefur ríkt
meðal þorpsbúa yfir framvindu mála
eftir gjaldþrotið og þung orð hafa
verið látin falla varðandi framgöngu
skiptastjóra og Byggðastofnunar.
Íslenskir rasistar
tjáðu sig
n Rasistar á Íslandi tjáðu sig í fyrsta
skipti opinberlega í DV. Þar á meðal
Sigríður Bryndís Bald-
vinsdóttir, sem
vakti töluverða
athygli þegar
hún birti mynd-
band á netinu
þar sem hún fór
með möntru nas-
ista og nýnasista.
Hún er tveggja barna móðir, með-
limur í alþjóðasamtökunum Blóð
og heiður og Combat18 og aðhyllist
öfgaþjóðernishyggju og kynþátta-
hatur. Hún sagði félagið vera virkt
hér á landi að og í því væri venjulegt
fjölskyldufólk á öllum aldri.
Heimili starfs-
manna Lands-
bankans vöktuð
n DV greindi frá því að heimili sjö
starfsmanna Landsbankans hefðu
verð vöktuð mánuðum saman af
Securitas vegna alvarlegra
hótana tveggja bræðra
á miðjum aldri. Þeir
starfsmenn sem
fengu gæslu voru
flestallir yfirmenn
bankans auk lög-
fræðings. Bræðurnir
sem höfðu í hótun-
um áttu fyrirtæki sem
hafði verið úrskurðað gjaldþrota og
höfðu lánin fallið á ættingja mann-
anna sem höfðu verið í ábyrgðum
fyrir þá.
Febrúar
Björguðu lífi
í líkams-
ræktarstöð
n Tveir ungir menn, Kristinn Hjart-
arson og Alexander Aron Davorsson,
björguðu lífi manns sem hné niður
meðvitundarlaus vegna hjartastopps
í Hreyfingu. Talið er að eftirtektar-
semi piltanna og skjót viðbrögð hafi
orði manninum til lífs. Þeir lýstu
þessu sem ógnvænlegri lífsreynslu
en sögðust ánægðir með dagsverkið.
Líf stríðsfrétta-
manns
n Í viðtali í DV lýsti Jón Björg-
vinsson stríðsfréttamaður
ævintýralegu starfi sínu. Hann
sagðist lifa eins og útigangsmað-
ur á fyrsta farrými. Þegar blaðamað-
ur ræddi við Jón var hann staddur
í Kaíró að fylgjast með blóðugum
átökum stuðningsmanna og and-
stæðinga Mubaraks, forseta Egypta-
lands.
Steig fram Biskupsdóttirin Guð-
rún Ebba Ólafsdóttir sýndi mikið
hugrekki á árinu sem er að liða.