Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Qupperneq 76
Ár unga fólksins
76 Sport 30. desember 2011 Áramótablað
Ólafur Andrés
Guðmundsson
21 árs handboltamaður
Ó
lafur var lykilmaður í liði FH sem varð
Íslandsmeistari í handbolta eftir 19 ára
eyðimerkurgöngu. Hann var þá hjá FH
sem lánsmaður frá danska stórliðinu
AGK en hann spilar nú með danska liðinu Nor-
dsjælland, einnig sem lánsmaður frá AGK sem
er með samning við Ólaf. Hann hefur farið
ágætlega af stað á Sjálandi en á árinu fór hann
einnig að fá meiri spiltíma með íslenska lands-
liðinu og hefur þar nýtt tækifæri sín mæta vel.
Ísland er ríkt af ungu íþróttafólki sem stendur sig vel
bæði hér heima og erlendis. Hér má lesa um nokkur
íslensk ungmenni sem tóku árið 2011 með trompi.
Anníe Mist Þórisdóttir
22 ára heimsmeistari í crossfit
Sara Björk Gunnarsdóttir
21 árs knattspyrnukona
Þ
rátt fyrir ungan aldur hefur Karen Knútsdóttir verið ein albesta
handboltakona landsins undanfarin ár. Hún varð bikarmeistari
með Fram í byrjun árs en þurfti að sætta sig við enn eitt silfrið í
baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Eftir leiki Fram við þýska
liðið HSG Blomberg-Lippe hrifust þær þýsku svo af Karen að hún var
fengin til Þýskalands og spilar hún nú í atvinnumennskunni. Hún var
einn besti leikmaður landsliðsins á árinu og stýrði þar sókninni af mynd-
arskap. Hún hefur á sínum ferli skorað 110 mörk í 41 landsleik.
K
olbeinn fór á kostum með AZ Alkma-
ar á síðasta tímabili og skoraði í
janúar fimm mörk í einum og sama
leiknum gegn VVV Venlo í hollensku
úrvalsdeildinni. Eftir tímabilið samdi hann
svo við stórlið Ajax þar sem hann er undir
handleiðslu manna eins og Frank de Boer
og Dennis Bergkamp. Kolbeinn var á meðal
fárra leikmanna íslenska U21 árs lands-
liðsins á EM í Danmörku í sumar og var þar
besti leikmaður liðsins. Hann fór frábær-
lega af stað með Ajax og skoraði 6 mörk í
átta leikjum áður en hann meiddist illa á
fæti og verður hann frá fram yfir áramótin.
Hann er fjórði markahæsti leikmaður hol-
lensku úrvalsdeildarinnar á árinu 2011.
Kolbeinn Sigþórsson
21 árs knattspyrnumaður
C
rossfit-drottningin Anníe Mist Þórisdóttir setti sér eitt takmark í fyrra
eftir að hún varð í öðru sæti á heimsmeistaramótinu í crossfit. Hún
ætlaði sér að vinna heimsmeistaratitilinn 2011 og fengu Íslendingar og
aðrir að fylgjast með undirbúningi hennar. Anníe æfði eins og skepna
og stóð við stóru orðin en í sumar stóð hún uppi sem heimsmeistari í crossfit
og ber nú titilinn „Hraustasta kona heims“.
B
reiðablik varð fyrir mikilli blóðtöku fyrir tímabilið í sumar
þegar sænsku meistararnir í LdB Malmö keyptu efnilegustu
knattspyrnukonu landsins, Söru Björk Gunnarsdóttur. Það
reyndust vera draumakaup hjá Svíunum því þessi mikla bar-
áttustúlka fór á kostum í sænsku úrvalsdeildinni og skoraði þar 10
mörk í 21 leik sem miðjumaður. Þá er Malmö komið í átta liða úrslit
Meistaradeildarinnar. Sara átti einnig frábært ár með landsliðinu og
var í byrjunarliðinu í öllum níu landsleikjum ársins. Hún skoraði að
auki eitt landsliðsmark.
Karen Knútsdóttir
21 árs handboltakona
Eygló Ósk
Gústafsdóttir
16 ára sundkona
Á
rið 2011 var gott fyrir sundkon-
una ungu, Eygló Ósk Gústafs-
dóttur. Hún endaði sem stiga-
hæsta íslenska sundkonan í
25 metra laug og sú næststigahæsta í
50 metra laug. Hún setti Íslandsmet
í öllum sínum greinum á árinu og
hefur náð góðum árangri á sund-
mótum innanlands sem og erlendis.
Á Smáþjóðaleikunum vann Eygló
til gullverðlauna í 100 og 200 metra
baksundi og til bronsverðlauna í 200
og 800 metra skriðsundi. Hún var nú
undir lok árs kjörin sundkona ársins,
aðeins 16 ára að aldri.
Björn Bergmann
Sigurðarson
21 árs knattspyrnumaður
S
kagamaðurinn ungi blómstr-
aði með Lilleström í norsku
úrvalsdeildinni í fótbolta í
sumar. Hann skoraði ekki mik-
ið en norskir miðlar héldu ekki vatni
yfir framlagi kappans, sérstaklega í
byrjun tímabilsins. Styrkur hans og
hraði hefur vakið mikla athygli, ekki
síst þegar hann skoraði tvö mörk
gegn Belgíu í U21 árs landsleik í
haust. Hann lék einnig sinn fyrsta A-
landsleik þegar hann kom inn á gegn
Kýpur í haust og fylgdi þar í kjölfar
bræðra sinna, Bjarna, Þórðar og Jó-
hannesar Karls Guðjónssona.
Jón Margeir Sverrisson
19 ára sundmaður
J
ón Margeir er ungur, fatlaður sundmað-
ur úr Ösp/Fjölni sem stefnir á að kom-
ast á Ólympíumót fatlaðra sem fram fer í
Lundúnum á næsta ári. Árið 2011 tók hann
með trompi og vann hvert mótið á fætur öðru
í sínum flokki, bæði hérlendis og erlendis. Jón
Margeir setti fjögur heimsmet og hvorki fleiri né
færri en fjörutíu og eitt Íslandsmet.