Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Page 70
70 Lífsstíll 30. desember 2011 Áramótablað
Von á tvíburum Leikarap-
arið Tinna Hrafnsdóttir og Sveinn
Geirsson eiga von á sínum fyrstu
börnum á nýju ári en Tinna er ófrísk
að tvíburum.
Fjölgun í fjölskyldu forsetans
Tinna Ólafsdóttir og eiginmaður
hennar, Karl Pétur, eiga von á
tvíburum á nýju ári en þau eiga tvær
dætur fyrir.
Tvíburar á leiðinni Katrín
Júlíusdóttir iðnaðarráðherra á von á
tvíburum ásamt eiginmanni sínum,
Bjarna Bjarnasyni.
Fyrsta barn á leiðinni
Sigmundur Davíð og eiginkona hans,
Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eiga von
á sínu fyrsta barni.
Hamingja Fyrirsætan og fegurðar-
drottningin Ingibjörg Egilsdóttir á
von á sínu fyrsta barni með kærast-
anum, Þorsteini Jónssyni, oftast
kenndum við Kók.
Boltabarn Knattspyrnukon-
urnar Ólína G. Viðarsdóttir og Edda
Garðarsdóttir eiga von á barni á
næsta ári. Það er Ólína sem gengur
með barnið sem varð til í glasa-
frjóvgunarmeðferð.
Stórfjölskylda Söng- og leik-
konan Íris Kristinsdóttir á von á
tvíburum. Íris og unnusti hennar,
Grettir Adolf Haraldsson bygginga-
tæknifræðingur, eiga von á fimmta
og sjötta barninu í apríl.
Lítill herramaður Glamúr-
fyrirsætan Kristrún Ösp á von á
sínu fyrsta barni á næsta ári en lítill
herramaður er á leiðinni í heiminn.
Tónlistarbarn Söngkonan
Ragnheiður Gröndal og unnusti
hennar, gítarleikarinn Guðmundur
Pétursson, eiga von á sínu fyrsta
barni í vor.
Sjötta barnið á leiðinni Söng-
konan Erna Hrönn Ólafsdóttir á tvö
börn og kærasti hennar þrjú. Erna á
að eiga í febrúar og því er sjötta barn
þeirra á leiðinni.
Nýgift og ófrísk Fréttakonan
María Sigrún Hilmarsdóttir á von á
sínu fyrsta barni á næsta ári með
eiginmanni sínum, Pétri Árna Jóns-
syni útgefanda. Hjónakornin gengu í
það heilaga í sumar.
Leikarabarn Leikaraparið Esther
Talía Casey og Ólafur Egill Ólafsson
eiga von á barni í janúar en þau eiga
fyrir eina dóttur, Ragnheiði Eyju,
fjögurra ára.
ÓFRÍSKAR Á ÁRINU
Fjögur börn Bjarni Benediktsson
og eiginkona hans, Þóra Margrét
Baldvinsdóttir, eignuðust sitt fjórða
barn í september.
Hamingja Hinn færeyski Jógvan
Hansen og kærasta hans, Hrafn-
hildur Jóhannesdóttir, eignuðust son
í byrjun desember.
Leikarabarn Leikaraparið Gísli
Örn Garðarsson og Nína Dögg
Filippusdóttir eignuðust son í lok
nóvember. Fyrir áttu Gísli og Nína
dótturina Rakel Maríu sem er fimm
ára.
Bæjarstjóraafabarn Söngkonan
Védís Hervör eignaðist sitt annað
barn þann 21. desember. Védís og
unnusti hennar, Þórhallur Berg-
mann, áttu fyrir soninn Árna.
Hárprúð eins og pabbi Tón-
listarmaðurinn Eyþór Ingi Gunn-
laugsson eignaðist sitt fyrsta barn
þann 9. nóvember ásamt kærustu
sinni, Soffíu Ósk. Í viðtali við DV
stuttu eftir að frumburðurinn kom í
heiminn sagði Eyþór Ingi að dóttirin
væri hárprúð líkt og pabbinn.
Blaðamannastrákar Blaða-
mennirnir og hjónin Andrés Magnús-
son og Auðna Hödd Jónatansdóttir
eignuðust tvíburastráka um miðjan
desember.
Íþróttabarn Afreksíþróttakonan
Silja Úlfarsdóttir eignaðist sinn
annan son í september. Silja og
maður hennar, júdókappinn Vignir
Grétar Stefánsson, áttu fyrir soninn
Sindra Dan. Sá stutti hefur fengið
nafnið Snævar Dan.
Þriðji strákurinn Katrín Jakobs-
dóttir menntamálaráðherra og
eiginmaður hennar, Gunnar Sig-
valdason, eignuðust þriðja soninn í
sumar. Strákarnir heita Ármann Áki,
Illugi og Jakob.
Dugnaður Blaðamaðurinn og rit-
stjórinn fyrrverandi Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir eignaðist sitt þriðja
barn á rúmum þremur árum þegar
Arndís Tinna kom í heiminn í febrúar.
Fyrir áttu Gunnhildur og eiginmaður
hennar, Björn Friðrik, soninn Björn
Gunnar, tveggja ára, og dótturina
Margréti Örnu sem verður fjögurra
ára í janúar.
Þriðja barn Fréttakonan Karen
Kjartansdóttir eignaðist sitt þriðja
barn á árinu. Karen og eiginmaður
hennar, Hannes Geirsson, eignuðust
son sem hefur hlotið nafnið Kjartan.
Fyrir áttu þau dótturina Unu Krist-
jönu og soninn Ask Hrafn.
