Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Page 53
53Áramótablað 30. desember 2011
Skemmtileg og fræðandi
en bætir litlu við söguna
„Helgi hittir í mark“
Á rauðum sokkum
Baráttukonur segja frá
Það besta við áramótin?
S
ólveig Ólafsdóttir,
framkvæmdastjóri
ReykjavíkurAka
demíunnar, er sagn
fræðingur að mennt
með meistaragráðu í menn
ingarstjórnun frá Háskól
anum á Bifröst. Hún telur
menningarneyslu Íslendinga
á liðnu ári hafa tekið mark
verðum breytingum og segist
halda að eftir sjálfsmyndar
hrun séu þeir smátt og smátt
að heimta aftur sjálfsvirð
ingu sína á nýjum og sterkari
grunni.
„Við förum á hnén á næsta
ári,“ segir Sólveig og skellir
upp úr. „Það er vegna þess
að við höfum séð og fundið
fyrir auðmýkt. Mugison sýndi
það og sannaði fyrir þjóðinni
að við eigum hana til. Þetta
voru þakkartónleikar og ein
faldur gjörningur en ég held
að áhrifin séu víðtækari en
okkur grunar. Árið hjá Hörpu
hefur verið brösótt, hvert
klúðrið rak annað og þeir
virtust aldrei ætla að ná takt
inum. Með tónleikum Mugi
son náðist ákveðin sátt og
friður um þetta menningar
hús. Og Mugison er táknrænn
fyrir fleira sem er á auknu
skriði í menningunni, sem
er handverkið. Hann föndrar
hvert umslag og fær við það
aðstoð. Handverkið og auð
mýktin fara saman því þegar
við hlýddum á þessa tónleika
þá fannst okkur við eignast
hlutdeild í Hörpu. Rétt eins
og þeim sem aðstoða Mugi
son finnst þeir eiga hlutdeild
í verkum hans.“
Krefjumst innihalds
Sólveig heldur að fyrstu
skrefin verði erfið. „Við erum
svo óskaplega vön því að
geta gengið að ákveðnum
hlutum.“
Lífsstílsbækur seljast ekki
jafn vel og áður, af hverju tel
ur þú að það sé?
„Hrunið var miklu frekar
hrun sjálfsmyndar en nokk
urn tímann efnahagshrun,“
segir Sólveig. „Þegar sjálfs
myndin brotnar viljum við
í fyrstu fá veröldina aftur í
þeirri mynd sem hún var. Þá
sækjum við í einfaldar lausn
ir. Þetta sást vel eftir hrun í
því að við snerum okkur að
sláturgerð og þjóðarróman
tík og lífsstílsbækur seldust
grimmt. En nú erum við búin
að læra ný orð og hugtök og
ekki síst hvernig við eigum
að nota þau. Spilling er eitt
þeirra orða sem við erum
að læra að nota. Við gátum
það aldrei áður, það var fjar
stæðukennt fyrir hrun. Þetta
á líka við um menninguna.
Þar erum við farin að krefjast
innihalds og kjarna sem við
tengjum okkur við.“
Hvað gerist næst?
„Ég er ansi hrædd um að
sýningin hans Kjartans
Ragnarssonar floppi,“ segir
hún. „Við erum miklu kröfu
harðari en áður og gamlar
aðferðir nýtast okkur ekki
lengur. Þetta er auðvitað
bara tilfinning mín að fólk
hafni þessu verki. Ég held
líka og vona að við látum af
andlausri orðfimi og kald
hæðni. Sif Sigmarsdóttir
skrifaði um það ágætan pistil
í Fréttablaðið nýverið. Mað
ur kallar mann vitleysing hét
sá pistill og fjallaði vel um
þetta innihaldsleysi sem ein
kennir orðræðuna. Í þessu
ljósi er augljóst hversu mikil
væg auðmýktin er.“
Hún segir valdakerfi
menningar einnig vera að
flosna upp. „Þróunin er í
þá átt að við losum okkur
við þarflaus kerfi sem eru
hjartalaus. Sú þróun leið
ir beint af því að við gerum
kröfur. Við viljum ekki að list
og menning verði til á skrif
stofu frá 9–5 undir einhverri
miðstýringu. Menning er og
verður vera samofin öllu því
sem við tökum okkur fyr
ir hendur. Menning er að
leggja hug við hönd og gera
hlutina vel.“
Hvert stefnum við?
