Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Qupperneq 16
16 Annáll 30. desember 2011 Áramótablað
við skilnaðinn sem kváðu á um
skiptingu eigna þeirra. Hugsanlegt
er að Karl hafi ekki staðið við skuld-
bindingar sínar og að málið sé höfð-
að vegna þess. Heimildir DV herma
að hluti af samningnum hafi verið
að Karl ætti að tryggja Sigríði nokkr-
ar ferðir með einkaþotu á ári.
Varaði við bólu-
setningum
n Ragna Erlends-
dóttir, móðir Ellu
Dísar Laur-
ens, fullyrti að
dóttir hennar
væri með
taugaskaða af
völdum sjálfs-
ofnæmis í kjölfar
bólusetningaróþols. Ragna sagði ís-
lenskan tauga- og heilaskurðlækni
hafa greint Ellu Dís en vildi í fyrstu
ekki gefa upp nafnið á honum. Hún
hafði fram að því verið skráð með
óþekktan hrörnunarsjúkdóm. Ragna
varaði í kjölfarið foreldra við því að
láta bólusetja börn sín. Síðar á árinu
ljóstraði hún upp að læknirinn hefði
verið Sverrir Bergmann.
Hneig niður á
billjardstofu og
lést
27. apríl
n Tvítug stúlka, Hrönn Benedikts-
dóttir, hné niður með hjartaáfall
á Billiardbarnum í Faxafeni. Hún
komst aldrei til meðvitundar og lést
á Landspítalanum þann 27. apríl.
Mál Prianka
Thapa
n Hinni ne-
pölsku
Priyanka
Thapa var
neitað um
dvalarleyfi
af mannúð-
arástæðum
hér á landi.
Hún kom til Íslands
snemma árs 2010 og starfaði sem
au-pair hjá fjölskyldu í Vogunum
ásamt því að stunda nám í Keili.
Mál hennar var þó tekið aftur upp
hjá Útlendingastofnun vegna mikils
þrýstings frá almenningi og er enn
í vinnslu. Priyanka er afburðanem-
andi og útskrifaðist nú í sumar sem
dúx frá Verk- og raunvísindadeild
Háskólabrúar Keilis.
Lést eftir
neyslu PMMA
30. apríl
n Harpa Björt Guðbjartsdóttir,
21 árs, lést af völdum alvarlegr-
ar PMMA-amfetamíns eitrunar í
heimahúsi í Árbænum. Harpa Björt
hafði verið að halda upp á afmæli
sitt í vinahópi og neytt eiturlyfs-
ins með fyrrgreindum afleiðingum.
Fjöldi dauðsfalla hefur verið rakinn
til neyslu PMMA um allan heim.
Harpa Björt var efnileg knattspyrnu-
kona og hafði meðal annars spilað
með unglingalandsliðinu í fótbolta.
Henni var lýst sem ljúfri og góðri
stúlku.
Maí
Vítisenglar
höfðuðu mál
n Leif Ivar Kristi-
ansen, leiðtogi
Hells Angels í
Noregi, höfð-
aði skaðabóta-
mál á hendur
íslenska ríkinu
vegna frávísun-
ar úr landi. Annar
meðlimur samtak-
anna, Jan Anfinn Wahl, stefndi einn-
ig ríkinu vegna hliðstæðs máls.
Árás á heimili
innanríkis-
ráðherra
6. maí
n Árás var gerð á heimili Ögmundar
Jónassonar innanríkisráðherra og
tvær rúður brotnar. Grjóti var kastað
í húsið og rigndi glerbrotum yfir
Ögmund og konu hans þar sem þau
sátu í stofunni en þau sakaði ekki.
Ekki er vitað hverjir voru að verki.
