Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Side 72

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Side 72
72 Lífsstíll 30. desember 2011 Áramótablað Bregðið á leik Biddu alla gestina um að fara með nýársheit og segja frá hvað þeir vonist til að árið færi þeim. Skrifið það niður á blað eða takið upp á upptökuvél. Haldið svo annað boð að ári og farið yfir heitin! Nýársárbítur n Hugmyndir að girnilegu morgunverðarhlaðborði sem kemur þér af stað inn í nýja árið með stæl M argir vakna frek- ar ryðgaðir á fyrsta degi ársins eft- ir fjörugt síðasta kvöld hins gamla árs. Þá er tilvalið að ná úr sér ryðinu með því að bjóða góð- um vinum í girnilegan árbít og byrja árið með stæl. Notið hug- myndaflugið og bjóðið upp á skemmtilegan en afslappað- an fyrsta árbít ársins. Hér eru nokkrar hugmyndir: Safahlaðborð Bjóddu upp á margar mismunandi tegundir af ávaxta- og grænmetissöfum. Appelsínu-, epla-, gulrótar- og sítr- ónusafar og blandaðir ávextir. Það er fátt meira frískandi en ískaldur safi með klaka og gaman að geta boðið upp á margar tegundir. Það er líka skemmtilegt hugmynd að bjóða upp á safana í aðeins fínni glösum, til dæmis kampavíns- glösum og skreyta með því að setja ávexti ofan í glasið. Afgangseggjakaka Það sniðuga við eggjakökur er að það er hægt að bæta nánast hverju sem er út í þær. Það get- ur til dæmis verið sniðugt að nota afganga frá hátíðarmat síðustu daga. Kalkúnn hentar vel í eggjakökur ásamt alls kyns grænmeti og kartöflur eru líka góðar út í. Bara krydda vel eftir smekk og hræra saman. Svo má gera mis- munandi útgáfur þannig að allir fá eitthvað við sitt hæfi. Ristað brauð með laxi Ristaðu snittubrauð og hafðu reyktan og grafinn lax með. Kóngafæða sem nánast allir elska, þægilegt og krefst ekki mikils undirbúnings. Það getur líka verið sniðugt að hafa geitaost með, það ku gefa lax- inum gott bragð. Klassíkin klikkar ekki Það er nánast ómissandi að hafa beikon og egg ef bjóða á til árbíts. Steikið egg og beikon og jafnvel smátt skornar kartöflur með. Unaðslegur rækjuréttur Steiktu saman rækjur, beikon, lauk, niðurskorna tómata með sósu og smá chilisósu með. Leyfðu þessu að malla í dágóða stund og kryddaðu eftir smekk. Gott er að borða setja þetta ofan á ristað brauð. Girnilegir eftirréttir Skerðu niður ávexti, til dæmis jarðarber, epli og banana. Bræddu súkkulaði og leyfðu gestunum að dýfa ofan í. Hægt er að kaupa skrautpinna sem stinga má í ávextina til þess að þeir detti ekki ofan í súkkulaðið og skreyta ávextina um leið. Talið niður til 2012 Vantar þig sniðuga hugmynd til að skapa skemmtilega stemningu í partíinu á gaml- árskvöld? Prófaðu að merkja öll glös með tölustöfum frá einum upp í tíu. Þegar klukkan á svo tíu sekúndur eftir í miðnætti kalla allir sitt númer í takt við sekúndurnar og skála um leið í kampa- víni eða því sem er fyrir val- inu. Afar einfalt en skapar skemmtilega eftirvæntingu. Þú færð límmiða með núm- erum í bókabúðum. Skafðu þá svo af og notaðu aftur um næstu áramót. Skemmtilegt og ferskt áramótapartí Fyrir þá sem vantar skemmtilega hugmynd fyrir áramótapartíið er hægt að fylla skál með öðru- vísi og fyndnum áramóta- heitum. Láttu svo alla gesti draga einn miða og lesa upp við matarboðið. Það ætti að skapa umræður og hlátur. Skreyttu svo borð- ið með mintum eða láttu sterka mola í skálar á víð og dreif svo allir séu með sem ferskastan andardrátt þegar klukkan slær tólf á miðnætti og kossaflensið hefst. Gleðilegt nýtt ár Þökkum viðskiptin á liðnum árum Hlökkum til að vinna með ykkur á nýju ári Heilsuverndarstöðin (norður endi) n Barónsstíg 47 n 101 Reykjavík n Sími 533- 3100 Snyrtisetrið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.