Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Page 99
n Hetja ársins 2012 verður
Ólafur Þór Hauksson, sér-
stakur saksóknari. Fljót-
lega eftir áramótin birtast
fyrstu kærurnar og má
segja að embætti Ólafs og
verk þess verði sífellt í frétt-
um á nýju ári. Fjöldi athafna-
manna úr fjármálaheiminum, út-
rásarvíkingar og bankastarfsmenn
háttsettir og lágt verða dregnir fyrir
dóm. Kærurnar mæta harðri and-
spyrnu lögfræðinga hinna ákærðu
en Ólafur Þór þumbast áfram eins
og hann er vanur. Þegar líður á árið
verður þessi hálsstutti lögfræðing-
ur orðinn eftirlæti og átrúnaðargoð
allrar þjóðarinnar.
n Völvan sér mjög undarlegt saka-
mál í fréttum á nýju ári. Inn í fréttir
af því dragast þekktir aðilar sem
áður fóru mikinn í viðskiptalíf-
inu. Það sem við fyrstu
sýn virðist vera þjófnað-
ur og skjalafals reynist
vera flókinn vefur yfir-
hylmingar, fjárkúgun-
ar og nokkurra annarra
afbrota. Grunaðir að-
ilar málsins bera sakir hver
á annan og málið tekur engan
enda á árinu heldur verður ann-
að slagið í fréttum allt árið. Þetta
mál er sveipað dularhjúpi
í kristalskúlunni en
nafnið Sigurjón sést
gegnum þokuna.
n Völvan sér Har-
ald Johannessen
taka hatt sinn og
staf og yfirgefa emb-
ætti ríkislögreglustjóra.
Þetta gerist þegar gerðar verða
breytingar á valdsviði embættis-
ins sem Haraldi eru ekki að skapi.
Deilur tengdar fjárreiðum og við-
skiptum embættisins vofa í bak-
grunninum.
n Völvan sér Bubba Morthens
eiga gott ár í vændum. Bubbi er
tengdur við þjóðarsálina með ein-
stökum hætti. Hann stígur fram
snemma á árinu og segir hrein-
skilnislega frá samskiptum sínum
við nokkra háttsetta menn í sam-
félaginu sem taldir eru útrásarvík-
ingar. Þetta þykir djarft tiltæki því
það sýnir Bubba í óhagstæðu ljósi
en hann stendur upp sem sigur-
vegari vinsælli en fyrr því þjóðin
fagnar sannleikan-
um.
n Opin-
skátt við-
tal við Ásgeir
Friðgeirsson,
fyrrverandi
aðstoðarmann
Björgólfanna, vek-
ur gríðarlega athygli snemma á
árinu. Þar segir Ásgeir umbúða-
laust frá ýmsu sem gerðist bak við
tjöldin á starfstíma sínum. Ásgeir
fær uppreist æru í vitund þjóðar-
innar í kjölfarið og
fer á ný að taka
þátt í opinberri
umræðu.
n Nýtt ár ein-
kennist af því
að margir sem
áður þögðu þora
nú að tala. Fleiri en
Bubbi Morthens og Ásgeir Frið-
geirsson vekja þjóðarathygli fyrir
opinskáar frásagnir því það gerir
líka Agnes Bragadóttir, fréttastjóri
Morgunblaðsins. Á nýja árinu sér
völvan frásagnir Agnesar í bókar-
formi valda gríðarlegri hneykslun
og reiði í sumum hópum en að-
dáun í öðrum.
2 Völvuspá 2012 30. desember 2011 Áramótablað
n Þótt margir hafi orðið til þess að
spá ríkisstjórn Jóhönnu og Stein-
gríms dauða þá lifir hún
áfram. Jón Bjarnason
hverfur úr ráðherrastól
en Árni Páll Árnason mun
víkja sem ráðherra um
stundarsakir. Þessi kapall
verður rakinn með þeim hætti að Jón
Bjarnason fer út og ráðuneyti hans
verður lagt undir iðnaðarráðuneyti
og þannig verður til margboðað
atvinnuvegaráðuneyti. Ráðuneyti
Árna Páls verður sameinað fjármála-
ráðuneyti eins og Steingrímur hefur
viljað. Eftir áramót stendur Katrín
Júlíusdóttir upp úr stól sínum og
hefur töku fæðingarorlofs. Árni Páll
Árnason tekur við hennar ráðuneyti.