Fannst látin í
farangurs-
geymslu
12. maí
n Kona um
tvítugt fannst
látin í farang-
ursgeymslu
bifreiðar við
Landspítalann í
Fossvogi. Það var
unnusti konunnar, Axel Jó-
hannsson, sem vísaði starfsfólki
spítalans á líkið. Við yfirheyrslur
hjá lögreglunni viðurkenndi hann
að konan í farangursgeymslunni
væri Þóra Elín Þorvaldsdóttir, 21 árs
barnsmóðir hans, og að hann hefði
ráðið henni bana.
Axel myrti Þóru Elínu í Heið-
mörk með því að veitast að henni og
þrengja að hálsi hennar með hönd-
um og öryggisbelti bifreiðar sem þau
sátu í. Barnungur sonur þeirra var
sofandi í bílstól í bifreiðinni.
Í mati geðlæknis kom fram að
Axel væri haldinn alvarlegum geð-
sjúkdómi eða aðsóknargeðklofa.
Hann var jafnframt metinn mjög
hættulegur öðru fólki og var dæmd-
ur til vistunar á réttargeðdeildinni
að Sogni.
Líkamsárás og
frelsissvipting
n DV greindi frá því
að foringi Black Pi-
stons, Ríharð-
ur Júlíus Rík-
harðsson, hefði
ásamt Davíð
Frey Rúnarssyni
verið úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald
vegna aðildar sinnar
að hrottalegri líkamsárás og frelsis-
sviptingu á ungum manni. Seinna
var þriðji maðurinn, Brynjar Logi
Barkarson, 17 ára, einnig ákærð-
ur fyrir aðild að málinu. Þeir voru
ákærðir fyrir sérstaklega hættulega
líkamsárás, tilraun til ráns með því
að ætla að neyða út úr manninum
fé með því að hóta að beita hann
og hans nánustu ofbeldi. Þyngsta
dóminn fékk Ríkharð Júlíus, þriggja
og hálfs árs fangelsi. Davíð Freyr
var dæmdur í þriggja ára fangelsi og
Brynjar Logi hlaut sex mánaða dóm.
Þá var þeim gert að greiða fórnar-
lambinu eina og hálfa milljón króna.
Eldgos í
Grímsvötnum
21. maí
n Eldgos hófst í
Grímsvötnum
þann 21. maí og
var það stærsta á
svæðinu í 100 ár.
Veðurfræðingur
sagði gosið hvorki
vera túrista- né
sælugos líkt og gosin
árið áður. Bóndi á svæðinu sagði
nóttina eftir að gosið hófst þá svört-
ustu sem hann hefði lifað.
Drengur drukkn-
aði í sundlaug
21. maí
n Laugardaginn 21. maí fannst
fimm ára drengur meðvitundarlaus
á botni innilaugarinnar í sundlaug-
inni á Selfossi. Hann komst aldrei til
meðvitundar og lést á Landspítalan-
um daginn eftir, þann 22. maí.
Í gæsluvarðhaldi
í Taílandi
n Brynjar Mettinisson var handtek-
inn í Bangkok í Taílandi og hnepptur
í gæsluvarðhald, grunaður um fíkni-
efnamisferli.
Kærasta Brynjars sagði í samtali
við DV að honum hefðu verið boðnir
peningar til að finna burðardýr til að
fara með pakka til Japans. Hún sagði
Brynjar ekki hafa vitað að fíkniefni
væru í pakkanum, en í ljós kom að
í honum var eitt og hálft kíló af am-
fetamíni. Brynjar situr enn í fangelsi
í Bangkok og bíður þess að mál hans
verði tekið fyrir hjá þarlendum dóm-
stólum.
Júní
Banaði nýfæddu
barni sínu
2. júní
n Sveinbarn fannst látið
í ruslagámi við Hótel
Frón á Laugavegi.
Barnið fannst í
kjölfar þess að
móðirin, Agné
Krataviciuté 21 árs
Lithái og starfsmað-
ur á hótelinu, leitaði
læknisaðstoðar á bráða-
deild Landspítalans vegna mikilla
kviðverkja og blæðinga. Læknar á
spítalanum þóttust fullvissir um að
Agné hefði nýlega fætt barn, en hún
neitaði því. Lögreglu var þegar gert
viðvart og hófst strax rannsókn og
eftirgrennslan eftir barninu.
