Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2008, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008
Fréttir DV
ÞETTA HELST
- ÞESSAR FRÉTTIR BAR HÆST í VIKUNNI
DAUÐSFALL Á NÝÁRSNÓTT
Skemmtanahaldi á ný-
ársnótt lauk með sorg-
legum hætti þegar nítján
ára piltur skilaði sér ekki
heim. Hann hafði síðast
sést skammt frá skemmtistaðn-
um Broadway um klukkan hálf
sex að morgni fyrsta dags ársins
en þegar fólk fór að lengja eftir
piltinum unga á nýársdag var
hafin leit að honum. Á annað
hundrað björgunarsveitarmanna og kafarar tóku þátt í leit að
piltinum sem náði frá Broadway að heimili hans í Ártúnsholti og
reyndar víðar. Björgunarsveitarmenn leituðu víða og þræddu
meðal annars Eiliðaár. Auk leitar á landi og í legi mátti sjá þyrlu
Landhelgisgæslunnar sveima yfir svæðinu við leit úr lofti. Þegar
komið var fram á kvöld annars dags nýja ársins fannst lík piltsins
í smábátahöfn Snarfara.
'-•w_
BORGA FYRIREFNI í
STUNDINA OKKAR
■ Reykjavíkurborg fékk inni
í Stundinni okkar fyrir
innslög til að kynna starf-
semi sína og Sjónarhóls.
Fyrir þetta greiðir Reykja-
víkurborg 400 þúsund krónur í
kostnað við gerð innslaganna.
Markmið borgaryfirvalda með
innslögunum er að sýna hversu
gott starf sé unnið á leikskólun-
um og að unnið sé á jákvæðan
hátt. Kolbrún Halldórsdóttir,
þingmaður vinstri grænna, lýsti
áhyggjum af því að sífellt algeng-
arayrði að Ríkisútvarpið færi í
sameiginlega framleiðslu með
utanaðkomandi fyrirtækjum,
samtökum og stofhunum. Þetta
þykir henni til marks um aukna
wiww*"*'" markaðsvæðingu í starfsemi
stofnunarinnar eftir að Páll Magnússon tók við starfi útvarpsstjóra.
Þorgrímur Gestsson, formaður Hollvinafélags RÚV, sagði þetta þó í
lagi þar sem málstaðurinn væri góður.
{TAKAST A
JöMAUD
í
BERJAST UM SJÓÐINA
Félagar í starfsmanna-
félagi ESSO höfnuðu
fýrir skemmstu tillögu
um að félagið samein-
aðist starfsmannafélög-
um annarra fýrirtækja sem
sameinuðust ESSO undir nafninu
Nl. Starfsmannafélag ESSO hefur
safnað miklum sjóðum á löng-
um starfstíma sínum og nema
eignirnar hundruðum milljóna
króna. Hin starfsmannafélögin
eru sum eignalítil og eru félagar
í starfsmannafélagi ESSO ósátt-
ir við að eignirnar renni allar
inn í nýtt starfsmannafélag Nl.
Það telja þeir að yrði til þess að
aðrir fengju það sem þeir hefðu
byggt upp en að sjálftr bæru þeir
skarðan hlut frá borði.
YNGSTU BROTAMÖNNUM
FJÖLGAR MIKIÐ
Tölur lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu fýrir
síðasta ár sýna að yngstu
afbrotamönnunum hefui
fjölgað á sama tíma og
þeim eldri virðist hafa fækk-
að. Á fáeinum árum hefur hand-
tökum barna undir fimmtán ára
aldri fjölgað um 650 prósent. Næ
fimm hundruð mál sem tengjast
ungum afbrotamönnum voru
kærð til lögreglu á síðasta ári.
Aigengustu brot ungra afbrota-
manna eru líkamsárásir, innbroi
og eignaspjöll.
