Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Blaðsíða 13
PV Helgarblað
FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2008 13
hafl því leitt til þess að fleiri fóstur-
gallar greinist á kostnað færri fóst-
urláta. Til stuðnings nefnir hann
að árið 1995 hafi einn litningargalli
greinst á hver tvö fósturlát. Árið
2005 hafi aftur á móti þrettán fóst-
urgallar greinst á hvert eitt fóstur-
lát. Hann segir auk þess hafa leg-
ið fyrir að verðandi foreldrum yrði
boðið upp á aukið val, en margir
fósturgallar geti valdið verulegum
líkamlegum vandræðum.
Sigurður segir að þegar öllu sé
á botninn hvolft byggist það á for-
eldrunum sjálfum hvaða ákvörð-
un sé tekin þegar fósturgalli
greinist. Þar skipti mestu máli að
þeir séu ekki beittir þrýstingi um
að halda fóstrinu eða láta eyða
því. „Mikilvægt er að foreldrar fái
sem mestar upplýsingar. Nú er
reynt að veita foreldrum upplýs-
ingar eftir því sem kostur er. Par-
ið fær að ræða við heilbrigðis-
starfsmenn eða erfðaráðgjafa og
svo er stundum reynt að leita eft-
ir persónulegri reynslu. Stundum
gerir fólk það að eigin frumkvæði
en annars er það oft að búið er að
ákveða framhaldið fyrirfram," seg-
ir Sigurður.
Unnur Helga Óttarsdóttir, for-
maður Félags áhugafólks um
Downs, segir ýmislegt mega bæta
þegar kemur að upplýsingagjöf til
verðandi foreldra og kallar eftir því
að foreldrar geti fengið leiðsögn
sem snúi meira að uppeldislegri
hlið málsins en þeirri læknis-
fræðilegu. Sigurður segir að ef-
laust mætti bæta upplýsingagjöf-
ina og að sjálfsagt væri að skoða
hvort hægt væri að koma því við.
„Þetta mál er erfitt siðfræðilega,
en fólk á spítölum er mjög opið
fýrir öllu hvað það varðar. Þarna
er um að ræða einstaklinga sem
eiga á hættu að ganga í gegnum
mikla líkamlega erfiðleika á lífs-
leiðinni," segir Sigurður. roberthb@
i „ÞAR VERÐUR AÐ
HORFATILÞESS
HVORT SKIMUNIN
SKILIMEIRIÁVINNINGI
EÐAÁHÆTTU FYRIR
SAMFÉLAGIÐ. HVERJU
ER FÓLK BÆTTARA
EF ÞAÐ ÁKVEÐUR AÐ
EYÐA FÓSTRIÞEGAR
KEMUR UPP GALLI?"
Fósturskimun Hulda Hjartardóttir
yfirlæknir segir að ef allar konur
gengjust undir fósturskimun myndi
hún lelða í Ijós um 90 prósent
fósturgalla á meðgöngu.
inna galla eða vegna félagslegra
aðstæðna.
Fleiri gallar greinast, færri
fósturlát
Sigurður Guðmundsson land-
læknir segir að til grundvallar því
að fósturskimun var tekin upp á
íslandi árið 1999 hafi legið að hún
takmarki verulega þann fjölda
kvenna sem leiti í fósturgreiningu,
sem sé áhættusöm aðgerð vegna
hættu á fósturláti. Fósturskimun