Són - 01.01.2007, Blaðsíða 118

Són - 01.01.2007, Blaðsíða 118
ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON118 mér reyndar allgóðar vonir um að þeir sem lesa grein mína muni sjá að nákvæmara orð yfir þessar ávirðingar mínar er skoðanaágreiningur, ágreiningur við Örn – oft djúpstæður – um eðli bókmennta og bók- menntasögu, um sögu ljóðlistar á Vesturlöndum á síðustu hálfri annarri öld og um endurnýjun íslenskrar ljóðlistar um miðja 20. öld. En hitt er jafnljóst að þeir sem lesa ekki greinina fá ekki svo mikið sem hugboð um efni hennar og um málflutning minn af endursögn Arnar. Rétt er, áður en lengra er haldið, að gera nokkra grein fyrir um- ræddri ritgerð minni „Þankabrotum um ljóðbyltingar“ sem Örn var að svara. Hún var hugsuð sem kafli í bók um skáldskap Sigfúsar Daðasonar og kom lítillega endurskoðuð í henni síðastliðið vor og nefnist þar „Útúrdúr um ljóðbyltingar · Þættir úr sögu nútímaljóða“.4 Tilgangur minn með kaflanum var að setja breytingarnar sem urðu í íslenskri ljóðlist um miðja síðustu öld í alþjóðlegt samhengi, að sjá þær í ljósi þeirra byltinga í ljóðagerð sem urðu í Evrópu og Norður- Ameríku á seinnihluta 19. aldar og fyrrihluta þeirrar tuttugustu. Ég rakti fáeina þætti úr sögu nútímaljóða, greindi frá mismunandi skoð- unum og setti fram mínar eigin, og reyndi að lýsa bæði staðreyndum máls og álitamálum eftir því sem kostur var í svo stuttu ágripi, enda er það helsta forsenda þess að lesandi geti sjálfur myndað sér skoðun á umræðuefni hverju sinni. Og þegar ég taldi að það væri málflutningi mínum til skýrleika gagnrýndi ég í fáein skipti áður framkominn skilning á íslenskum nútímaljóðum, en Örn hefur sem kunnugt er fjallað mikið um það efni. Helsta tilefni gagnrýni minnar á Örn í greininni var bókmenntasögulegt: það mat hans að sáralítil ummerki módernisma séu greinanleg hjá Sigfúsi Daðasyni, en það taldi ég til marks um grunnan skilning á skáldinu og um gallaða skilgreiningu á módernisma. Til þess að leiða í ljós skoðanaágreining okkar Arnar, og hvað það var sem ég gagnrýndi, held ég mig í því sem hér fer á eftir ekki ein- göngu við svargrein hans í Són heldur vísa einnig í fyrri skrif hans – bókina Kóralforspil hafsins · Módernismi í íslenskum bókmenntum og fleira – skrif sem ekki er víst að allir lesendur Sónar þekki. En til að taka af öll tvímæli: Síst hef ég á móti því að Örn Ólafsson myndi sér eigin skoðanir á bókmenntum 20. aldar á Íslandi og víðar og tefli þeim gegn mínum og annarra, það er að sjálfsögðu heilagur réttur hans. 4 Þorsteinn Þorsteinsson (2007:80–128).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Són

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Són
https://timarit.is/publication/1139

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.