Són - 01.01.2007, Qupperneq 105
PABLO NERUDA – MAÐUR OG HAF 105
Það er ljóst að Neruda lendir í mikilli sálarkreppu þar eystra og lifir
að auki á hungurmörkum því smávægileg laun konsúlsins bárust
seint eða ekki. En þrátt fyrir allt finnur hann með sér hvöt til að
endurskapa þennan óskiljanlega og súrrealíska veruleika sem hann
lifir og hrærist í á jaðri mannlegs samfélags og beitir skáldskapnum í
allri sinni dýpt til að fanga upplausn og mannlega þjáningu. Í mann-
mergð og hitasvækju Austurlanda freistar hann þess að berast af með
hjálp skáldskaparins og vinnur um leið bókmenntalegt afrek. Afurð
þess birtist í bókum hans Residencia en la tierra 1–2 (Bústaður á jörð), en
með þeim tekur hann krappa beygju frá fyrri verkum sínum.
III
Áður en Neruda fer til Spánar, þar sem skáldskapur hans tekur nýjum
stakkaskiptum, starfar hann smátíma í Buenos Aires í Argentínu. Þar
hittir hann Federico García Lorca þegar sá síðarnefndi var á löngu
ferðalagi um báðar álfur Ameríku og kom til Buenos Aires til að vera
viðstaddur frumsýningu á leikriti sínu, Blóðbrúðkaupi. Það takast strax
mikil og góð kynni með þeim og Neruda fellur inn í hópinn sem er í
kringum Lorca og taldi meðal annarra Noruh Lange og Jorge Luis
Borges. Á þessum fundum sló Lorca honum við, samkvæmt Volodia
Teitelboim, í gleðilátum, söng og dansi. Neruda hélt upp á afmæli sitt
með Spánverjunum Lorca, Ramón Gomez de la Serna og Arturo
Capdevilla, og þeir rúntuðu mikinn túr um borgina, en tómur
leigubíll fylgdi á eftir þeim – það var hugmynd Lorca. Þegar þeir
spurðu hvað það ætti að þýða, svaraði hann: „Það er í virðingar-
skyni.“ Þeir enduðu svo gleðina á veitingahúsi í La Boca hverfi.9
Neruda fer sem konsúll til Spánar árið 1934, fyrst til Barcelona, en
síðan til Madrid. Auk kynna við Lorca hafði hann komist í samband
við skáldið Rafael Alberti á meðan hann dvaldi í Austurlöndum, en
honum sendi Neruda handrit sitt að bókinni Residencia en la tierra og
bað hann um að hjálpa sér að finna útgefanda á Spáni. Það tókst ekki,
en Alberti gekk með handritið á sér, sýndi mönnum ljóðin og las þau
upp á „tertulias“, bókmenntafundum skálda á kaffihúsum. Á Spáni er
Neruda afar vel tekið af skáldum sem töldust til hinnar frægu 27
kynslóðar. Hann var alla tíð síðan þakklátur fyrir það örlæti og vin-
áttu sem hann mætti af hendi spænskra kollega sinna. Hann einhendir
sér í skáldalífið og stofnar tímaritið Caballo verde de la poesía.
9 Teitelboim, Volodia (1991:161).