Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Síða 32
32 Annáll 30. desember 2011 Áramótablað
Geimferju‑
áætluninni lýkur
21. júlí
n Geimferjan Atlantis kom til jarðar
úr sinni síðustu ferð og var þar með
lokið 30 ára geimferjuáætlun Banda-
ríkjanna. Á þessum 30 árum voru
farnar yfir 130 ferðir út í geim og í
þeim var meðal annars unnið að
smíði Alþjóðlegu geimstöðvarinnar.
77 myrtir í Noregi
22. júlí
n Gríðarleg sorg ríkti í Noregi í sum-
ar þegar Anders Behring Breivik varð
77 einstaklingum, aðallega ung-
mennum, að bana í Osló og Útey.
Breivik vildi berjast gegn „menning-
arlegum marxistum“ og hafði andúð
á fjölmenningarstefnu. Hann hefur
þó aldrei útskýrt nákvæmlega hvað
varð til þess að hann framdi ódæðin.
Mál Breiviks er nú til meðferðar hjá
dómstólum en hann var nýlega úr-
skurðaður ósakhæfur af geðlæknum.
Búist er við að dómur í málinu falli á
fyrstu mánuðum nýs árs.
Ágúst
Lánshæfi Banda‑
ríkjanna lækkar
6. ágúst
n Lánshæfismatsfyrirtækið Stand-
ard & Poors lækkaði lánshæfismat
Bandaríkjanna úr AAA í AA+. Þetta
var í fyrsta skiptið í sögu Banda-
ríkjanna sem lánshæfismat Banda-
ríkjanna fór niður fyrir AAA. Þetta
gerðist aðeins nokkrum dögum eftir
að Barack Obama Bandaríkjaforseti
fékk þingið til að hækka skuldaþak
Bandaríkjanna.
Óeirðir á
Englandi
8. ágúst
n Miklar óeirðir
geisuðu á Eng-
landi síðsumars
og höfðu þær víð-
tæk áhrif í landinu.
Kveikjan að þeim var
dráp lögreglu á Mark Duggan, 29 ára
fjögurra barna föður sem bjó í Tot-
tenham-hverfinu í Lundúnum, sem
var til rannsóknar vegna meintrar
vopnasölu. Óeirðaseggir gengu um
götur borgarinnar, brutust inn í versl-
anir, kveiktu í bílum og beittu ofbeldi.
Uppreisnarmenn
ná til Trípólí
21. ágúst
n Uppreisnarmenn í Líbíu náðu að
berja öryggissveitir Gaddafis Líbíu-
leiðtoga á bak aftur og komast inn í
höfuðborgina Trípólí. Mikill fögnuður
braust út á Græna torginu í borginni.
Bresk yfirvöld sögðu í kjölfarið að að-
eins væri tímaspursmál hvenær Gad-
dafi færi frá völdum.
September
Íshokkílið ferst
í flugslysi
7. september
n Alvarlegt flugslys varð í Rússlandi
þegar farþegaflugvél með rússneskt
íshokkílið innanborðs fórst. 43 létust
í slysinu þar á meðal landsliðsmar-
körður Svía. Vélin var á leið til Hvíta-
Rússlands en hún hrapaði skömmu
eftir flugtak á Tunuoshna-flugvelli,
250 kílómetra norðaustur af höfuð-
borginni Moskvu.
Pútín snýr aftur
24. september
n Vladimír Pútín,
forsætisráðherra
Rússlands, til-
kynnti að hann
ætlaði að bjóða
sig fram sem
næsti forseti
Rússlands. For-
setakosningar fara
fram í mars næstkomandi. Pútín var
forseti Rússlands árin 2000 til 2008
en samkvæmt lögum mátti hann ekki
bjóða sig fram í þriðja sinn. Því lítur út
fyrir að Pútín snúi aftur til æðstu met-
orða í Rússlandi.
Október
Foxy Knoxy
sýknuð
3. október
n Hin bandaríska Amanda Knox,
eða Foxy Knoxy eins og hún var
gjarnan kölluð, var sýknuð af morð-
inu á Meredith Kercher. Áður hafði
Knox verið dæmd í 25 ára fangelsi
fyrir að myrða Kercher árið 2007, en
Kercher var meðleigjandi hennar
meðan þær stunduðu skiptinám á
Ítalíu.
Þrjár konur fá
friðarverðlaun
Nóbels
7. október
n Sá einstæði atburður átti sér stað
að þrjár konur fengu friðarverðlaun
Nóbels. Þetta voru þær Ellen Jo-
hnson Sirleaf, forseti Líberíu, líber-
íski friðarsinninn Leymah Gbowee
og hin jemenska Tawakkul Karman
sem fer fyrir samtökunum Blaða-
konur án hlekkja í heimalandi sínu.
Gaddafi drepinn
20. október
n Muammar Gaddafi, einræðis-
herra Líbíu, var felldur af uppreisn-
armönnum í Sirte í Líbíu. Þar með
var endi bundinn á 42 ára valdatíð
hans en hann tók við embætti árið
1969. Íbúar í Trípólí fögnuðu dauða
Gaddafis ákaft enda stjórnaði hann
með harðri hendi í landinu. Áður
en Gaddafi var felldur hafði stríðs-
glæpadómstóllinn gefið út hand-
23. mars
Stórleikkonan
Elizabeth Taylor fædd
27. febrúar 1932
Taylor lék meðal annars í
stórmyndunum Cleopatra
og Who’s Afraid of Virgina
Wolf. Hún vann tvenn
Óskarsverðlaun fyrir besta leik
í aðalhlutverki. Taylor var góð vin-
kona Michael Jackson sem lést árið 2009.