Jaki og Dreki Fjölmiðlakonan
Andrea Róbertsdóttir eignaðist
soninn Jaka á árinu en hún og maður
hennar áttu fyrir soninn Dreka.
Stuðmanna afa- og ömmu-
barn Tónlistarkonan Bryndís
Jakobsdóttir eignaðist soninn
Magnús í febrúar. Unnusti Dísu er
danski tónlistarmaðurinn Mads
Mouritz.
Bókaormur Rithöfundurinn
Guðrún Eva Mínervudóttir eignaðist
sitt fyrsta barn í nóvember.
Bertram Skuggi Landsliðs-
kokkurinn og veitingastaðaeigand-
inn Hrefna Rósa Sætran eignaðist
soninn Bertram Skugga í haust en
strákurinn er hennar fyrsta barn.
Barnabarn biskups Leikarinn
Guðjón Davíð Karlsson og Ingibjörg
kona hans eignuðust dóttur á
haustdögum.
Töff mamma Ágústa Eva Erlends-
dóttir og kærasti hennar, Jón Viðar
Arnþórsson, eignuðust barn í sumar
en um fyrsta barn þeirra er að ræða.
Annað barnið Leikarinn helmass-
aði Jóhannes Haukur og Rósa konan
hans eignuðust strák í sumar en fyrir
áttu þau þriggja ára stúlku.
Brúðkaup og barn Árið 2011 var
stórt fyrir tónlistarmanninn Svavar
Knút sem bæði giftist Líneyju Úlfars-
dóttur í sumar og eignaðist erfingja
í nóvember.
Drottningarbarn Alheimsfegurð-
ardrottningin Unnur Birna eignaðist
sitt fyrsta barn með kærasta sínum,
Pétri Rúnari Heimissyni, í sumar.
EIGNUÐUST BARN Á ÁRINU
Líf mitt í hnotskurn:
Ælt af stressi
fyrir deit
Ég kom frekar seint inn á
deitmarkaðinn af einhverri
alvöru. Enda sat ég bara
trúlofuð heima í barneign-
arhugleiðingum fram á þrí-
tugsaldur. Á meðan veltust
jafnaldrar mínir um í Buffalo-
skóm á menntaskólaböllum á
Hótel Íslandi í þeirri von um
að detta í korter í þrjú sleik. Og
hófu að deita í kjölfarið. Mér
fannst ég heppin. Taldi mig
hafa afgreitt og innsiglað við-
skipti mín á þessum umrædda
markaði með nokkrum bíltúr-
um og bíóferðum, og það á
barnsaldri.
Eitthvað misreiknaði ég
mig þar og skyndilega var ég
stödd ein í frumskóginum.
Talaði ekki tungumálið og
vantaði tæknina. Ekki við öðru
að búast þar sem ég missti af
öllum æfingatímunum á Hót-
el Íslandi þegar þeir buðust.
Ég hef aldrei náð almenni-
legum tökum á þessari tækni
og tungumál eru ekki mitt sér-
svið. Viðskipti á deitmarkaðn-
um hafa því í sumum tilfellum
valdið mér vandkvæðum.
Að plata áhugaverða menn
til að fara með mér á deit er
ekki endilega vandamálið,
heldur deitin sjálf. Ég fríka
þegar á hólminn er komið og
bölva sjálfri mér fyrir að koma
mér í þessar hörmulegu að-
stæður. Finnst ég vera stödd í
sömu sporum og víkingarnir
sem gengu í opinn dauðann á
hólminum á sínum tíma.
Ég geri mér grein fyrir því
hve undarlega það kann að
hljóma að líkja deiti við af-
töku. Slæm deit eru þó hálf-
gerðar aftökur og tilhugsunin
um að lenda á einu slíku getur
borið mig ofurliði. Hvað ef ég
segi eitthvað vitlaust og hvað
ef við verðum uppiskroppa
með umræðuefni? Það væri
hræðilegt! Hvorugt þessara
áhyggjuefna hefur þó nokk-
urn tíma orðið að raunveru-
legu vandamáli.
Fyrir einhverjum árum
náði ég stressa mig svo vel
upp fyrir deit að ég bókstaf-
lega ældi. Það var ákveðinn
lágpunktur í lífi mínu. Deitið
heppnaðist ágætlega og í kjöl-
farið ákvað ég að taka mér tak.
Með litlum árangri þó.
Áhyggjur mínar eru ekki
aðeins bundnar við að ég
kunni að klúðra deiti illilega
og þurfi að ganga með veggj-
um í kjölfarið. Nei. Ég er al-
veg jafnhrædd um að maður-
inn sem ég er að fara að hitta
klúðri málunum eða stand-
ist engan veginn gæðakröfur.
Slík uppákoma er jafnmikil
aftaka í mínum huga og ef ég
sjálf klúðraði málunum. Það
er vandlifað í þessum heimi.
Ég er alltaf með neyðar-
planið: „sms-a vinkonu og
biðja hana um að hringja með
váleg tíðindi.“ Þetta er klassík
sem ég hef sem betur fer bara
einu sinni þurft að nýta mér.
Hefði eflaust komist inn í góð-
an leiklistarskóla fyrir þá senu.
Laug að vesalings manninum
að vinkonunni hefði skyndi-
lega verið dömpað eftir ára-
langt samband. Hann skildi
neyðarástandið og keyrði mig
til hennar, í partí.
Sama vinkona benti mér
nýlega á að þetta stress væri
eflaust bara mitt innra sjálf að
vara mig við röngum mönn-
um. Um leið og það hyrfi þá
væri ég komin á slóðina. Ég
ætla að trúa því.