Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Síða 15
Týndar stelpur
n Lögreglan lýsti eftir fimmtán ára
stúlku. Í kjölfarið birtist greinaflokk-
ur þar sem týndar stelpur,
foreldrar og fagaðilar
greindu frá því hvað
er á bak við slíkar
fréttir, en örlög
þessara stúlkna
eru oft grimmileg.
Í verstu tilfellunum
tæla eldri menn þær
með vímuefnum, halda
þeim dópuðum, misnota þær og
gera þær út, fela þær fyrir foreldrum
og losa sig síðan við þær þegar lög-
reglan leitar að þeim.
Bjargað úr
Tjörninni
n Andri Vilbergsson bjargaði Ell-
erti Björgvini Schram úr Tjörninni í
Reykjavík eftir að hann féll niður um
ís þegar hann stytti sér leið þar yfir
að næturlagi. Ellert reyndi
að klifra sjálfur upp á
ísinn sem gaf eftir
og brotnaði undan
honum. Andri kom
auga á Ellert fyrir
algjöra tilviljun,
en líkamshiti hans
mældist 33,3°C þegar
á þurrt land var komið.
Skyndihjálpar-
maður ársins
n Ólafur Guðnason var valinn
skyndihjálparmaður ársins af Rauða
krossi Íslands. Hann bjargaði lífi
sonar síns þegar þeir lentu í bílslysi.
Ólafur náði að stöðva lífshættu-
lega blæðingu á höfði sonar síns og
nafna. Þá hélt hann honum rólegum
og talaði við hann þangað til sjúkra-
bíll kom á vettvang.
Blaðamaður DV
fékk verðlaun
n Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir,
blaðamaður á DV, hlaut verðlaun
fyrir rannsóknarblaðamennsku árs-
ins þegar blaðamannaverðlaunin
voru veitt í febrúar.
Mars
Ráðuneytis-
stjóri dæmdur
í fangelsi
n Héraðsdómur dæmdi Baldur
Guðlaugsson, fyrrverandi ráðu-
neytisstjóra í fjármálaráðuneytinu,
í tveggja ára fangelsi fyrir að nýta
sér innherjaupplýsingar þegar hann
seldi hlutabréf
í Landsbank-
anum skömmu
fyrir fall bank-
ans. Baldur
hagnaðist um 193
milljónir á viðskipt-
unum, en nokkrum dögum síðar
voru bréfin verðlaus. Samkvæmt
dómnum var honum gert að greiða
ágóðann af sölunni til baka. Honum
var auk þess gert að greiða sakar-
kostnað upp á 4,5 milljónir króna.
Thor Vilhjálms-
son lést
2. mars
n Thor Vilhjálms-
son rithöfundur
lést þann 2. mars,
85 ára að aldri.
Fyrsta bók Thors,
Maðurinn er alltaf
einn, kom út árið 1950.
Hann skrifaði fjölda bóka, skáld-
sögur, leikrit og greinasöfn og hlaut
mörg verðlaun fyrir verk sín á lífs-
leiðinni. Hann var meðal annars
heiðursborgari í franska bænum
Rocamadour.
MC Iceland
urðu Hells
Angels
n Samtökin
MC Iceland
urðu fullgild-
ur meðlimur
í Hells Ang-
els. Klúbburinn,
undir forystu Einars
„Boom“ Marteinssonar, hafði í mörg
ár reynt að fá inngöngu í samtökin.
Reyndu að tæla
börn upp í bíla
n Tilkynnt var um tvo menn í
Garðabæ sem reyndu að lokka ung-
an dreng upp í bíl til sín. Drengur-
inn sem var átta ára var að koma
af fótboltaæfingu þegar mennirnir
sem voru á svörtum bíl spurðu hvort
hann vildi „skoða flott fótbolta-
dót“. Drengurinn vildi ekki fara upp
í bílinn og lét foreldra
sína vita. Mennirn-
ir fundust aldrei.
Svipuð mál fylgdu
í kjölfarið á næstu
dögum og vikum
en ekki náðist
að hafa hendur í
hári mannanna.