Katrín hefur boðað fæð-
ingu tvíbura í febrúar og
fæðingarorlof stendur
nálægt ári að jafnaði
svo með þessu er Árna
Páli tryggð seta í ríkis-
stjórn út árið hið minnsta.
n Völvan sér Árna Pál þó í nokkrum
ólgusjó seint á árinu þegar Katrín
snýr aftur. Þar sýnist völvunni stefna
í prófkjör þar sem Árni Páll ber
skarðan hlut frá borði.
n Brotthvarf Jóns veld-
ur úlfúð og illdeilum
innan stjórnarinnar en
í einstökum málum sjá
Guðmundur Steingrímsson og þing-
menn Hreyfingarinnar til þess að
hún verst stóráföllum. Siv Friðleifs-
dóttir mun einnig stíga fram sem
eindregnari stuðnings-
maður stjórnarinnar
en áður. Sömuleiðis
sér völvan Ragnheiði
Ríkharðsdóttur styðja
ríkisstjórnina í ein-
hverju deilumáli.
n Á nýju ári verður
Steingrímur J. Sigfús-
son skýrari leiðtogi ríkis-
stjórnarinnar en áður hefur verið
og Jóhanna heldur sig enn meira til
hlés á nýju ári en því sem er að líða.
Völvan heyrir óminn af umræðu um
heilsufar hennar og hugsanlegan
arftaka en engar breytingar verða í
þeim efnum á nýju ári.
n Sem fyrr er það tvennt sem heldur
ríkisstjórninni við völd í raun og
veru. Annars vegar tregða og ótti
stjórnarandstöðu við kosningar og
hugsanlega upplausn í kjölfar þeirra.
Hins vegar er það djúpstæð þrá
vinstrimanna til þess að stjórnin lifi
út kjörtímabilið. Enginn vinstrimað-
ur með vott af samvisku vill fá þann
dóm sögunnar að hafa orðið til þess
að fella einu alvöru vinstristjórnina
á lýðveldistímanum.
Samfylkingin
n Samfylkingin á ekki gott ár í
vændum sem stjórnmálaflokkur.
Ósamlyndis gætir nokkuð í þinglið-
inu og sérstaklega er það Sigmundur
Ernir Rúnarsson sem ásamt Kristjáni
Möller á það til að stíga á
tær forystu flokksins.
Völvan sér Sigmund
lenda í vandræðalegri
en kunnuglegri stöðu
á árinu. Sigmundur tekur
sig á í framhaldinu og lætur lítið fyrir
sér fara.
n Hnútukast vegna uppgjörsmála
við hrunið heldur áfram að ergja
samfylkingarmenn og völvan sér
bæði Ingibjörgu Sólrúnu og Stein-
unni Valdísi Óskarsdóttur fjarlægjast
flokkinn með afgerandi hætti og yfir-
lýsingum. Völvan sér Björgvin G. Sig-
urðsson í mjög vandræðalegri stöðu
vegna vitnisburðar sem
kemur fram í málflutn-
ingi fyrir landsdómi.
n Samfylkingin heldur
áfram að stríða við forystukreppu
því skýr arftaki Jóhönnu er enginn í
sjónmáli. Dagur B. Eggertsson hverfur
úr kastljósinu og tekst á við verkefni
á nýjum vettvangi erlendis.
n Völvan sér Jóhönnu Sigurðardótt-
ur hverfa úr stóli formanns seint á
árinu og Össur Skarphéðinsson láta
undan þrábeiðni flokksmanna um
að taka að sér embættið um stund-
arsakir. Allt kann sá sem bíða kann.
Sjálfstæðisflokkurinn
n Sjálfstæðismenn eiga ákaflega erf-
itt ár í vændum. Völvan sér hjaðn-
ingavíg innan flokksins í kjölfar
átaka í kringum formannskjör. Þar
á Bjarni Benediktsson
svolítið erfitt upp-
dráttar vegna þess hve
stuðningur við hann
er takmarkaður. Fram-
burður fyrrverandi viðskiptafélaga
Bjarna fyrir dómi gerir stöðu hans
enn verri.
n Flokkurinn og liðsmenn hans og
stuðningsmenn er nær samfellt í
sviðsljósinu á nýju ári vegna upp-
gjörsmála sem tengjast hruninu.
Völvan sér Illuga Gunnarsson í ólgusjó
vegna Sjóðs 9 sem fylgir honum eins
og draugur. Illugi stendur
þó af sér áhlaupið sem
að hluta til verður rakið
til flokkssystkina hans.
