Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2008, Side 18
18 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008
Umræöa DV
ts/Mtífnorföh1HaUir
^ ^ 11 wulffmorgonthalcr.com
By Mikael Wulff & Anders Morgenthaler
HVAÐ BAR HÆST í VHOJNNI?
Hetjurá Langjökli
„Hinn sorglegi dauðdagi Benazir Bhutto
í Pakistan rétt fyrir áramótín vakti mann til
umhugsunar um það hve lánsöm íslenska
þjóðin er að vera laus við vandamál af því
tagi sem Pakistan, Kenía og fjölmörg þriðja
heims lönd þurfa að glíma við. Á með-
an sitjum við að veisluborðum hér uppi á
Islandi og eigum ástsælan forseta. Það er
fagnaðaefni að hann hyggist sitja í forsæti
enn um sinn.
Annað umhugsunarefni hversu þolin-
móðir fslendingar eiga að vera gagnvart
fólki sem vísvitandi teflir sjálfu sér og börn-
um sfnum í lífsháska á borð við þá glæfraför
sem 11 manns lögðu í á Langjökul um ára-
mótin þrátt fyrir viðvörunarspár Veðurstof-
unnar. Björgunarmönnum var stefnt í lífs-
hættu í 100 metrum á sekúndu einu mesta
hvassviðri sem mælst hefur á fslandi."
Jakob Frímann Magnússon,
tónlistarmaður
Óveðurog hlaupabóla
„Að fá svona mikið óveður einu sinni
enn hefur eflaust sett strik í reikninginn
fyrir alla um áramótin, gerði það hjá mér.
Barnið mitt fékk líka hlaupabólu núna fyrir
nokkrum dögum. Það er ekki skemmtíleg
bóla og setti dálítið strik í reikninginn líka.
Annars bar það líka hæst að leikmyndin
fyrir La Traviata var að koma í hús og erum
við í Óperunni mjög spennt að sjá hana.
Óperan verður frumsýnd áttunda febrúar.
Einnig fannst mér merkilegt að Ólafur
Ragnar skuli bjóða sig fram aftur. Við sem
erum ung þekkjum bara tvo forseta á ævi
okkar, hann mun þá sitja í að minnsta kosti
sextán ár lfkt og Vigdís Finnbogadóttir. Ég
held að það sé ekki algengt. Spennandi að
sjá líka hvort einhver bjóði sig fram á mótí
honum."
Inga María Leifsdóttir,
kynningarstjóri
Nýkominn frá
Kaupmannahöfn
„Það er auðvitað fjölskyldan sem bar
hæst í þessari viku. Var um síðustu helgi
í Kaupmannahöfn þar sem ég hélt upp á
litlu jólin með fjölskyldu og litlu systrum
sem búa þar. Við hjónin fórum líka með
yngstu dætur okkar á Gosa. Það er alltaf
eitthvað sérstakt við það að fara með ung
böm í leikhús. Það er svo mikil innlifún í
gangi hjá þeim. Svo er gamlárskvöld stærsti
viðburðurinn. Það var mikið at á Landa-
kotstúninu, þrátt fyrir rokið. Svo er jólaball-
ið í dag. Nóg að gera.
Svo reyni ég að vera alvörugefinn á
milli og lesa ævisögu Alan Greenspan,
fyrrverandi seðlabankastjóra Banda-
ríkjanna. Ég sofna jafnóðum út ffá henni.
Eiga hátíðarnar ekki bara vera svoleiðis?"
Helgi Hjörvar,
þingmaður
Brá í brún í vikunni
„Mér fannst áramótagreinar
forsætísráðherra mjög góðar. Eins
umræðan um það hvort takmarka eigi setu
forseta í embættí við ákveðinn árafjölda.
Það sem bar einnig hæst þessa vikuna voru
áramótin. Ég var með alla stórfjölskylduna
í mat heima hjá okkur hjónum og var það
afskaplega ánægjulegt að hafa nokkrar kyn-
slóðir saman komnar tíl að gleðjast. Það
var auðvitað skotíð upp flugeldum og þóttí
mér gaman að sjá hversu margir tóku þátt í
að fagna, þó veðrið hefði mátt verið betra.
Árið var mjög viðburðaríkt og vona ég að
nýja árið verði okkur landsmönnum gott.
Svo á líka yngri sonur minn afmæli í dag,
hann er 29 ára. Ég verð að segja að mér
brá dálítið í brún því það þýðir að ég er að
eldast líka. Ég get líka látíð mig hlakka til
því ég á von á öðru barnabarni á árinu."
Sólveig Pétursdóttir,
fyrrverandi forseti Alþingis