Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Qupperneq 36
36 Annáll 30. desember 2011 Áramótablað
1. Ágúst – DV„Ég hef þá bara misskilið mig.“
Vitnisburður Hildar Lífar Hreinsdóttur
við aðalmeðferð í máli yfir Black Pistons-
mönnum vakti sérstaka athygli þar sem hún
hafði gefið önnur svör í skýrslutöku hjá lög-
reglu. Saksóknari benti henni á misræmið
en Hildur þrætti fyrir það og sagði: „Ég hef
þá bara misskilið mig.“
2. Desember – DV„Við Jóna erum búin að vera í
sorgarferli alla helgina.“
Hjónin Kristján
Jóhannsson
og Sigurjóna
Sverrisdóttir
ræddu við
blaðamann DV
skömmu fyrir
jól. Þar barst
meðal annars
í tal tilkynning
þess efnis að
fyrirhuguðum tónleikum Kristjáns Jóhanns-
sonar og Elenu Mosuc væri aflýst. Kristján
sagði að hann hefði verið með flottustu
dívu heims í dag og hljóðfæraleikara úr
Sinfóníuhljómsveit Íslands með honum í
þessu og þau hefðu unnið að þessum tón-
leikum frá því í febrúar. „Ástandið í landinu
er þannig og við fengum ekki neinn stuðning
til að fjármagna þetta. Það kom í ljós að
innkoma af seldum miðum hrökk ekki til,“
sagði Kristján.
3. Desember – DV„Ég er á móti
óþarfa ofbeldi.“
Í viðtali við DV sagði
Einar „Boom“ Mar-
teinsson, forseti Hells
Angels, að lífssýn
hans samræmdist
ekki hefðbundnum
hugmyndum fólks
um hvernig haga ætti
sínu lífi. Hann lifði eftir eigin reglum.
4. Ágúst – DV„Núna nota ég trikkið sko, þeir
eru að fara að blása þetta upp, að
það hafi verið
eitthvað elítu-
boð á Hafsúl-
unni.“
Stjórnendur
tónlistar- og
ráðstefnuhússins
Hörpu leigðu
skipið Hafsúluna
fyrir einkaveislu á
Menningarnótt. Tónlistarstjórinn Steinunn
Birna Ragnarsdóttir lét þessi orð falla
þegar hún hélt að hún hefði slitið símtali við
blaðamann en hún var innt eftir því hvort
einkaveisla hefði verið um borð.
5. Maí – RÚV„Jáááá, ég trúi þessu ekki. Ég er
að fara að gráta.“
Nýi Eurovision-þulurinn, Hrafnhildur Hall-
dórsdóttir, gersamlega trylltist eftir að
tíunda umslagið var opnað á fyrra undan-
úrslitakvöldi keppninnar en þar var Ísland.
Óhætt er að segja að íslenska þjóðin hafi
verið látin bíða í ofvæni eftir úrslitunum og
margir orðnir svartsýnir þegar búið var að
lesa upp nöfn níu landa og Íslendingar voru
ekki þar á meðal.
6.Apríl – jonas.is „Heimsk þjóð fær það ástand,
sem hún á skilið.“
Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri,
um það ástand sem hann taldi að myndi
skapast hér í kjölfar þess að Íslendingar
höfnuðu Icesave-samningunum.
7. Október – DV„Eggjakast er ekki meinlaus
iðja.“
Svanur Sigurbjörnsson læknir sagði að
mjög illa hefði getað farið þegar Árni Þór
Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, fékk
egg í höfuðið og féll í götuna þegar þing
kom saman.
8. Febrúar – Mbl.is„Ég myndi segja bara að fólk
með sínar grúppur geti halt sín
eigin partí.“
Stöllurnar og glamúrmódelin Hildur Líf og
Lilja Ingibjargar urðu ansi umdeildar þegar
þær sögðu frá
VIP-partíi sem
þær voru að
skipuleggja.
Teitið var lokað
almenningi
vegna þess að
þær töldu skorta
alla VIP-menningu í íslensku skemmtanalífi
og „alvöru atburð þar sem aðeins þetta fólk
kemur og hinir fá ekki aðgang“.