Agné hefur verið úrskurðuð sak-
hæf af geðlækni og er ákærð fyrir
manndráp. Henni er gefið að sök að
hafa veitt drengnum tvo skurðáverka
á andlit með bitvopni og banað
honum síðan með því að þrengja að
hálsi hans uns hann lést.
Ólafur Gaukur
Þórhallsson lést
12. júní
n Tónlistarmaðurinn góðkunni lést,
áttræður að aldri, í
sumar. Hann var
einn helsti braut-
ryðjandi dægur-
tónlistar á Íslandi,
sem gítarleik-
ari, lagahöfundur,
hljómsveitarstjóri,
útsetjari, textahöf-
undur og kennari. Hann rak
Gítarskóla Ólafs Gauks frá 1975 til
dauðadags. Eftirlifandi eiginkona
hans er Svanhildur Jakobsdóttir
söngkona og dagskrárgerðarmaður.
Veitti karlmanni
banvæna áverka
14. júní
n Redouane Naoui, tæplega fer-
tugur karlmaður, veittist að Hilmari
Þóri Ólafssyni með hníf á veitinga-
staðnum Monte Carlo á Laugavegi.
Hilmar Þórir hlaut áverka á hálsi og
lá þungt haldinn á gjörgæsludeild
þangað til hann lést af sárum sínum
tveimur vikum síðar. Redouane Na-
oui var dæmdur í 16 ára fangelsi í
Héraðsdómi Reykjavíkur þann 24.
nóvember.
Kynferðisbrot í
Landakotsskóla
n Fagráð um kynferðisbrot inn-
an kirkjunnar fór yfir mál tveggja
manna sem sökuðu presta og starfs-
menn kaþólsku kirkjunnar
um andlega og kynferðis-
lega misnotkun. Gerend-
ur voru látnir en annar
þeirra var skólastjóri
Landakotsskóla, séra
Ágúst Georg, og hinn var
kennslukona við skólann,
Margrét Muller.
Gamlir nemendur Landakots-
skóla stigu fram hver á fætur öðrum
og lýstu þeim sem illmennum. Einn
viðmælenda DV sagðist enn fá mar-
traðir um þau.
Rannsóknar-
nefnd kirkju-
þings
n Rannsóknarnefnd
kirkjuþings skilaði
skýrslu um biskups-
málið. Fram kom
að séra Karl Sigur-
björnsson biskup
hefði gert margvísleg
mistök í málinu, sem
prestur, kirkjuráðsmaður
og biskup. Rannsóknarnefndin sagði
að yfirlýsing kirkjuráðs árið 1996
bæri þess vott að aðeins annar aðil-
inn í málinu nyti stuðnings nefndar-
innar og sagði það alvarleg mistök
af hálfu Karls og annarra kirkjuráðs-
manna að senda frá sér þessa yfirlýs-
ingu. Rannsóknarnefndin taldi einn-
ig að Karl hefði gert mistök með því
að taka að sér að leita sátta á milli
Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur og
Ólafs Skúlasonar, þáverandi biskups,
ekki síst í ljósi fyrri afskipta af mál-
inu. Karl var að auki sagður hafa
gert ýmis mistök varðandi erindi
Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur, til
dæmis þegar hann skráði bréf
hennar ekki í skjalaskrá Biskups-
stofu. Sagði nefndin að skortur
væri á faglegum og samræmdum
vinnubrögðum og að unnið væri úr
málinu í samræmi við þau gildi og
grundvallarhugsjónir sem þjóðkirkj-
an stendur fyrir.
