Són - 01.01.2007, Side 22

Són - 01.01.2007, Side 22
RAGNAR INGI AÐALSTEINSSON22 Í kenningu a) er byggt á því að raddglufulokun sem átti (á) sér stað í upphafi hvers sérhljóðs í framstöðu (eða rétt á undan því) geri það að verkum að sérhljóðarnir hafi allir sams konar upphaf, verði að nokkurs konar samhljóðum, og því geti þeir tilheyrt sama jafngildis- flokki. Þessi kenning lítur ekki illa út við fyrstu sýn en þegar betur er að gáð koma í ljós ýmiss konar mótrök sem erfitt er að ganga fram hjá. Er ekki dálítið tortryggilegt, eins og Kock68 ræðir um, að hugsa til þess að fornmenn hafi getað heyrt raddglufulokunina svo greini- lega að þeir hafi látið hana greina á milli jafngildisflokka? Fátítt er í dag að fólk greini þessa lokun í talmáli og þeir sem ekki eru innvígðir í samfélag málfræðinga og bragkunnáttumanna vita yfirleitt ekki að hún er til. Er ekki, eins og Kristján Árnason69 bendir á, undarlegt að hvorki Ólafur Þórðarson hvítaskáld né sá glöggi maður sem skrifaði Fyrstu málfræðiritgerðina skuli minnast einu orði á þetta hljóð sem skipti svo miklu máli í þeirri stuðlun sem „ ... saman heldur norræn- um skáldskap svá sem naglar halda skipi saman, er smiðr gerir ok ferr sundurlaust ella borð frá borði ...“ svo vitnað sé í Málskrúðsfræði Ólafs Þórðarsonar.70 Og síðast en ekki síst skal vikið að því sem haft var eftir Kristjáni Árnasyni fyrr í greininni um að sérhljóðastuðlun var notuð í finnskum og írskum ljóðum á sama máta og gert var (og er gert enn) í germönskum kveðskap? Þetta þýðir í raun að hver sú skýring sem sett er fram á sérhljóðastuðluninni verður að gera grein fyrir þeirri samsvörun. Vitað er að umrædd raddbandalokun fyrir- finnst ekki í finnsku71 svo það er að minnsta kosti ljóst að stuðlun með mismunandi sérhljóðum í finnskum kveðskap verður að skýra með einhverju öðru. Kenningin um raddglufulokun dugir því einfaldlega ekki sem fullnaðarskýring á því hvers vegna leyft var að stuðla með ólíkum sérhljóðum. Raddglufulokunin gæti hugsanlega hafa stutt við sér- hljóðastuðlun þannig að hún yrði áheyrilegri en hægt er að fullyrða að lokunin hafi ekki verið nauðsynleg forsenda stuðlunar, þannig að stuðlavensl komist ekki á nema lokhljóðið birtist. Lokunin er val- frjáls í nútímamáli og ef hún væri nauðsynleg forsenda stuðlavensla myndi braglína eins og „Yfir kaldan eyðisand“ stuðla stundum og stundum ekki eftir flutningi. Líklegt er að ef raddglufulokun hefur 68 Kock (1889–94). 69 Kristján Árnason (2000). 70 Björn M. Ólsen (1884). 71 Aðalsteinn Davíðsson (2007) og Kiparsky (1968:139).
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Són

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Són
https://timarit.is/publication/1139

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.