Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2008 Fréttir DV SANDKORN ■ Eyjubloggarinn Hafrún Kristjánsdóttir, systir Sigurð- ar Kára alþingismanns, gef- ur moggabloggurum tón- inn vegna auglýsinga Nova sem eru á mogga- bloggunum þessa dag- ana. Margir bloggarar hafa gripið til ofsa- bloggsins vegna aug- lýsinganna, meðal annars Árni Matthísasson, blaðamaður Morgunblaðsins, sem og Guð- björg Hildur Kolbeins fjöl- miðlalektor. Sjálf segist Hafrún ekki skilja gagnrýnisraddirn- ar. Hún bendir bloggurum á að Árvakur sé ekki góðgerðar- félag. Kallar hún málflutning sárra moggabloggara væl. ■ Iðnaðarráðherrann Össur Skarphéðinsson brá sér í líki Kristjáns Möller samgöngu- ráðherra um daginn. Kristján er staddur á fjarskiptaráðstefnu í Barcelona. Á bloggi sínu seg- ist Össur hafa haft sérstaklega gaman af hamskiptunum. í líki Möllers hélt Össur ræðu um netöryggi og gerði sjálfur grín að því að mesta óöryggi núverandi ríkisstjórn- arnar væri hans blogg. f lok færslunnar segist Össur strjúka yfir „kynþokkafullan" skalla Möllers í huganum. Augljós- lega spennandi dagur hjá ráð- herranum. Þá er bara bíða þess að hann bregði sér í ham Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra. ■ Baneitraði bloggpenninn Óiafur Sindri Ólafsson er kominn í athyglisverða ritdeilu við kennslukonuna Hörpu Hreinsdótt- ur sem sjálf heldur úti opinskáu bloggi um þunglyndi sem hún berst við. Ólafi virð- ist mislíka skrif kennslukonunnar. Hann segir hana hafa beðið um drulluslag og hann hafi Harpa fengið sem má sín lítils gegn eitruðum bloggörvum Olafs. Þess má geta að Ólafur, þá í líki Mengellu, hefur áður átt í nokkurs konar ritstríðum. Og þá ekki við minni menn en Ágúst Borgþór Sverrisson og Skúla Tyson, boxara frá Kefla- vík. Núna er það þunglynda kennslukonan á Akranesi. ■ Hún er eitruð, pillan sem Valgerður Sverrisdó ttir þingkona Framsóknarflokks- ins, sendir Samfylkingunni á bloggi sínu. Þar veltir hún fyrir sér stóriðju- stefnu rík- isstjórnar- innar. Eina svarið sem hún finnur virðist vera hjá Helga Hjörvar þingmanni Samfylkinging- arinnar. Að sögn Valgerðar á hann að hafa sagt við fjölmiðla að kosningaloforðin gildi ekki lengur af því að Samfylkingin fór í samstarf við Sjálfstæðis- flokkinn. Hún ályktar sem svo að þá hljóti loforð sjálfstæðis- manna að ráða för. Slíkt hljóti að vera heldur niðurlægjandi fýrir Samfylkinguna. vatur@dv.is Jón Hjörtur Sigurðarson er einn þeirra fimm sem voru handteknir í síðustu viku vegna gruns um að svíkja út vörur fyrir tólf og hálfa milljón króna. Sjálfur segist Jón Hjörtur ekki sekur um Qársvikin. Hann þurfti að dúsa í varðhaldi í fimm daga án þess að fá að fara undir bert loft. » 11 ■ ->• áiáliÖaíllWB.IlSiw ■'■- ávaS tMtó' -;.V ; KLESSTIBÍL, REKINN ÚR VINNU 0G HANDTEKINN „Þetta hefur verið ömurleg vika," seg- ir Jón Hjörtur Sigurðarson. Hann er grunaður um að hafa svikið tólf og hálfa milljón út úr rafvöruverslun- um á höfuðborgarsvæðinu en sjálfur segist hann engan þátt eiga í fjársvik- unum. Vikan hjá Jóni Hirti hefur verið heldur léleg. Hann klessti bílinn sinn, var rekinn úr vinnunni og svo hand- tekinn fyrir fjársvik. Hann þurfti að dúsa í óhreinum fötum með vísinda- skáldsögu í tæpa viku í gæsluvarð- haldi. Sjálfur telur hann lögregluna hafa brotið á honum í varðhaldinu. Hlutirnir sem sviknir voru út úr versl- unum fundust heima hjá Jóni en þar býr hann með öðrum manni. Hræðileg meðferð „Hún er hræðilega meðferðin á gæsluvarðhaldsföngunum," seg- Fylgi Sjálfstæðisflokksins hrynur samkvæmt nýrri skoðanakönnun: Níu prósent treysta Vilhjálmi Sjálfstæðisflokkurinn nýt- ur minna fylgis en nokkru sinni fyrr samkvæmt þessari skoðana- könnun. 