HITTMALIÐ
Halldór Örn Rúnarsson, dreifingar- og markaðs-
fulltrúi, er sár út í tannlækninn sinn:
Erfiðaðgerð FormaðurTann-
læknafélags Islands segir rótfyllingu
við endajaxl áhættusama aðgerð
þar sem borinn geti brotnað.
TANNLÆKNAB0R
IMUNNIITV0AR
TRAUSTI HAFSTEINSSON
bladcimadur skrifar: trausti@dv.is
Halldór Örn Rúnarsson, dreifing-
ar- og markaðsfulltrúi, hefur gengið
með brotinn tannlæknabor í munn-
inum í tæp tvö ár. Bornálin var skil-
in eftir í tönn númer 38 við endajaxl
eftir rótfýllingu.
Halldór uppgötvaði í sumar að
eitthvað var að eftir að mikill verkur
greip um sig í millilandaflugi til Sví-
þjóðar. Skömmu eftir flugið leitaði
hann til sænsks tannlæknis sem úr-
skurðaði samstundis að rótíýlling-
in væri ófullnægjandi. „Strax eftir
flugið var ég alveg að drepast í tönn-
inni og byrjaði allur að bólgna upp í
kjaftinum. Deyfifyf virkuðu ekkert á
sársaukann og því þurfti ég að leita
strax til tannlæknis," segir Halldór.
Rétti reikninginn
Sænski læknirinn útskrifaði
Halldór að lokinni skoðun og leysti
hann út með sýklalyfjum. Við kom-
una heim til íslands pantaði hann
sér tíma hjá öðrum tannlækni, ekki
þeim sem hafði framkvæmt rót-
fyllinguna, og sá uppgötvaði eftir
myndatöku að tannlæknabor væri
lokaður inni í tönninni.
Halldór skilur ekki hvernig svona
lagað geti komið fýrir hjá sérfræð-
ingum. „Tannlæknirinn virðist hafa
brotið borinn inni í tönninni og síð-
an lokaði hann bara fyrir. Ég hefði
haldið að sem fagmaður tæki mað-
ur eftir því að sjálfan borinn vantaði
á græjuna og að hann hafi orðið eft-
ir í tönn skjólstæðingsins. Nei, það
gerði hann ekki heldur lokaði bara
fyrir og rétti mér reikninginn," segir
Halldór.
Alltaf áhætta
Sigurjón Benediktsson, formað-
ur Tannlæknafélags Islands, þekkir
fleiri tilvik þar sem bor hefur brotn-
að í tönnum enda segir hann rótfyll-
„Nei, það gerði hann
ekki heldur lokaði bara
fyrir og rétti mér reikn-
inginn"
ingu í rauninni áhættusama aðgerð,
sér í lagi nærri endajöxlum. „Þetta
kemur stundum fýrir og það er ekki
gaman að lenda í þessu, sjálfur er ég
hættur að rótfylla aftarlega í munn-
inum. Það er bara svo erfitt að kom-
ast að og nálarnar geta brotnað. Yf-
irleitt kemur þetta hins vegar ekki
að sök en það er alltaf áhætta að
skilja nálina eftir. í þessu tilviki er
það ekki nógu gott að tannlæknir-
inn lét sjúklinginn ekki vita," segir
Sigurjón.
Aðspurður sér Halldór ekki enn
fyrir endann á vandræðunum þó
svo að tannlæknirinn sem skildi
borinn eftir í tönninni hafi boðist
til að leiðrétta mistökin. Hann ótt-
ast að mistök læknisins eigi eftir að
kosta sitt og segist enn í dag vera
bólginn í munninum út af bornum.
„Mér fannst ansi skítt að fá þau svör
frá tannlækninum að svona lagað
geti alltaf gerst. Nú þarf ég að berj-
ast fyrir því að fá þetta lagað og von-
andi kemur ekki til þess að ég þurfi
að fara í meiriháttar aðgerð út af
þessu," segir Halldór.