9. apríl
Bandaríski leikstjórinn Sidney
Lumet fæddur 25. júní 1924
Lumet leikstýrði fjölmörgum stórmyndum
á ferli sínum, til að mynda Serpico, Dog
Day Afternoon og 12 Angry Men sem af
mörgum er talin ein besta kvikmynd allra
tíma. Á ferli sínum leikstýrði hann yfir 40
kvikmyndum og hlaut fyrir þær alls sex
Óskarsverðlaun.
2. maí
Hryðjuverkaleið-
toginn Osama
bin Laden
fæddur 10.
mars 1957
Bin Laden var
leiðtogi al-Kaída
hryðjuverkasam-
takanna og hafði
verið á flótta í rúman
áratug. Bandarískir
sérsveitarmenn drápu
hann í Pakistan.
20. júní
Bandaríski leikarinn Ryan
Dunn fæddur 11. júní 1977
Dunn var einn af meðlimum
Jackass-hópsins sem gert hefur
fjölda kvikmynda og sjónvarps-
þátta. Dunn lést þegar hann
missti stjórn á bifreið sinni í Penn-
sylvaníu-ríki.
23. júní
Bandaríski leikarinn Peter Falk
fæddur 16. september 1927
Falk var einna þekktastur fyrir túlkun sína á
lögreglumanninum Colombo. Hann var 83
ára gamall og hafði þjáðst af Alzheimer um
nokkurt skeið. Falk var eineygður en annað
auga hans var fjarlægt þegar hann fékk
krabbamein í það þriggja ára að aldri.
8. júlí
Betty Ford, fyrrverandi forsetafrú
Bandaríkjanna, fædd 8. apríl
1918
Ford, sem var 93 ára þegar hún
lést, var eiginkona Geralds
Ford sem gegndi embætti
Bandaríkjaforseta frá 1974
til 1976. Gerald Ford lést árið
2006.
23. júlí
Breska tónlistarkonan
Amy Winehouse fædd 14.
september 1983
Hún var einn vinsælasti tónlistar-
maður Bretlands og seldust plötur hennar
í milljónum eintaka. Krufning leiddi
í ljós að hún hafði látist vegna
ofneyslu áfengis.
5. október
Steve Jobs fæddur 24.
febrúar 1955.
Jobs var einn stofnenda
hugbúnaðarrisans Apple.
Jobs lést eftir baráttu við
krabbamein sem hann
greindist með í brisi árið
2004. Jobs hefur oft verið
nefndur faðir heimilistölvunnar.
Jobs stofnaði Apple á áttunda
áratug liðinnar aldar en hrökklaðist
svo frá því nokkru síðar. Hann kom þó aftur
til fyrirtækisins og tók þátt í að gera það að
einu stærsta fyrirtæki heims.
20. október
Muammar Gaddafi, einræðisherra
Líbíu, fæddur 7. júní 1942
Gaddafi var einræðisherra Líbíu í 42 ár en
var drepinn í kjölfar uppreisnar í landinu.
4. nóvember
Bandaríski fjölmiðla-
maðurinn Andy Rooney
fæddur 14. janúar 1919
Rooney var einna
þekktastur fyrir pistla sína
í fréttaskýringaþættinum
60 mínútur sem hann flutti
í fjöldamörg ár. Rooney hafði
ákveðið að setjast í helgan stein mán-
uði fyrir andlát sitt.
7. nóvember
Hnefaleikakapp-
inn Joe Frazier
fæddur 12.
janúar 1944.
Frazier er
af mörgum
talinn einn
besti hnefa-
leikakappi
sögunnar og
var hann til
að mynda sá
fyrsti til að sigra
Muhammed Ali.
Frazier og Ali mættust
í hringnum þrisvar en Frazier
tapaði næstu tveimur viðureignum. Hann
greindist með krabbamein í lifur
sem dró hann að lokum til
dauða.
27. nóvember
Gary Speed,
landsliðsþjálfari
Wales í knatt-
spyrnu,
fæddur 8.
september
1969
Speed var einn leikjahæsti
leikmaðurinn í sögu ensku úrvals-
deildarinnar og mjög virtur fyrir
störf sín í þágu knattspyrnunnar.
Speed fannst látinn á heimili sínu en
hann svipti sig lífi.
15. desember
Breski rithöfundurinn, gagn-
rýnandinn og blaðamaðurinn
Christopher Hitchens fæddur 13.
apríl 1949
Hitchens var þekktur fyrir trúleysi sitt og
gaf út bókina Guð er ekki góður árið 2007.
Hitchens lést úr lungnabólgu en hann hafði
glímt við krabbamein.
17. desember
Kim Jong-il, einræðisherra Norður-
Kóreu, fæddur 16. febrúar 1941
Kim tók við embætti af föður sínum árið
1994 en talið er að hann hafi látist af
völdum hjartaáfalls.
17. desember
Tónlistarkonan Cesária Évora fædd
27. ágúst 1941
Cesaria var frá Grænhöfðaeyjum og var
mikilsvirt fyrir tónlist sína. Hún hélt
tónleika á Íslandi árið 2000 og aftur árið
2002.
18. desember
Václav Havel, fyrrverandi forseti
Tékklands, fæddur 5. október 1936
Havel var fyrsti lýðræðislega kjörni forseti
Tékklands og var hann einn af skipuleggj-
endum flauelsbyltingarinnar svokölluðu.
Byltingin markaði meðal annars upphafið
að falli Sovétríkjanna. Havel var mikilsvirt
leikskáld á árum áður og beitti óspart
pólitískum áróðri í verkum sínum.
Þau kvöddu á árinu 2011