Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Qupperneq 31
Annáll 31Áramótablað 30. desember 2011
Gbagbo
handtekinn
11. apríl
n Laurent
Gbagbo, for-
seti Fílabeins-
strandarinnar,
var hand-
tekinn. Hann
hafði neitað að
láta af völdum eftir
forsetakosningar sem fram fóru í
landinu í nóvember 2010. Í kjölfarið
tók Alassane Ouattara, sem var rétt-
kjörinn forseti, við völdum í landinu.
Stríðsglæpadómstóllinn fjallar nú um
mál Gbagbos en hann er grunaður
um þjóðarmorð í borgarastyrjöldinni
sem hófst í landinu árið 2002.
Obama birtir
fæðingarvottorð
27. apríl
n Barack
Obama, for-
seti Banda-
ríkjanna, blés á
efasemdir þess
efnis að hann
hefði ekki fæðst
í Bandaríkjunum.
Hvíta húsið birti á heimasíðu sinni
fæðingarvottorð forsetans. Obama
var ekki skemmt yfir orðróminum og
sagðist hann ekki hafa tíma fyrir slík
látalæti. Á fæðingarvottorðinu kom
fram að hann hefði fæðst á Hawaii á
Kapiolani-spítalanum þann 4. ágúst
1961.
Hjónaband
í skugga lögu-
legs afturenda
29. apríl
n Vilhjálmur Bretaprins og Kate
Middleton gengu í hjónaband við
hátíðlega athöfn og tóku tugþús-
undir Breta á móti þeim við Buck-
ingham-höll í kjölfarið. Senuþjófur-
inn var þó Pippa Middleton, systir
Kate, sem vakti mikla athygli bresku
pressunnar fyrir lögulegan aftur-
enda sinn.
Maí
Osama bin
Laden drepinn
1. maí
n Osama bin Laden, leiðtogi
hryðjuverkasamtakanna al-Kaída,
var drepinn af úrvalsliði
bandarískra sjóliða,
svokallaðra Navy
Seals, sem réðust að
felustað bin Ladens.
Bin Laden hafðist
við í afgirtu risa-
húsnæði í bænum
Abbottobad í Pakistan,
í um 60 kílómetra fjarlægð
frá höfuðborginni Islamabad. Eftir
að hann var drepinn var ösku hans
hent á haf út en hann var óvopnaður
þegar bandarísku sjóliðarnir fundu
hann. Barack Obama Bandaríkjafor-
seti segir að „heimurinn sé örugg-
ari“ eftir dauða bin Ladens.
Strauss-Kahn
handtekinn
14. maí
n Dominique
Strauss-Kahn,
forstjóri Al-
þjóðagjald-
eyrissjóðsins,
var handtekinn
á JFK-flugvellin-
um í New York eftir
að hótelþerna sakaði
hann um kynferðislega árás. Fjórum
dögum síðar sagði Strauss-Kahn af
sér embætti vegna málsins. Í ágúst
síðastliðnum var málið gegn honum
fellt niður og var honum frjálst að
yfirgefa Bandaríkin í kjölfarið.
Mladic loksins
gómaður
26. maí
n Ratko Mla-
dic, fyrrverandi
yfirmaður ser-
bneska hersins,
var handtekinn
í heimalandi sínu
eftir að hafa verið
mörg ár á flótta. Mladic var eftirlýst-
ur fyrir stríðsglæpi og þjóðarmorð í
Bosníustríðinu. Hann var til dæmis
sagður hafa fyrirskipað fjöldamorðin á
7.500 múslimum, meðal annars börn-
um, í bænum Srebrenica árið 1995.
Grænmetisótti
í Þýskalandi
30. maí
n 21 lést í Þýskalandi eftir að hafa
veikst heiftarlega af völdum ekólísýk-
ingar sem kom upp síðastliðið haust.
Í fyrstu var talið að sýkinguna mætti
rekja til spænskra agúrkna. Svo var
þó ekki og beindist grunurinn þá að
baunaspírum sem ræktaðar voru í
Neðra-Saxlandi.
Júní
Arabíska vorið
1.–30. júní
n Átök í Líbíu, Jemen og Sýrlandi
héldu áfram í júnímánuði. Ráðist var á
forsetahöll Ali Abdullah Saleh, forseta
Jemen, 3. júní og slasaðist forsetinn
lítillega í árásinni.Öryggissveitir Gad-
dafis börðust áfram gegn uppreisnar-
mönnum í Misrata. Þeir svöruðu í
sömu mynt og færðust nær Trípólí.
Öskuský hefur
áhrif á flug
21. júní
n Eldgos í eldfjallinu Puyehue-Cor-
don Caull sem hófst í Chile þann 4.
júní hafði talsverð áhrif á millilanda-
flug. Ekkert var flogið til eða frá stór-
borgunum Sydney og Melbourne í
Ástralíu þennan dag og þá þurfti að
aflýsa flugi til og frá Nýja-Sjálandi.
Grikkir
skera niður
30. júní
n Gríska þingið samþykkti mikinn
niðurskurð á fjárlögum til að komast
hjá þjóðargjaldþroti. Samþykkt var
að hækka skatta og minnka fjárveit-
ingar til opinberra stofnana.
Júlí
Hneyksli News
of the World
7. júlí
n Tilkynnt var að útgáfu News of the
World, eins elsta og vinsælasta dag-
blaðs Bretlands, yrði hætt. Þetta var
gert eftir að upp komst að blaðið
hefði stundað víðtækar símahleranir í
byrjun aldarinnar. Blaðið hafði kom-
ið samfellt út í 168 ár og seldust að
meðaltali 2,8 milljónir eintaka af því í
hverri viku síðustu ár útgáfunnar.
Suður-Súdan
verður sjálf-
stætt ríki
8. júlí
n Suður-Súdanar fögnuðu ákaft í
sumar þegar ríkið varð sjálfstætt.
Blóðug borgarastyrjöld hafði geisað
á milli norður- og suðurhluta lands-
ins og er talið að um 500 þúsund
manns hafi fallið í þeim átökum.
Árið 2005 var skrifað undir friðar-
samning sem batt enda á þau átök.
Konungleg ást Vilhjálmur Bretaprins og Kate Middleton giftu sig við hátíðlega athöfn
síðastliðið vor. Þúsundir manna hylltu brúðhjónin við Buckingham-höll og fylgdust með
ástríkum kossi nýbökuðu hjónanna.
2011: ÁR ILLMENNA
Hosni Mubarak
Harðstjórinn sagði af sér embætti daginn
eftir að hann hafði lýst því yfir að það
myndi hann ekki gera. Þar með lauk 30 ára
valdatíð hans.
Muammar Gaddafi
Gaddafi var eltur um Líbíu áður en mót-
mælendur fundu hann og myrtu. Ófagrar
myndir náðust af síðustu andartökum
einræðisherrans.
Anders Behring Breivik
Fjöldamorðinginn iðrast einskis eftir
ódæðin sem hann framdi. Dómur fellur
í máli hans á nýju ári. Ólíklegt verður að
teljast að hann gangi laus framar.
Kim Jong-Il
Einræðisherrann lést eftir hjartaáfall vegna
of mikillar vinnu, segja ríkisfjölmiðlar í
Norður-Kóreu. Á valdatíma hans glímdi
þjóðin við hungursneyð og bág kjör.
Osama bin Laden
Leit Bandaríkjamanna að hryðjuverka-
leiðtoganum lauk þegar hann fannst í
Pakistan. Barack Obama hefur sagt að
heimurinn sé öruggari eftir fall hans.