Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2008, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2008, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 Helgarblað PV Sigurgeir Pétursson ók á hús foreldra sinna tveimur dögum fyrir brúökaup sitt. Hann hafði ferðast yfir hálf- an hnöttinn til að giftast sinni heittelskuðu á íslandi, hinni velsku Söruh English. Sigurgeir gifti sig á hækjum í Þingvallakirkju þar sem nánustu ættingjar voru viðstaddir, þar á meðal Linda Pétursdóttir, systir Sigur- geirs. í veislunni sjálfri gæddu gestir sér á íslensku skyri. Konunni leist í fyrstu ekkert á að hafa skyr í eftirrétt í brúðkaups- veislunni en það gerði stormandi lukku. „Þetta sló alveg í gegn hjá útlend- ingunum. Það var ekkert eftir," segir Sigurgeir hróðugur Á bakka Bláa lónsins Þessa dagana taka hjónin því ró- lega hér á Islandi. Blaðamaður náði tali af Sigurgeiri þar sem hann sat og horfði yfir Bláa lónið, ekki fjarri því að þykja örlítið súrt í broti að geta ekki farið ofan í með konu sinni og ættingjum vegna umbúðanna. Sigurgeir og Sarah eiga alls fimm börn, hann á tvö en hún þrjú af fyrri samböndum. Ekki er á dagskránni að halda í hefðbundna brúðkaups- ferð en stutt stopp verður gert á ferðinni til Nýja-Sjálands í Los Ang- eles þar sem börnin fá útrás í fjör- legum skemmtigarði. Fjölskyldan fer aftur heim 8. jan- úar og á Sigurgeir pantaðan tíma daginn áður þar sem hann vonast til að losna við umbúðirnar. Fjölskyldusæla Sarah og Sigurgelr Pétursson ásamt börnum sínum fimm viö athöfnina (Þingvallakirkju. ert á að hafa skyr í eftirrétt í brúð- kaupsveislunni en það gerði storm- andi lukku," segir Sigurgeir. Skyrið var þó í heldur fínni búningi held- ur en aðeins með rjóma og sykri, heldur var það bætt berjum og var uppistaðan sem pönnukökufylling. Saetar og saklausar Brúðarmeyj arnar sinntu starfi s(nu af miklum metnaði og slógu hvergi feilnótu. Ósigrandi með hækjuna Sigurgeir Pétursson lét vélsleðaslys og fjörutfu spor ekki stoppa sig i að giftast elskunni sinni. í;:: ‘É Æ f áM ENDAÐIHNATTFERÐA HÆKJUM í BRÚÐKAUPI ERLA HLYNSDÓTTIR bladamadurskrifar: erla@dv.is Sigurgeir Pétursson athafnamað- ur hefur búið á Nýja-Sjálandi í tvo áratugi en kom hingað til lands fyr- ir áramótin með unnustu sinni til að ganga í það heilaga. Vélsleða- slys tveimur dögum fyrir athöfnina virtist þó ætla að setja strik í reikn- inginn þegar Sigurgeir ók á hús for- eldra sinna og endaði á sjúkrahúsi þar sem sauma þurfti fjörutíu spor í framanverðan vinstri fótlegg. Bjargaði barninu „Ég sá bara inn í bein," segir Sigur- geir og rifjar upp síðasta fimmtudag ársins. Foreldrar hans búa í Gríms- nesinu og var Sigurður á vélsleða á lóðinni þar í kring ásamt litlum fé- laga sínum þegar ósköpin dundu yfir. Þeir höfðu tekið nokkra hringi og voru við það að nema staðar þeg- ar annar hvor þeirra rakst í bens- íngjöfina þannig að sleðinn klessti beint á húsið. Sigurgeir setti vinstri fótlegginn út til að verja drenginn og slapp hann við meiðsl. Sjálfur var hann ekki jafnheppinn. fsland best í heimi Sigurgeir hefur lengst af starfað við sjávarútveg en undanfarið hef- ur hann tekið að sér ýmis verkefni fyrir sjávarútgerðir í Argentínu. Um þrjú ár eru síðan hann kynntist eig- inkonu sinni, hinni velsku Söruh English sem í dag ber eftirnafnið Pétursson. Ástir tókust með þeim á Nýja-Sjálandi og sannfærði Sigur- geir hana um að hvergi væri betra að ganga í hjónaband en á Islandi. Ættingjar Söruh eru flestir frá Bret- landseyjum og því stutt að fara. Hjónavígslan í limbói Eftir slysið var um tíma tvísýnt um hvort hjónavígslan gæti orðið á tilsettum tíma en stóri dagurinn var laugardagurinn 29. desember. Sig- urgeir dvaldi á spítalanum aðfara- nótt föstudagsins með styrka hönd Söruh sér við hlið. Eftir saumana fjörutíu voru settar umbúðir á fót- legg Sigurgeirs og hann útskrifaður á hækjum. Ljóst var að allt gat farið fram samkvæmt áætlun. Skyr í brúðkaupinu Kristján Valur Ingólfsson Þing- vallaprestur gaf skötuhjúin saman í fallegu veðri að íslenskum hætti, snjó og frosti. Alls voru um þrjátíu manns viðstaddir og kunnu ensk- ir ættingjar Söruh vel að meta jóla- snjóinn þótt þeim væri hann alls ekki ókunnur. Eftir athöfnina fór fylkingin yfir í Valhöll þar sem gestir gæddu sér á þríréttaðri veislumáltíð sem Sigurgeir segir hafa verið lysti- lega framreidda. f forrétt var borin fram sjávarréttafantasía og íslenskt íjallalamb var í aðalrétt. Lok máltíð- arinnar komu hins vegar mörgum á óvart. „Konunni leist í fyrstu ekk-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.