Són - 01.01.2007, Page 18
RAGNAR INGI AÐALSTEINSSON18
síðar, raunar mjög frábrugðnar. Kenningin styðst ekki við nein dæmi
um það sem er til umfjöllunar, enda enginn slíkur texti til, og því
hæpið að taka hana mjög alvarlega.
Minkova48 víkur einnig að því að hér skorti eitthvað til að styðjast
við. Hún segir að það sé lágmarkskrafa að fá að sjá dæmi um þær
breytingar sem kenningin gerir ráð fyrir að hafi orðið á ljóðagerðinni.
Sé það rétt að í forngermönskum kveðskap hafi verið gerð krafa um
að stuðla aðeins saman sams konar sérhljóða, hvernig á þá að skýra
þann mikla fjölda af braglínum sem stuðlaðar eru með mismunandi
sérhljóðum í þeim kveðskap sem við höfum sýnilegan.
Sameiginlegur þáttur sérhljóða, [+sérhljóðakenndur].
Jiriczek og Kauffmann
Í títtnefndum ritdómi um bók Axels Kocks, eftir að hafa dæmt kenn-
ingar Kocks og Rapps ónothæfar, setti Jiriczek49 fram sína eigin
hugmynd um hvað það væri sem skipaði sérhljóðunum öllum í sama
jafngildisflokk. Þessi kenning hefur verið kölluð „klangfrändskaps-
teorien.“50 Samkvæmt henni er það þáttur sem er sameiginlegur öll-
um sérhljóðum, [+sérhljóðakenndur] ([+vocalic]), sem gerir það að
verkum að þeir geta stuðlað hver við annan þvert gegn því sem sam-
hljóðarnir gera. Þessi kenning fékk aldrei miklar undirtektir. Einn af
stuðningsmönnum hennar var þó Friedrich Kauffmann.51 Í bókinni
Deutsche Metrik víkur hann að kenningu Rapps um að sérhljóða-
stuðlunin eigi rót sína í raddglufulokuninni og sé því í raun hliðstæð
því þegar stuðlað er með samhljóðum. Hann bendir á að aldrei hafi
verið sannað að spiritus lenis hafi verið til (eins og margir aðrir hafa
haldið fram) enda sé hljómun eða hljómmagn (klangfülle) sérhljóð-
anna út af fyrir sig nægileg skýring á því hvers vegna þeir stuðluðu
saman.52
Margir hafa orðið til að gagnrýna kenningu Jiriczeks. Roman
Jakobson53 bendir á að hvergi í germanskri stuðlun hafi fundist dæmi
um það að einn aðgreinandi þáttur í einu af þeim fónemum sem
byggja upp stuðlunina hafi fengið það hlutverk að greina á milli jafn-
48 Minkova (2003:140).
49 Jiriczek (1896).
50 Sjá t.d. Holmérus (1936:14).
51 Kauffmann (1897).
52 Kauffmann (1897:12–13).
53 Jakobson (1963:88).