Són - 01.01.2007, Page 134
ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON134
49 Örn Ólafsson (1992:10).
50 Örn Ólafsson (2006a:138).
kveður og lágkveður í ljóðlínum hans sem eru rímlausar og af
óreglulegri lengd. Meginatriðið er þó að skáldin (Klopstock, Höl-
derlin og fleiri) sóttust í ljóðum sínum eftir músíkalskri hrynjandi að
dæmi forngrískrar ljóðlistar en ekki eftir setningahrynjandi talaðs
máls eins og hin eiginlegu fríljóð síðari tíma. Þau losuðu um bundið
mál síns tíma og auðguðu það að nýrri vídd en yfirgáfu það ekki.
VII
Í formála bókar sinnar Kóralforspil hafsins vitnar Örn Ólafsson í austur-
rísk-enska heimspekinginn Karl Popper sem „ráðleggur mönnum að
reyna að sigrast á löngun sinni til að hafa ævinlega rétt fyrir sér – og
réttlæta sig. Þess í stað ættu þeir að leita sérstaklega eftir villum, greina
þær og reyna að læra af þeim“.49 Þetta er gullvæg regla sem bók-
menntafræðingar mættu tileinka sér ekki síður en aðrir. Ofmælt væri
að Örn fylgi henni sjálfur af kostgæfni í Sónargrein sinni en hann
nálgast hana undir lokin.
Hér að framan hef ég lýst ýmsu sem mér þykir gagnrýnivert í
skrifum Arnar um bókmenntasögu, ekki síst skoðunum þeim á
módernisma sem hann setti fram í Kóralforspilinu og víðar, skoðunum
sem voru tilefni gagnrýni minnar í greininni í Són 2005. En í svari
hans í fyrra kveður að nokkru leyti við nýjan tón í niðurlagsgreininni:
Meginniðurstaða mín var, að sameiginlegt einkenni ýmiskonar
módernisma í ljóðum og lausu máli sé sundruð framsetning,
andstæðufull. En innan þessa meginstraums módernisma megi
telja það áberandi einkenni margra surrealiskra verka að tengja
ósamrýmanleg fyrirbæri svo að setning verði röklega óskiljanleg.
Í expressjóniskum verkum hef ég hinsvegar ekki rekist á það,
heldur stílandstæður milli skiljanlegra málsgreina, svo að heildar-
myndin verður sundruð, rúmar andstæður. Það á augljóslega
líka við um Eyðiland Eliots og fleiri ljóð hans, svo og annarra
módernra skálda. Við þennan skilning verð ég að standa því
ekki hefur hann verið hrakinn og síst af Þorsteini sem snið-
gengur allt sem mælt gæti gegn hans gamalgrónu hugmyndum.50