Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Side 96
Hjálparsveit
blaðbera!
Kynnti sér
keppinautinn
n Á meðan Ásdís Rán undirbýr
nýársmegrun ákvað eiginmaður
hennar Garðar Gunnlaugsson að sletta
úr klaufunum í góðra vina hópi á
miðvikudagskvöld. Skellti knatt-
spyrnukappinn sér í Bjórskólann
þar sem Úlfar Linnet leiddi Garðar
og föngulegan hóp Skagamanna í
gegnum lystisemdir bjórsins. Garð-
ar þekkir góðan mjöð vel enda bjór
hans Krummi nýkominn á markað
hér á landi og hefur verið vel tekið.
Mætti því segja að hann
hafi verið að kynna
sér keppinautinn
á markaði með því
að smakka nýjar og
framandi bjórtegund-
ir hjá Ölgerðinni.
Léttist fyrir Ásdísi
n „Ég hef áhyggjur af Ásdísi Rán,
vinkonu minni, og ákvað því að
létta mig henni til samlætis,“ segir
athafnakonan Jónína Benedikts-
dóttir glettin á Facebook. Vísar hún
þarna til þess að Ásdís Rán upplýsti
Facebook-vini sína um það á dög-
unum að hún hefði þyngst um þrjú
kíló yfir jólin. „Þetta át á þér Ásdís
mín gengur ekki,“ heldur Jónína
áfram og biðlar til móður fyrirsæt-
unnar að hafa hemil á dótturinni.
Jónína er sleip í markaðsfræðum og
laumar að lokum inn
auglýsingu fyrir
detox sem hún
segir leiðina til
losna við auka-
kílóin á nýju ári.
Nokkuð sem Ís-
lendingar þurfi
að fara að átta
sig á.
Mikael skrifar
útvarpsleikrit
n Rithöfundurinn og
ritstjórinn fyrrverandi
Mikael Torfason vinnur
nú að því að skrifa
útvarpsleikrit sem
flutt verður á
næstu misserum.
Leikstjóri verður
Símon Birgisson en
leiðir þeirra félaga
lágu saman á DV á
sínum tíma þar sem
Mikael var ritstjóri og
Símon blaðamaður af
lífi og sál. Símon hefur
síðan haslað sér völl í
heimi leiklistarinnar
en Mikael hefur snúið
sér að skrifum og unir
sér vel. Verkinu verður
að líkindum útvarp-
að næsta haust.
E
f meðalhjálp blaðbera er tekin
saman á morgni sem þessum þá
er ég nokkuð viss um að blað-
berar fari langt með að slá björg-
unarsveitunum við,“ segir Sólver Sól-
versson, blaðberi í Grafarvogi.
Hann stóð í ströngu á fimmtu-
dagsmorguninn, þegar snjóþunginn
var sem mestur. „Ég heyrði á RÚV að
björgunarsveitir hefðu hjálpað 25 til
30 bílstjórum um morguninn vegna
snjóþunga en ég einn hjálpaði fimm
eða sex. Ég sá einnig þann sem ber
út Fréttablaðið vera að hjálpa fólki í
vanda og ég hugsa að við tveir höfum
aðstoðað meira en tíu manns sem
voru með fasta bíla,“ segir hann en
þess má geta að björgunarsveitar-
menn voru á þönum um allt höfuð-
borgarsvæðið, og raunar víðar um
land, aðfaranótt fimmtudags og langt
fram efitr fimmtudegi, við að aðstoða
ökumenn í vanda.
Sólver þykir blaðburðarfólk, sem
margoft aðstoði fólk í vanda, ekki fá
þá viðurkenningu sem það á skilið.
Blaðberar troði göngustíga og moki
frá anddyrum heimila áður en flestir
fari á fætur. Það geti verið hörkuvinna.
Fimmtudagsmorgunn byrjaði
klukkan 05.30 hjá Sólver þegar hann
hóf útburð en hálftíma síðar hjálp-
aði hann fyrsta ökumanninum sem
var pikkfastur í bíl. Hann tróð um 150
gönguslóða að anddyrum einbýlis-,
fjölbýlis- og raðhúsa en einungis fimm
höfðu mokað gönguslóða að útidyr-
um sínum. Hann bendir á að snjó-
bræðslukerfi dugi ekki til í fannfergi
eins og á fimmtudaginn. Tveir öku-
menn til viðbótar fengu aðstoð hans á
meðan hann bar út blöðin en á heim-
leiðinni fór rúmur hálftími í að hjálpa
nágranna eftir að aldreifingu var lokið.
Hann segist alltaf hjálpa fólki í vanda,
ef hann geti, jafnvel þó hann sé veikur
í baki. „Það er samt erfitt að vorkenna
fólki sem mokar ekki undan bílum
sínum áður en það leggur af stað. Sér-
staklega þegar það er á sjálfskiptum
bílum,“ segir þessi hjálpsami blaðberi
Morgunblaðsins. gunnhildur@dv.is
Hjálpsamir blaðberar
n Ýta bílum og moka frá anddyrum
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80Áramótablað 30. deSeMBeR 2011 – 3. JanÚaR 2012149. tbl. 101. árg. leiðb. verð 659 kr.
Hjálpsamur Sólver hefur aðstoðað marga.
Gleðilegt ár!
Getur þú hugsað þér
daglegt líf án rafmagns?
www.rarik.is