9. Október – DV
„Mig langar ekki
aftur í þetta líf.“
Jón Ásgeir Jóhannes-
son athafnamaður
í opinskáu viðtali
í DV þar sem hann
sagði að það hefðu
verið mistök að eiga
banka og halda
áfram að fjárfesta á
Íslandi. Hann játaði að hafa misst sjónar á
góðum gildum, teygt sig of langt og að hann
hefði átt að segja stopp árið 2005.
10.September – DV„Fær fólkið ekki örugglega
lýsi?“
Dorrit Moussaieff forsetafrú spurði
Ásgerði Jónu Flosadóttur, formann Fjöl-
skylduhjálpar Íslands, þegar hún heimsótti
Fjölskylduhjálpina.
11. September – btb.is „Aðspurður svara ég því m.a.
að mér er vel ljóst að margir eru
reiðir útí mig á Íslandi vegna aðild-
ar minnar að bankakennslunni og
hruninu en þó er enginn reiðari
Björgólfi Thor en ég sjálfur.“
Björgólfur Thor Björgólfsson skrifaði á
bloggsíðu sína að hann hefði sagt í viðtali
við danskt blað að hann gerði sér grein fyrir
að margir væru honum reiðir.
12. Októ-ber
– blog.eyjan.
is/baldurkr/
„Ég fylltist
óhug yfir
sjónvarpinu í
gær og sit
hér morgun-
inn eftir sem
lamaður.
Hvílík skepna hefur þessi biskup
verið.“
Baldur Kristjánsson, sóknarprestur í
Ölfusi og fyrrverandi aðstoðarmaður Ólafs
Skúlasonar biskups, skrifaði þetta á blogg
sitt.
13. September – Morgunútvarpið„Ég er nú bara ráðherraræfill á
plani … Mér fannst þetta ósann-
gjarnt gagnvart Steingrími.“
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra um
ummæli forseta Íslands um fjármálaráð-
herra en Össur sagði ummælin stórskota-
árásir á Steingrím.
14. September – DV„Ég mun vera vinur ykkar að
eilífu.“
Auðkýfingurinn og ævintýramaðurinn
Huang Nubo vildi kaupa Grímsstaði á
Fjöllum og byggja þar lúxushótel en fékk
synjun. Í viðtali við DV sagðist hann ekki
vera hættulegur.
15. Ágúst – sigmundurdavid.is„Jæja, þá er komið að því. Á
morgun byrja ég fyrir alvöru í megr-
unarkúr sem ég hlýt að kalla ís-
lenska kúrinn því hann felst í því að
borða bara íslenskan mat.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður
Framsóknarflokksins, var orðinn 108 kíló
þegar hann ræddi við meltingarlækni, sem
fullvissaði hann um að íslensk matvæli
væru þau hollustu sem fyrirfinnast.
16. Júlí – stjornlagarad.is„Já.“
Stjórnlagaþingsmenn þegar þeir sam-
þykktu einróma tillögu að nýrri stjórnarskrá.
17. Ágúst – DV
„Ég er bú-
inn að vera
að díla við
streit, hvíta
karlmenn
frá blautu
barnsbeini og er ég með fordóma ef
ég loksins fer að setja þeim mörk?“
Páll Óskar lét þau ummæli falla að það
væri engu líkara en að það eina sem fengi
að vera í friði í þessum heimi væri hvítur
gagnkynhneigður karlmaður í jakkafötum,
hægrisinnaður og ætti peninga. Ummælin
vöktu mikil viðbrögð í netheimum. Flestir
fögnuðu þeim en sumir vildu þó túlka orð
Páls Óskars þannig að hann væri sjálfur
fordómafullur.
18.
Nóvem-
ber – DV
„Ég varð
pirraður
og hrækti
á gólfið.“
Jón stóri
var sagður
hafa hrækt
framan í þjónustustúlku á T.G.I. Friday’s
í Smáralindinni þegar hún bað hann og
félaga hans að færa sig. Hann sagðist hafa
orðið pirraður út í þjónustustúlkuna og
sagði hana vera hrokafulla.
Fleyg ummæli
ársins 2011
n Fleygustu ummæli ársins koma úr ýmsum áttum og féllu við ýmis tækifæri. Þau spanna allt frá
orðum sem sögð voru í dómsal til ræðu á Alþingi og eru jafn mismunandi og þau eru mörg.