Són - 01.01.2007, Side 131

Són - 01.01.2007, Side 131
ÁLITAMÁL Í BÓKMENNTASÖGU 131 Kristinn var hliðhollur ungu skáldunum, lengi framan af að minnsta kosti, og prentaði ljóð þeirra í tímariti sínu. Bæði hann og Halldór Kiljan Laxness skrifuðu lofsamlega um Stein Steinar. Þegar Jóhannes úr Kötlum breytti ljóðstíl sínum stóð ekki á Kristni að gefa út hin nýstárlegu ljóð hans og ljóðaþýðingar. Annað skiptir þó meira máli í þessu sambandi: Örn byggir ályktun sína á því að ekki hafi verið amast við ljóðum í frjálsu formi fyrr á öldinni og því hefði það sama átt að gilda um ljóð atómskáldanna. Þar með er hann að segja að ljóð þeirra hafi haft fátt annað fram að færa en ‚bragbreytingu‘.39 Í bókmenntum er allajafna í gildi einhverskonar óorðaður samn- ingur milli höfunda og lesenda. Þegar skáld rýfur þann samning og fer að yrkja annarskonar ljóð (segir til að mynda upp sáttmálanum um að ljóð séu um eitthvað, séu mímetísk, raðar upp brotum án tenginga eða yrkir torræðar ljóðmyndir) má búast við neikvæðum viðbrögðum meirihluta lesenda og gagnrýnenda, og oft tekur það langan tíma að sættast við hið nýja. Stundum verða aldrei fullar sætt- ir, sem væntanlega á sér þá skýringu að ekki sé allt nýtt gott. Ég er fyrir mitt leyti sannfærður um að það var ekki breytingin á hinu ytra ljóðformi sem ljóðelskur almenningur á Íslandi setti fyrir sig, heldur hitt að mörgum fannst ljóðin óskiljanleg, fannst þau ekki koma sér við. Næg dæmi eru um ámóta viðbrögð í sögu ljóðlistarinnar. Franska symbólismanum á seinnihluta 19. aldar var yfirleitt illa tekið af al- menningi og gagnrýnendum.40 Ekki var þar þó um að kenna breyttu ytra formi ljóðanna heldur breyttu inntaki og skáldskaparaðferð. Fyrsta erindið í fyrsta ljóði fyrstu bókar Sigfúsar Daðasonar hljóðar svo: Mannshöfuð er nokkuð þungt en samt skulum við standa uppréttir og sumarið bætir fyrir flestar syndir okkar.41 39 Örn talar um bragarhátt fríljóða og prósaljóða (2006a:126 og víðar). Það er undar- leg orðanotkun; bragur er það sem kallað er metrum á erlendum málum; hann er sjálfstætt mynstur sem gengur gjarna aftur í bundnum ljóðum, jafnvel allt frá fornöld. Enn er verið að yrkja undir Sapfóarhætti, brag sem fundinn var upp á eynni Lesbos í Eyjahafi um 600 f.Kr. að því er talið er. Bundin ljóð og óbundin eru ekki mismunandi bragarhættir heldur mismunandi ljóðtegundir og hin síðar- nefndu segja skilið við brag: Form fríljóða er nýtt í hverju ljóði og meira að segja í hverju erindi ljóðs. 40 Sbr. Jacques Lethève (1959:151–276). 41 Sigfús Daðason (1951:7).
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Són

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Són
https://timarit.is/publication/1139

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.