Sólveig Ólafsdóttir
Við förum á hnén
þess kerfis sem hér hefur
þróast. Kannski er þetta allt
saman jákvætt, að keppa í því
hver á stærsta „jáið“. Það þarf
þó að horfast í augu við þenn
an veruleika, nema menn
séu almennt orðnir blindir og
heyrnarlausir af jákvæðni. Það
er ekkert öflugra þöggunar
tæki til en jákvæðniþulur, fyrst
þagga menn niður í öðrum
og síðan sjálfum sér. Í þessari
hugmyndafræði virðist lista
eða sköpunarspriklið gegna
lykilhlutverki.“
Nauðsynlegt að vakna
Hannes segir að einnar skýr
ingar á þessari ríkjandi logn
mollu sé að finna í hvítri lygi
sem Íslendingar vilji svamla
í. „Þetta er hluti af gömlu ís
lensku þjóðarlyginni að við
séum einhvers konar heims
veldi. Þetta er blekking sem
við viljum halda uppi og er
hluti af eilífri sjálfstæðisbar
áttu okkar og þjóðernispoppi.
Íslendingar eiga að telja sér trú
um að þeir séu á einhvern hátt
ósigrandi, engir menn séu jafn
þrautseigir og úrræðagóðir,
æðruleysi þjóðarinnar slær út
allt sem annars staðar þekk
ist.“ Hann segir Íslendinga
hafast við á bleiku skýi sem sé
samofið sjálfsvitund þeirra.
„Er ekki kallað að menn séu
á bleiku skýi? Ég tel svo vera
og ég held það sé nauðsynlegt
að vakna, línan milli draums,
jafnvel þótt hann virðist bleik
ur, og martraðar er oft afar
mjó.“
Ætlar þú að leggja eitthvað
af mörkum í þessari vakningu?
Kannski var sýningin
Koddu einmitt lóð á þá vogar
skál, en sköpunargeirinn vill
trúlega ekki láta vekja sig að
minnsta kosti ekki með lát
um. Umræða og greining er
nauðsynlegt framhald. Það
er áhugavert að sjá hvern
ig alþjóðleg hugmyndafræði
kristallast í tiltölulega ýktum
myndum í íslensku samhengi,
þessari vasaútgáfu vestrænna
samfélaga. Við sem stóðum
að Koddudæminu erum nú
að reyna að efna til alþjóð
legrar ráðstefnu um innviði
sköpunarmaskínunnar og
framtíðarhorfur og hlutverk
listsköpunar í því samhengi.
Hugmyndafræði sköpunar
bransans nær út í öll horn sam
félagsins í senn ósýnileg og
alltumlykjandi hluti af stjórn
og valdakerfinu. Mig minnir
að 50 þúsund hafi verið fram
lag hins opinbera til Koddu
sýningarinnar, sem þó var ein
stærsta sýning síðasta árs og
fjallaði reyndar um birtingar
myndir umgangsins og hruns
ins, tengsl myndmáls og valds.
Það mætti kalla þessa litlu fjár
veitingu þöggun í vissu sam
hengi. En það má ekki gleyma
því að við lifum á öld jákvæðn
innar, menn gætu hafa fengið
þá flugu í höfuðið að eitthvað
„neikvætt“ væri í uppsiglingu.
Allir ærlegir menn hljóta að
velja draumlíf fram yfir mar
tröð. Að vísu var Koddusýning
in bæði jákvæð og uppbyggileg
þegar á reyndi, þannig að við
búumst við jákvæðni í fram
haldinu, við sjáum hvað setur.“
Lífsstíll lákanna
Spurður um fall lífsstílsbóka
árið 2011, segir hann markað
inn einfaldlega mettan í bili.
„Ég held að inntak þessara
bóka hafi flætt út í samfélagið
og mettað markaðinn. Þessar
lífsstílsbækur endurspegla
vissa leit að einhverju og með
an menn hafa einhvern áhuga
á því þá er einhver von.
Leitin er mikilvæg. Það er
svo margt í uppnámi í þessu
samfélagi. Það eru kynjahlut
verkin. Menn vita ekki einu
sinni hvort menn eru karlar
eða konur lengur. Hvernig
stendur á því. Karlar orðnir
kvenlægir og konur karllægar.
