Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2008, Blaðsíða 39
DV Helgarblað
FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 39
GeirJón Þórisson, yfirlögregluþjónn
Geri [)að strax
sem ég ætla
'3
„Nei, það eru mjög mörg ár
síðan ég gerði það síðast. Ef ég
ætia mér að gera eitthvað geri
ég það bara strax. Ég þarf ekki
að bíða eftir tímamótum til að
byrja á einhverju nýju, geri það
bara núna. Þetta snýst um að
stilla sig af í hausnum. Þannig
að ég strengi engin áramóta-
heit"
Búi Bendtsen, útvarpsmaður
Halda sínu striki
„Það var eitthvað lítið um
þau þessi áramótin. Bara
að halda áfram á beinu
brautinni. Halda mínu
striki og taka því sem
kemur. Þetta var
viðburðaríktárog ég lét ioig'
það duga. Annars hef ég
aldrei verið mikið í því að
strengja áramótaheit þó
að það sé góð og gild
hefð."
Xd
Atli Bollason, ritstjóri og hljómborðsleikari
Áramótaheitin óþörf
„Nei, ég gerði það reyndar ekki.
Ég held að ef fólk er svona
sæmilega agað og sátt við sjálft
sig þurfi það ekki á svona
heitum að halda. En á hinn
bóginn ef þetta hjálpar fólki að
losna við ósiði set ég þumlana
upp, en annars eru áramótaheit
ekki fyrir mig," segir Atli
Bollason, sem skemmti sér
konunglega í góðra vina hópi í
Austurbæ Reykjavíkur um
áramótin.
Auðunn Blöndal, skemmtikraftur
Ætlar að losna við
óþverrann
„Njahh, ég ætla reyndar að
reyna að losa mig við einn
ávanabindandi óþverra á þessu
ári. Það er kominn tími á það
held ég. Ég vil helst ekki segja
hver sá óþverri er en fólk getur
giskað í eyðurnar."
m
CurverThoroddsen, listamaður
Áramótaheitin svekkja
mann bara
„Nei, ekki að þessu sinni. Ég
hætti því fyrir svona tveimur
til þremurárum og hef í
rauninni ekkert pælt í þessu
síðan. Maður átti það til að
brjóta þessi áramótaheit
strax á fyrstu dögunum. í
staðinn fyrir að vera að
svekkja sig á því að hafa
brotið þau ákvað ég bara að
reyna að setja mér markmið
jafnt og þétt yfir áriö."
(
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður
Strengi heit daglega
„Nei, ég er löngu vaxin upp úr
því. Mín reynsla er sú að þau
falla yfirleitt á fyrstu vikunni.
Einhvern tímann stengdi ég til
dæmis það áramótaheit að
hætta að drekka kaffi, það
gekk reyndar ágætlega í
byrjun eftir að ég áttaði mig á
því hversu mikið eitur kaffið er.
Þegarég hafði ekki drukkið
það í þrjá daga fékk ég
hvilikan höfuðverk að ég hélt
ég væri að fá heilablóðfall. Annars má segja að ég strengi
daglegt áramótaheit sem felst í því að gera betur á morgun
en ég gerði í dag."
Margrét Sverrisdóttir, varaborgarfulltrúi
Markmið sem ég geymi
með sjálfri mér
„Ég strengdi ekkert beinlínis
áramótaheit en setti mér
markmið sem ég geymi bara
með sjálfri mér. Ég hef ekki
vanið mig á að reyna að
gerbreyta einhverju
lífsformi, enda er ég mjög
ánægð með lifið eins og það
er. Þetta er meira svona það
sem mig hefur alltaf langað
til að gera, en hef ekki verið
dugleg við. Það kemur bara í Ijós hvort mér tekst að gera
þetta," segir Margrét og hlær.
I
l(i
Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður
Reyklaus eftir kosningaheit
„Ég hef ekki lagt í vana minn að
strengja áramótaheit og gerði
það því ekki heldur að þessu
sinni. Mér hefur aldrei fundist
áramót vera nein sérstökástæða
til að stíga á stokk og strengja
heit. Gallinn við að strengja heit
er að það er ekki alltaf sem
maður nær að standa við þau. Þá
er best að hafa ekki verið með
neinaryfirlýsingar.
Fyrir löngu strengdi ég hins vegar
kosningaheit. Þá vartalið nokkuð öruggt að ég kæmist ekki
á þing og ég hét því að hætta að reykja ef af því yrði. Ég
taldi því litlar líkur á að ég þyrfti að standa við heitið en
úrslitin voru nú þannig að ég komst á þing og er reyklaus
enn þann daginn i dag."
Regína Ósk Óskarsdóttir, söngkona
Ætlarað beitasér
ígóðgerðarmálum
„Já, reyndar. Mitt heit er að
þessu sinni tvfþætt. Ég ætla að
hlúa að fjölskyldunni og reyna
að beita mér aðeins í
góðgerðarmálum. Það tilheyrir
þessum tímamótum að líta
fram á við og velta þvi fyrir sér
hvernig ár maður vill eiga í
vændum. Það er nauðsynlegt
að hugsa vel og vandlega um
það sem maður vill gera
öðruvísi og það á við um allt sem maður gerir - á hvaða
tímapunkti sem er. Þá er maður betur undirbúinn fyrir
breytingar. Það þýðir ekkert að ana út i hlutina því þá
verður maður oft fyrir vonbrigðum með sjálfan sig."
Árni Pétur Guðjónsson, leikari
Ætla að vinna bæði
Edduna og Grímuna
„Ég strengdi fullt af áramóta-
heitum. Ég ætla að sjálfsögðu
að verða betri maður og betri
leikari. Einnig stefni ég að því
að vinna bæði Edduna og
Grímuna. Ég ætla að fá
æðislega flottan og stæltan
líkama og svo ætla ég að
hætta að reykja. Síðasta ár var
besta ár ævi minnar og ég
stefni einfaldlega að því að
þetta verði betra. Ég er að fara
að ferðast heilan helling með Vesturporti og er einfaldlega
ofboðslega spenntur og jákvæður fyrir árinu. Ég segi þó
ekki að þetta takist allt hjá mérenda ligg ég ennþá uppi (
rúmi og er með sigarettu í kjaftinum og varla byrjaður að
taka til eftir áramótin sem voru yndisleg."
J