Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Síða 42
42 Kvikmyndir 30. desember 2011 Áramótablað
Þessar verða í bíó 2012
The Avengers
Leikstjóri: Joss Whedon Leikarar: Robert
Downey Jr., Chris Evans, Chris Hemsworth, Tom
Hiddleston, Samuel L. Jackson, Scarlett Johanson,
Jeremy Renner Frumsýnd í BNA: 4. maí
n Byggð á samnefndum teiknimynd-
um þar sem ofurhetjurnar Thor, Iron
Man, Hulk og Captain America ásamt
þeim Black Widow og Hawkeye sam-
einast gegn ásnum Loka í risastórri
ofurhetjumynd sem nördahetjan Joss
Whedon leikstýrir. Verður vafalaust
ein af vinsælli myndum ársins.
The Amazing
Spider-Man
Leikstjóri: Marc Webb Leikarar: Andrew
Garfield, Emma Stone, Rhys Ifans, Denis Leary,
Sally Field, Martin Sheen Frumsýnd: 6. júlí
n Eftir að hætt var við að gera fjórðu
Spider-Man myndina með Sam
Raimi var ákveðið að byrja upp á nýtt
í staðinn. Þessi fjallar um uppruna og
unglingsár Peter Parker og skartar
hinum unga og efnilega Andrew
Garfield (The Social Network, Never
Let Me Go) í aðalhlutverkinu.
Lincoln
Leikstjóri: Steven Spielberg Leikarar: Daniel
Day-Lewis, Joseph Gordon-Levitt, Tommy Lee
Jones, Jackie Earle Haley, Sally Field, Jared Harris
Frumsýnd í BNA: Desember 2012
n Daniel Day-Lewis og Steven
Spielberg sameinast hér í mynd um
Lincoln Bandaríkjaforseta og sigur
norðurríkjanna í þrælastríðinu.
The Hunger Games
Leikstjóri: Gary Ross Leikarar: Jennifer Lawrence, Josh Hutcherson, Liam
Hemsworth Frumsýnd: 23. mars
n Byggð á vinsælum unglingabókum eftir Suzanne
Collins sem gerast dystóp íska framtíðarríkinu Panem.
Segir frá 16 ára stúlku sem tekur þátt í „hungurleikunum“
svokölluðu, þar sem keppendur berjast upp á líf og
dauða í beinni sjónvarpsútsendingu.
Tinker Tailor Soldier Spy
Leikstjóri: Tomas Alfredson Leikarar: Gary Oldman, Colin Firth, Tom Hardy,
John Hurt, Toby Jones, Mark Strong, Ciarán Hinds Frumsýnd: 6. janúar
n Segir frá reyndum njósnara í Kalda stríðinu sem reynir
að hafa upp á sovéskum gagnnjósnara innan vébanda
MI6. Byggð á samnefndri sögu John Le Carré, en það er
hinn sænski Tomas Alfredson (Låt den rätte komma in)
sem leikstýrir.
Skyfall
Leikstjóri: Sam Mendes Leikarar: Daniel Craig,
Helen McCrory, Javier Bardem Frumsýnd: 26. okt.
n 23. myndin um njósnara hennar
hátignar og Daniel Craig stefnir hrað-
byri að því að verða einn vinsælasti
Bondinn frá upphafi. Nú bætist
Javier Bardem í hópinn og ekki er
leikstjórinn heldur af verri endanum.
The Dictator
Leikstjóri: Larry Charles Leikarar: Sacha Baron
Cohen, Anna Faris, John C. Reilly Frumsýnd: 18. maí
n Sacha Baron Cohen leikur skraut-
legan einræðisherra frá miðaustur-
löndum sem heimsækir New York.
Hann hættir lífi sínu til að tryggja
það að lýðræði nái ekki fótfestu í
heimalandi sínu.
The Hobbit
Leikstjóri: Peter Jackson Leikarar: Martin
Freeman, Ian McKellen, Richard Armitage,
Benedict Cumberbatch, Christopher Lee, Hugo
Weaving, Cate Blanchett Frumsýnd: 26.
desember
n Peter Jackson snýr aftur til Mið-
garðs og kvikmyndar Hobbitann,
sem segir frá ævintýrum Bilbós
Bagga, 60 árum á undan atburðum
Hringadróttinssögu.
Total Recall
Leikstjóri: Len Wiseman Leikarar: Colin
Farrell, Bryan Cranston, Bokeem Woodbine
Frumsýnd í BNA: 3. ágúst
n Gerð eftir sögu Philips K. Dick
og segir frá verkamanni (Farrell)
sem uppgötvar að hann er í raun
njósnari. Árið 1990 lék Arnold
Schwarzenegger aðalhlutverkið
í mynd byggðri á sömu sögu.
The Iron Lady
Leikstjóri: Phyllida Lloyd Leikarar:
Meryl Streep, Jim Broadbent and Richard
E. Grant Frumsýnd: 13. janúar
n Segir frá lífi eins áhrifa-
mesta stjórnmálamanns 20.
aldarinnar. Margaret Thatcher
var forsætisráðherra Bret-
lands á 9. áratugnum og var
fyrsta konan til að gegna því
embætti. Meryl Streep hefur
nú þegar verið tilnefnd til
Golden Globe verðlauna fyrir
túlkun sína á Thatcher og er
sterklega orðuð við Óskars-
verðlaunin.
Contraband
Leikstjóri: Baltasar Kormákur Leikarar: Mark
Wahlberg, Giovanni Ribisi, Kate Beckinsale, Ben
Foster Frumsýnd: 20. janúar
n Stærsta mynd Baltasars Kormáks
í Hollywood til þessa. Byggir á mynd
Óskars Jónassonar, Reykjavík-
Rotterdam. Mark Wahlberg leikur
fyrrverandi smyglara sem neyðist til
að bjarga mági sínum og fjölskyldu
frá glæpahring með því að taka að
sér eitt verkefni í viðbót.