Júlí
Hlaup
í Múlakvísl
n Aðfaranótt laugardagsins 9. júlí
kom hlaup í Múlakvísl undan Mýr-
dalsjökli. Mikill kraftur var í hlaup-
inu og reif það með sér brúna yfir
Múlakvísl. Við það rofnaði hring-
vegurinn á háannatíma ferðaþjón-
ustunnar. Talið er að lítið gos undir
jöklinum hafi orsakað hlaupið. Að-
ilar innan ferðaþjónustunnar urðu
margir æfir yfir þeim fréttum að
vegurinn yrði líklega í sundur í tvær
til þrjár vikur. Það reyndist þó ekki
raunin því starfsmenn Vegagerð-
arinnar voru kallaðir úr sumar-
fríi, lögðu dag við nótt og luku
við smíði bráðabirgðabrúar yfir
Múlakvísl á rúmri viku. Var það
einstök frammistaða.
Kæru á hendur
Gunnari í Kross-
inum vísað frá
n Sjö konur kærðu Gunnar Þor-
steinsson, þáverandi forstöðumann
Krossins, fyrir kynferðisbrot. Tvær
kvennanna voru fyrrverandi mág-
konur hans en konurnar sögðu að
brotin hefðu átt sér stað þegar þær
voru ungar að aldri. Gunnar steig til
hliðar vegna ásakananna og dóttir
hans tók við söfnuðinum. Saksókn-
ari vísaði málinu frá þar sem brotin
væru fyrnd. Gunnar sagðist saklaus
af þessum ásökunum en konurnar
sjö stigu fram og sögðu þjóðinni frá
ásökunum á hendur honum.
Þrjú fórnarlömb
Ólafs fengu bætur
n Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, Stef-
anía Þorgrímsdóttir og Dagbjört
Guðmundsdóttir fengu greiddar
bætur frá þjóðkirkjunni. Konurnar
þrjár stigu fram árið 1996 og sökuðu
Ólaf Skúlason biskup um kynferðis-
brot en bæturnar fengu þær vegna
viðbragða kirkjunnar við
þessum ásökunum. Rann-
sóknarnefnd kirkjuþings
komst að þeirri niðurstöðu
að kirkjan hefði brugðist
þeim, meðal annars þegar
Prófastafélagið gaf út yfir-
lýsingu um einróma stuðn-
ing félagsmanna við Ólaf þegar
málið kom upp á sínum tíma. Guð-
rúnu Ebbu Ólafsdóttur voru hins
vegar ekki boðnar bætur þó að kirkj-
an hefði einnig brugðist henni að
mati rannsóknarnefndarinnar.
Sævar
Ciesielski lést
n Sævar Marinó Ciesielski, einn
sakborninga í Guðmundar- og
Geirfinnsmálinu, lést af slysförum í
Kaupmannahöfn þann 12. júlí. Sæv-
ar hélt alla tíð fram sakleysi sínu og
barðist fyrir því að fá mannorð sitt
hreinsað. Eftir andlát hans fór af stað
umfjöllun um sakamálið á
nýjan leik, en komið
hefur fram að rann-
sókn málsins hafi
verið ábótavant.
Eftir þrýsting
frá almenningi,
aðstandendum
Sævars og fleiri sak-
borninga, kom innan-
ríkisráðherra á fót starfshópi til að
fara yfir öll gögn málsins.
Ágúst
Banaslys vegna
ofsaaksturs
n Þann 12. ágúst varð alvarlegt bíl-
slys við Geirsgötu í
Reykjavík þegar
fólksbíll hafnaði
á húsvegg eftir
ofsaakstur. Þrír
ungir piltar voru
í bílnum og hlaut
einn þeirra, Eyþór
Darri Róbertsson,
alvarlega áverka. Hon-
um var haldið sofandi á gjörgæslu-
deild Landspítalans en hann lést
tveimur dögum síðar, daginn fyrir 18
ára afmælisdaginn sinn. Eyþór Darri
var farþegi í bílnum, en talið er að
bílstjórinn hafi verið í kappakstri við
annan bíl.