Ólöglegar
bótox-meðferðir
afhjúpaðar
n DV afhjúpaði ólöglegar bótox-
meðferðir sem kona framkvæmdi í
heimahúsi í Kópavogi. Konan, sem
er frá Rússlandi, hafði áður starfað
sem strippari hér á landi. Hún er
talin hafa smyglað bótox-efninu frá
heimalandi sínu, en efnið er ban-
eitrað og strangar reglur gilda um
innflutning lyfja til landsins.
Barist um lífeyr-
isréttindi Sivjar
n Siv Friðleifsdóttir og fyrrverandi
sambýlismaður hennar og barns-
faðir, Þorsteinn Húnbogason, tókust
á um hlutdeild Þorsteins í lífeyris-
réttindum Sivjar. Deildu þau um
rúmlega hundrað milljóna króna líf-
eyrisréttindi sem Siv hefur unnið sér
inn sem alþingismaður. Siv gat ekki
fallist á kröfur Þorsteins og stefndi
honum því til opinberra skipta.
Prestur rekinn úr
Hreyfingu
n Séra Pálma Matthíassyni var vísað
úr Hreyfingu fyrir að sparka í rass-
inn á kennara. Pálmi sagði atvikið
óviljaverk en Hreyfing sendi frá sér
yfirlýsingu þar sem sagði að orð
hans væru ekki í nokkru samræmi
við upplifun viðkomandi starfs-
manns, vitna eða annarra starfs-
manna heilsuræktarstöðvarinnar.
Samskiptasaga Pálma hefði einnig
legið fyrir til grundvallar ákvörðun-
inni um að vísa honum frá. Við-
skiptavinum væri ekki vísað frá
nema í algjörum undantekningartil-
vikum og þá aðeins ef aðrar lausnir
væru ekki taldar færar.
Mætti ekki í
skólann í mánuð
n Ellefu ára drengur
í Hveragerði, Þor-
valdur Berglind-
arson, mætti
ekki í skóla í
mánuð. Móð-
ir hans sagði
ástæðuna vera
einelti, drengurinn
væri útskúfaður, laminn
og niðurlægður. Í kjölfarið spunn-
ust miklar umræður um einelti og
Facebook-síðan Eineltisþolendur
í grunnskólanum í Hveragerði var
stofnuð þar sem fjöldi fólks sagði
sögu sína. Drengurinn fékk heima-
kennslu en þegar sérfræðingar frá
menntamálaráðuneytinu fóru yfir
málið varð niðurstaðan sú að ekki
væri um einelti að ræða.
Umræðan var engu að síður
komin af stað. Fjöldi eineltismála
kom upp á árinu, ung stúlka greindi
frá því hvernig hún leiddist út í fíkni-
efnaneyslu eftir einelti og fór síðan
að selja sig og ungur strákur hafði
svipaða sögu að segja, hann leitaði
skjóls í undirheimunum þar sem
hann stundaði handrukkun og ann-
an óþverra.
Apríl
Þorvarður fékk
14 ára fangelsi
7. apríl
n Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
Þorvarð Davíð Ólafsson í 14 ára
fangelsi fyrir fólskulega árás á föður
sinn, tónlistarmanninn Ólaf Þórðar-
son. Árásin átti sér stað á æskuheim-
ili Þorvarðar þann 14. nóvember í
fyrra.
Fyrrverandi
eiginkona
stefndi Karli
Wernerssyni
n DV greindi frá því að Sigríður
Jónsdóttir, fyrrverandi eiginkona
Karls Wernerssonar, sem var eig-
andi Milestone, hefði stefnt honum.
Um er að ræða skuldamál, en aðal-
meðferð fer fram í byrjun næsta árs.
Samkvæmt heimildum DV gerðu
Karl og Sigríður með sér samninga
Annáll 15Áramótablað 30. desember 2011
Hetjur, Harmleikir
og falskar minningar
Náttúruhamfarir Náttúruöflin
létu rækilega fyrir sér finna með
eldgosum og jökulhlaupum.