Eru einhver kyn lengur til?
Þetta eru erfiðar spurningar
sem menn standa frammi fyr
ir.“ Hann segir listir horfnar í
gamla skilningnum og það sé
hreint offlæði af listamönnum.
„Listamenn nútímans
eru í leit. Þeir vita ekki sjálf
ir hvort þeir eru tónlistar
menn, ljóðskáld, myndlistar
menn, skemmtikraftar; flestir
vita ekki lengur hvort þeir
eru skrifstofumenn og heið
virðir borgar eða bara lista
menn. Menn eru orðnir eigin
lega allt. Öll mörk eru í móðu
og um leið sjáum við umbun
ar og framgangskerfin riðlast.
Það eru dæmi um það að mið
aldra ríkisstarfsmenn taki sig
til, setjist niður og skrifi fag
urbókmenntir sem síðan eru
sagðar fara sigurför um heim
inn eins og ekkert sé sjálfsagð
ara. Þetta gerist á sama tíma
og listin og sköpunariðjan er
iðnvædd. Það er vert að hafa
í huga að „list“ í gamla skiln
ingnum er aðeins lítið brot af
nútímasköpunariðnaði eða
nýsköpun. Þú talaðir áðan um
sjálfshjálparbækur, ég er nokk
uð sannfærður um að flestar
berja þær sköpunar og ný
sköpunarbumburnar. Í þessu
samhengi læðist að mönnum
sá grunur að „list“ og „lista
menn“ séu eins konar svartálf
ar eða lákar sem ekkert erindi
eigi upp á dekk í nútímasköp
un.“
Hvað sérðu framundan,
nýja möguleika?
„Ég held það sem almennt er
framundan sé að menn eru
að leita að einhverjum trú
verðugum lífsstíl miðað við
núverandi aðstæður í heim
inum, til dæmis í ljósi þverr
andi auðlinda, firringu og og
vaxandi tómhyggju neyslu
samfélagsins. Kannski er
það hlutverk listamanna að
benda á nýja möguleika til
að lifa af í framtíðinni, bæði
í efnislegum og andlegum
skilningi. Þeir sem vilja ekki
lengur vera hirðfífl heldur
breyta einhverju í gangi sam
félagsins eða heimsins. Það
eru vísar um þessar breyt
ingar hér og þar, þarna eru
sóknarfærin eða leiðin sem
hreinlega blasir við. Þarna
má sjá örla á trú listamanns
ins á eitthvað annað og betra
og fyllra en hjakkið í hinu
fullkomna sköpunarsam
félagi þar sem menn æra
hverjir aðra í taugaveiklaðri
jákvæðni og frjálshyggju.“
Verst á árinu 2011
Kexvexsmiðjan
Laugardagar eru grábölvaðir á
Ríkissjónvarpinu og þeir grínþættir
sem hafa verið settir á dagskrá
þann daginn hafa
allir fallið.
Umtöluð var
Hringekjan
á síðasta
ári en
enn verra
umtal
fékk
grínþáttur
Gísla
Rúnars Jóns-
sonar, Kexvex-
smiðjan, og netið
logaði í skítkasti.
Þættirnir þóttu
hótfyndnir,
grófir og
óskiljan-
legir.
Bras í
Hörpu
Smíði
Hörpu
þótti
íslenskum
málmiðn-
aðarmönnum
hrákasmíð. Made
in China vildu þeir
láta grafa í skilti og festa
upp við húsið. Meira var þó deilt
á starf hússins. Tónlistarmenn
deildu á hversu dýrt væri að
halda þar tónleika: „Ekki
fyrir venjulega tónlistar-
menn,“ sögðu einhverjir
þeirra. Hljóðkerfið þótti
gallað og starfið þótti
illa hugsað. Engin eining
ríkti um þetta nýja menn-
ingarhús okkar Íslendinga
sem var dýru verði keypt og
hæðst að ljósaskrauti bygg-
ingarinnar sem var fagnað með
flugeldasýningu í haust. Í lok
ársins náði þó tón-
listarmaðurinn
Mugison að
breiða út
auðmýkt
og
hjarta-
hlýju
með
ókeypis
þakk-
artón-
leikum
sem
markar
vonandi nýtt
upphaf hússins.
