Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Blaðsíða 11
DV Helgarblað FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2008 11 - - • ySStmiWÉ^ (t ■ „AUÐVITAÐ KOMA SKIN OG SKÚRIR ÞAR SEM HÚN VERÐ- UR FÚLYFIR FÖTLUN HANS. ÉG HELD AFTUR Á MÓTIAÐ HÚN HAFIÞROSKAST FYRIR VIKIÐ OG ÞETTA GERT HANA AÐ BETRIMANNESKJU." óttast hvaða afleiðingar heilkennið kynni að hafa á heilsufar barnsins. Katrín segir að þau Jón hafi feng- ið fjöldann allan af heimsóknum frá sínum nánustu í kjölfar fæðing- arinnar þar sem þeim var sýndur stuðningur vegna Ivars, en þetta var í fyrsta skipti sem fatlað barn fædd- ist inn í fjölskylduna. „Ég gladdist mjög þegar mágkona mín tók fvar í fangið og sagði hversu yndislegur hann væri. Hún var sú fyrsta sem horfði til hans í stað okkar Jóns. Fljótlega áttuðu svo allir sig á því að þarna væri um lítið barn að ræða," segir Katrín. Hvert framfaraskref vekur gleði Eftir fæðinguna fóru Katrín og Jón í foreldraráðgjöf hjá Þroska- hjálp þar sem þau fengu með- al annars fræðslubækur um upp- eldi barna með Downs. Á þessum tíma var einnig Félag áhugafólks um Downs nýstofnað og gengu þau bæði í það. Þetta var mikill lær- dómur fyrir þau í upphafi en Katr- ín segir að þau hafi fljótt aðlagast aðstæðum. I raun hafi hið jákvæða verið að þau vissu að hveiju þau gengu sem sé ekki hægt að segja um fjölda tilfella sem varða þroska- hömlun barna. Þetta hefur meira að segja haft áhrif á ættingja Katrínar og Jóns sem hafa ákveðið að kjósa sér starfs- eða námssvið sem teng- ist börnum með þroskahömlun. Systir Jóns fékk til að mynda áhuga á námi í sálfræði með áherslu á þroskahömlun bama. Katrín segir að álagið hafi vissu- lega verið meira en ella á fjölskyld- una vegna fötlunar ívars Hrafns, meira hafi verið að gera og börnin verði ekki sjálfbjarga strax. Hvert lítið framfaraskref geti aftur á móti verið stórt í huga foreldranna og veki ávallt gleði þeirra. Katrín segir að erfiðast hafi verið að taka þeim samfélagslegu fordómum sem fylgi börnum með Downs-heilkenni og hvað krakkarnir virðist í raun vera óvelkomnir í heiminn oft og tíðum. „Þetta hefur gert fjölskylduna okk- ar samhentari fyrir vikið. Börnin hafa jafnmiklar tUfinningar og ann- að fólk og gefa mjög mikið af sér," segir Katrín. Hefur áhuga á matreiðslu Fyrst um sinn bjó fjölskyldan í Reykjavík, eða þar til fvar var eins og hálfs árs. Þá flutti hún til Hvera- gerðis þar sem fvar fór í fyrsta sinn í leikskóla. Katrín segir að hún hafi haft áhyggjur af því hversu veik- byggður ívar yrði líkamlega vegna fötlunar sinnar. Hann hafi þó ver- ið mjög hraustur allt þar til hann fór að umgangast önnur börn á leikskólanum. Hann fékk þó asma snemma á lífsleiðinni sem hann hefur nú jafnað sig á. Nú til dags eru veikindi hjá honum ekkert tíð- ari en hjá öðrum krökkum. Fjölskyldan flutti til Akraness þegar fvar var um þriggja ára og hefur búið þar síðan. Nú til dags er ívar Hrafn á sérdeild í skóla þar sem hann fær aðstoð og fer eftir ein- staklingsmiðaðri riámskrá. „Hann er hamingjusamur og gerir allt það sem venjuleg börn gera. Hann er í tónlistarskóla þar sem hann er að læra á píanó, en æfir auk þess sund og hefur mikinn áhuga á mat- reiðslu. Honum hefur alltaf fundist gaman að hjálpa til á heimilinu og hann elskar að brjóta saman þvott- inn. Svo hittir hann vini sína þeg- ar hann fer í dagvistun í félagsmið- stöðinni Arnardal þar sem þeir fara meðal annars í fótboltaspil. Þar hittir hann meðal annars vin sinn, jafngamlan honum, sem einnig er með Downs. Þá er hann eina helgi í mánuði í vistun í Holti þar sem hann fær að kynnast öðrum fötluð- um börnum," segir Katrín. Katrín segir fvar taka virkan þátt í daglegu