22 prósent segjast myndu styðja flokkinn ef gengið yrði til kosninga í dag. Þetta er aðeins rétt rúmlega helmingur þess fylg- is sem hann hafði í síðustu kosn- ingum. Hins vegar segjast 42 pró- sent myndu styðja Samfylkinguna sem yrði þar með langstærsti flokk- urinn í borgarstjórn. Vinstri græn njóta stuðnings fjórtán prósenta aðspurðra. Aðrir flokkar njóta mun minni hylli. Framsókn nýtur stuðn- ings fimm prósenta, F-listi þriggja prósenta svarenda og íslandshreyf- ingin eins prósents. Athygli er vak- in á að hvort tveggja Reykvíkingar og fólk annars staðar á landinu var spurt álits. Einungis fimmti hver kjósandi, samanlagt, treystir Ólafi F. Magn- ússyni og Vilhjálmi Þ. Vilhjálms- syni best til að gegna embætti borgarstjóra samkvæmt nýrri skoð- anakönnun fyrir DV. Níu prósent segjast treysta Vilhjálmi, oddvita sjálfstæðismanna í Reykjavík, best til að vera borgarstjóri. Núverandi borgarstjóri, Ólafur F. Magnússon, nýtur litlu meira trausts því ellefu prósent treysta honum best til að vera borgarstjóri. Sá sem nýtur áberandi mest trausts er Dagur B. Eggertsson. 79 prósent aðspurðra treysta honum best fyrir borgarstjóraembættinu. Plúsinn framkvæmdi skoðana- könnunina og svöruðu 4.158 manns á landinu öllu spurningunni um hverjum þeir treystu best til að vera borgarstjóri. 66 prósent þeirra búa á höfuðborgarsvæðinu. Athygli vekur að konur eru 72 prósent þeirra sem tóku afstöðu og getur það haft áhrif á niðurstöðuna. Þá er aðeins fimmt- ungur svarenda yfir fimmtugu. VALUR GRETTISSON blaðamaður skrifar: valumt'dv.is „í versta falli fæ ég frítt húsnæði og mat, ann- ars held ég að ég fái ekki þungan dóm." ir Jón Hjörtur en honum var neitað um allan munað á meðan hann sat inni. Hann var vistaður á lögreglu- stöðinni á Hverfisgötu allan tímann. Hann segist aldrei hafa fengið að fara undir bert loft á þessum fimm dög- um sem hann dvaldi þar. Hann telur það beinlínis mannréttindabrot að meina honum um slíkt. Þá fékk hann ekki hrein föt á meðan hann gisti fangageymslur en var boðin sturta á fjórða degi. Hann segist ekki hafa séð tilganginn með því þar sem hann hefði þurft að fara aftur í óhreinu föt- in. Ævintýri í gæsluvarðhaldi „Þeir neituðu mér um sjónvarp og útvarp," segir Jón en bætir við hlæj- andi að eina dægrastyttingin sem hann fékk hafi verið ævintýraskáld- sagan Dragons of autumn twilight. „Ágæt bók svo sem, dálítið löng - en ég hafði tímann." Hann segist þó ekki leggja í að lesa hana aftur. Þá sérstaklega í ljósi þess að hann las hana í gæsluvarðhaldi. Jón segir tímann hafa verið lengi að líða í gæsluvarðhaldinu. Hann var aðeins yfirheyrður einu sinni og þurfti svo að dúsa í klefanum þar til síðdegis í gær. Ömurleg vika Jón hefur lítinn áhuga á að upplifa síðustu viku aftur. Áður en hann var handtekinn klessti hann bílinn sinn. Sjálfúr var hann í órétti og þarf því að borga fimmtíu þúsund krónur í sjálfs- ábyrgð. Síðan var hann handtekinn nokkrum dögum síðar. Að lokum var hann rekinn úr vinnunrii eftir að lög- reglan hafði samband við vinnuveit- anda hans. Jón Hjörtur segist ekki sáttur við yfirlýsingu lögreglunnar um málið. Jón bendir á að hann hafi játað að hafa komið að undirbúningi fjársvikanna en kom að eigin sögn ekki nálægt svikunum sjálfum. Frítt húsnæði Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni sviku mennirnir, sem eru á þrítugsaldri, út alls tólf og hálfa millj- ón. Þeir náðu að svíkja 1,3 milljónir út úr einni verslun. Upp um þá komst þegar árvökulir starfsmenn versl- ana áttuðu sig á því að ekki væri allt með felldu. í tilkynningu lögreglunn- ar segir að fjársvikin hafi verið þaul- skipulögð með löngum fyrirvara. Meðal annars voru seljendur blekkt- ir með fölsuðum millifærslustaðfest- ingum úr heimabönkum sem sendar voru með tölvupósti sem breytt hafði verið með þeim hætti að hann virtíst koma frá banka. Jón Hjörtur er með hreina saka- skrá og drekkur hvorki né neytir fíkni- efna. Aðspurður hvort hann óttist framhaldið segir hann: „1 versta falli fæ ég frítt húsnæði og mat, annars held ég að ég fái ekki þungan dóm."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.