Tónleikar þessir
voru í fullkominni and-
stöðu við opnunartónleika sem
stjórnendur hússins héldu þar sem
stór hluti gesta var á leynilegum
gestalista.
Fall lífsstílsbóka
Síðustu þrjú ár
hafa lífsstíls-
bækur selst í
bílförmum.
Svo var
ekki í ár.
Hannes
Lárusson
segir fall
vinsælda
þessara
bóka ekki
endilega merki
um að við stefnum
hærra. Markaðurinn
er einfaldlega mettur. Efni
lífsstílsbókanna hefur lekið út í
samfélagið.
Blendið ár í
kvikmynda-
gerð
Hrafnhildur
Gunnars-
dóttir,
formaður
félags
kvikmynda-
gerðar-
manna, segir
mörg verkefni
ekki hafa farið
í gegn vegna fjár-
skorts. „Það voru ekki mörg verk-
efni sem voru sett í gang á árinu og
mörg dóu vegna fjárskorts. En árið
í ár var gott uppskeruár fyrir ís-
lenska kvikmyndagerð, fólk verður
hins vegar að átta sig á því að
það voru verkefni sem voru
sett í gang fyrir þremur til
fimm árum og ég held að
kvikmyndagerðarmenn
og Íslendingar geti verið
ánægðir með þá upp-
skeru.Við gerðum svo
fjögurra ára samkomu-
lag við ríkið. Botninum
er náð og við sjáum fram á
magurt ár á næsta ári.“
Stjórnarskráin í
sjónvarpinu
Stjórnarskrá
lýðveldisins
Íslands var
flutt sem
tón-
listar- og
myndlist-
argjörn-
ingur í
útsendingu
í Ríkis-
sjónvarpinu
og féll misvel
í landann sem
reyndist ekki nógu
læs á menningu til að meta
verkið. Höfundar
verksins eru
Libia Castro
og Ólafur
Ólafsson.
Árið 2007
fengu þau
til liðs
við sig
Karólínu
Eiríksdóttur
tónskáld
sem samdi
tónverk við 81. grein
stjórnarskrár Íslands. Þau voru
síðan fulltrúar Íslands á
Feneyjatvíæringnum
þar sem verkið
féll gestum í
geð og eiga
þau því
heima
bæði á
lista yfir
það sem
vel tókst
og þess
sem illa
tókst á árinu.
Listamönn-
um úthýst úr
listasögunni
Á árinu kom út ný bókaröð
í fimm bindum, Íslensk listasaga.
Ólafur Kvaran safnstjóri ritstýrði
14 höfundum sem hver fyrir sig
tók fyrir ákveðið skeið í listasögu
landsins.
Markmiðið var að
þeirra sögn, að
gera grein fyrir
sögu íslenskrar
myndlistar
og styrkja
og móta
hugmyndir
þeirra sem
lesa um
myndlist
þjóðarinnar,
sameiginlega
arfleifð hennar
og sjálfsmynd.
Athygli hefur vakið að
hvergi í þessum fimm ritum
er minnst á eina helstu listakonu
landsins, Karólínu Lárusdóttur.
Þá gekk listi með nöfnum lista-
manna manna á milli sem ræddu
efnistök bókarinnar og ljósmynd-
urum voru ekki gerð skil. Þessi
voru á meðal þeirra sem ekki var
getið: Ingibjörg Jónsdóttir, Guðrún
Vera Hjartardóttir, Guðný Rósa
Ingimarsdóttir, Ilmur Stefáns-
dóttir, Páll á Húsafelli, Aðalheiður
S. Eysteinsdóttir, Jón Laxdal,
Harpa Björnsdóttir, Valgerður
Guðlaugsdóttir, Elsa D. Gísladóttir,
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Didda og
Þórunn Hjartardætur, Anna Hallin,
og Birta Guðjónsdóttir.
Helgi Björns
syngur íslenskar dægurperlur ásamt gestum
„Maturinn, klárlega! Eina skiptið á árinu sem ég fæ fondú og
ég myndi fyrr sleppa rjúpunum á aðfangadag en fondúinu.“
Edda Sif Pálsdóttir, íþróttafréttakona á RÚV