lífi. Hann sé verulega dug- legur, reglusamur, félagslyndur og minnugur. Katrín segir að fvar sé til að mynda mjög snöggur að leggja nöfn fólks á minnið. Þá finnist hon- um fátt skemmtilegra en að vera innan um fólk, lílct og í veislum. Katrín segir hann eiga auðvelt með að knúsa fólk og kyssa og sé jafn- vel með meiri tilfinningagreind en margur. Þá segir Katrín að þau Jón hafi nýlega farið að taka eftir unglingatöktum hjá fvari þar sem hann vilji horfa á myndir bannaðar börnum og vilji fara seinna að sofa á kvöldin en eíla. Ógnvænleg framtíðarsýn Katrín og Jón eiga tvær dætur sem eru yngri en fvar Hrafn og eru orðnar sex og tveggja ára. Systkin- unum hefur komið vel saman og er eldri systir fvars góður leikfélagi Áhyggjur af líkamlegum erfiðleik- um Fyrst um sinn óttaðist Katrin að (var ætti eftir að ganga í gegnum líkamlega erfiðleika. Hann sækir nú vikulega sjúkraþjálfun en lifir þar fyrir utan hefðbundnu lífi krakka. 'W Hefðbundið daglegt líf fvar hefur mikinn áhuga á matreiðslu, hann er í tónlistarnámi og elskar að hjálpa til á heimilinu. n hans. Katrín segir að dóttur sinni sé orðin fyllilega kunnug fötlun bróð- urs síns. Henni finnist það ekki til- tökumál þótt hún þurfi útskýra fyr- ir vinkonum sínum sem koma í heimsókn um ástand fvars. „Auð- vitað koma skin og skúrir þar sem hún verður fúl yfir fötlun hans. Ég held aftur á móti að hún hafi þrosk- ast fyrir vikið og þetta gert hana að betri manneskju," segir Katrín. Á þeim tíma sem Katrín gekk með dætur sínar var farið að bjóða upp á fósturskimun. Katrín tók aft- ur á móti þá ákvörðun að fara ekki í hana þegar hún gekk með dæt- ur sínar. „Aðrir gerðu ráð fyrir því að ég myndi fara í einhvers konar rannsókn, en ég valdi frekar að taka því ef annað barn okkar hefði ver- ið með Downs. Ég veit hins vegar ekld hvað hefði gerst ef mér hefði staðist þessi kostur til boða þegar ég gekk með fvar Hrafri. Þá hefði ég eklci búið yfir þeirri þekkingu sem ég hef öðlast síðan á Downs-heil- kenninu og því ómögulegt að segja til um hverjar ákvarðanir mínar hefðu verið. Allar konur vilja eign- ast fullkomið barn en hægt er að finnast barnið sitt fullkomið þótt það sé fatlað," segir Katrín. Katrín segir siðferðið þegar kemur að fóstureyðingum nú til dags vera þannig að fólk telji þær ekki vera neitt mál. „Mér finnst ógnvænlegt að hugsa til þess að ívars líkir verði kannski ekki til eft- ir tuttugu ár," segir Katrín og ósk- ar eftir því að verðandi foreldrum verði veittar upplýsingar sem snúi meira að uppeldislegri hlið máls- ins. Hún kallar jafnframt eftir því að rannsókn verði gerð á aðstæð- um foreldra og fjölskyldna barna með Downs og hvort þau auki álag á fjölskyfdulífið. Katrín telur þá stefnu sem haldið er á lofti í heil- brigðismálum vera þá að Downs- börn komi til með að auka álagið á fjölskyldurnar og þess vegna líti margir á sem svo að þeir geti ekki tekið þau að sér. Vonarað ívar verði hamingjusamur Aðspurð hvernig Katrín sjái ffamtíð ívars fyrir sér segist hún óttast mest hvað muni gerast að lokinni skólagöngu hans, þegar hann fari út á hinn almenna vinnu- markað. Hún segir að þrátt fyrir að það hafi verið mjög gott að ala upp fatlað barn á Ákranesi og að öíl þjónusta þar hafi verið til fyr- irmyndar, séu atvinnutækifærin engin þegar krakkarnir gangi út á veg lífsins. „Mér finnst líkt og fjöl- breytnin fyrir fatlaða einstaklinga sé meiri í Reykjavík, eins og við að aðstoða í verslunum. Ég vona að hvað sem gerist í framtíðinni, skili hann sér sem sjálfstæður og ham- ingjusamur einstakfingur út í lífið," segir Katrín. roberthb@dv.is ( \ Framhaldá næstu opnu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.