Són - 01.01.2007, Síða 43

Són - 01.01.2007, Síða 43
HALLGRÍMUR PÉTURSSON SKÁLD ALÞÝÐUNNAR 43 sigling í hægum byr. Hann siglir unglingspiltur til útlanda og nemur þar bæði handverk og bókleg fræði. Þar fellur hann með giftri konu sem þar að auki hafði verið hertekin í Barbaríinu. Samtímaheimildir greina ekkert frá sambúð þeirra en þjóðsagan gerir hana að stórlynd- um kvenvargi og afguðadýrkanda og fellir hana þar með inn í mynstrið um skassið og mikilmennið en hún ljær henni einnig ævin- týralegan glæsileika sem sjaldnast er að finna hjá skassi þjóðsögunnar. Þjóðsagan greinir meira að segja frá því að sonur deyans, sem Guð- ríður var ambátt hjá í Barbaríinu, hafi fest ást á henni en ekki fengið að eiga hana fyrir móður sinni. Hafi hann þá gefið henni að skilnaði kápu, gersemi mikla, og vildi með því sýna að meiri væri sá er henni unni í Alsír en hundar þeir er Ísland byggðu. Er ekki laust við að hér endurómi saga úr Laxdælu af því er Ingibjörg konungssystir gaf Kjartani Ólafssyni moturinn forðum. Eftir að Hallgrímur er kominn að Saurbæ og orðinn frægur af sálmakveðskap fara að spretta upp þjóðsögur um hann og halda áfram að magnast eftir dauða hans uns þær fullkomna þá mynd af skáldinu sem þjóðin þekkir. Hann er kraftaskáld sem kveður drauga jafnt upp sem niður og ekki getur hann stillt sig er hann sér af predikunarstóli hvar tófa kemur í tún og bítur lamb en kveður hana dauða upp úr miðri ræðunni: Þú sem bítur bóndans fé, bölvuð í þér augun sé, stattu eins og stofn af tré, stirð og dauð á jörðunne. Honum hefnist að vísu fyrir að misnota svo gjafir Guðs og missir skáldgáfuna um tíma. Hann fær hana þó aftur úti í skemmu þar sem hann er að hengja upp kjöt með vinnumanni sínum. Segir sagan að Hallgrímur stæði á gólfi og rétti vinnumanni upp krofin en vinnu- maður sæti uppi og hengdi á rárnar. Þótti honum prestur ekki rétta nógu hátt og sagði: „Upp, upp!“ Kom þá skáldskapargáfan aftur yfir Hallgrím og hélt hann áfram og kvað: Upp, upp mín sál og allt mitt geð, upp, upp mitt hjarta og rómur með, hugur og tunga hjálpi til þá herrans pínu eg minnast vil.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Són

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Són
https://timarit.is/publication/1139

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.