Deilurnar um afstöðuna
til ESB skekja flokkinn á nýju ári og
völvan sér fjölmiðla fjalla um klofn-
ing flokksins þótt ekki verði hann að
veruleika. Völvan sér Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur hverfa úr stjórnmál-
um á árinu og taka að sér önnur og
ólík verkefni.
n Völvan sér valinkunnan forystu-
mann flokksins og áhrifamann til
langs tíma hverfa af sjónarsviðinu
og þá hljóðna allar deilur
um stund.
n Í eftirmál-
um formannskjörs í
Sjálfstæðisflokknum verður nokkurs
konar uppgjör í þingflokknum. Þar
sér völvan Ragnheiði Elínu Árnadóttur
missa sæti sitt og völvunni sýnist Ill-
ugi Gunnarsson setjast í það í hennar
stað.
Framsóknarflokkurinn
n Framsóknarflokkurinn heldur
áfram að minnka á árinu. Einstak-
ir liðsmenn hans á þingi halla sér í
ríkari mæli frá flokksforystunni og
nær ríkisstjórninni. Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson þrjóskast við og tekur
harða afstöðu gegn stjórninni hve-
nær sem færi gefst. Vigdís Hauks-
dóttir mun vekja gríðarlega athygli
og deilur þar sem sitt sýnist hverjum
um túlkun ummæla hennar. Völvan
sér útsendingu frá Alþingi þar sem
Vigdís er í aðalhlutverki.
n Á miðjum vetri segir þungavigtar-
maður utan þings sig úr flokknum
og það dregur enn úr trúverðugleika
hans. Völvan sér flokkinn í hring-
iðu umræðu um fyrir-
greiðslu og frændhygli.
Halldór Ásgrímsson er
þar í afar neikvæðu ljósi.
n Gunnlaugur Sigmunds-
son og mál hans gegn Teiti Atlasyni
bloggara fær nýtt líf á árinu. Nýjar
upplýsingar um tengsl Gunnlaugs
og Framsóknarflokksins koma fram í
dagsljósið með mið-
ur geðfelldum blæ og
verða enn til þess að
auka á vandræði flokks-
ins.
n Fréttir af skuldaniðurfellingum
Finns Ingólfssonar verða enn til þess
að auka óþol almennings gagn-
vart Framsóknarflokknum. Völvan
sér nýjar upplýsingar um vélabrögð
Finns í þágu Framsóknar
koma fram á árinu.
Vinstri-grænir
n Vinstri-grænir halda áfram að
stríða við innanflokksófrið og róstur
út af ýmsum undarlegum málum.
Sífellt betur sést að ákveðinn armur
flokksins er svartasta afturhald sem
völ er á í stjórnmálum dagsins. Veg-
ur óánægðra innan flokks-
ins vex ekki á nýju ári.
Þráinn Bertelsson reynist
flokknum betri en eng-
inn í erfiðu deilumáli
snemma árs þeg-
ar málið um kaup Huang
Nubo á Grímsstöðum á
Fjöllum kemst aftur á
dagskrá.
n Völvan sér
Svandísi Svavarsdóttur í hvössum
stormi sem hún stendur af sér
með reisn og staða hennar innan
flokks og utan styrkist í kjölfarið.
Þau átök snúast um stækkun grið-
lands í Þjórsárverum og við Hofs-
jökul. Fljótlega kemur í ljós að víð-
tækur stuðningur er við málið þvert
á flokka og þá koðnar andstaðan
mikið til niður.
n Völvan sér Steingrím J.
styrkja sig í sessi á nýju
ári sem leiðtogi ríkis-
stjórnarinnar eftir því
sem Jóhanna verður
umsvifaminni.
n Völvan sér Katrínu Jakobsdótt-
ur skipta um ráðherrastól á nýja
árinu. Hún verður eftir þau umskipti
og snöfurlega afgreiðslu einhvers
undarlegs deilumáls almennt álitin
óskoraður arftaki Steingríms í stól
formanns Vinstri-grænna.
Hreyfingin
n Hreyfingarmenn á Alþingi stríða
áfram við sundurlyndisfjandann. Mar-
grét Tryggvadóttir og Birgitta Jónsdóttir
eru hallari undir stuðning við ríkis-
stjórnina en Þór Saari og þetta veldur
togstreitu innan hins smáa flokks.
Völvan sér Þór Saari í miklum átökum
við menn utan þings vegna þátttöku
Þórs í einhvers konar atvinnurekstri.
Völvan sér Birgittu öðlast tímabund-
ið frægð á alþjóðavettvangi vegna
mála sem tengjast Wikileaks. Hún fær
Stjórnmálin
OpinberanirUppgjör
Breytingar í nánd? Enginn
vinstrimaður með vott af
samvisku vill fá þann dóm
sögunnar að hafa orðið til þess
að fella einu alvöru vinstri-
stjórnina á lýðveldistímanum.