Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Blaðsíða 68
68 FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2008
Helgarblað DV
4
BUBBI
BRJÁLAÐUR
Bubbi Morthens hraunar allharka-
lega yfir blaðamennina Dr. Gunna
og Dóra DNA á spjalltorginu á
bubbi.is. Blaðamennirnir hafa
báðir lýst yfir vonbrigðum sínum
með nýjan þátt kóngsins; Bandið
hans Bubba. „Sá sem skrifar í Dv
hefur urmið sér það til fræðgra
að vera útþynt gen komið Frá
Nóbelsskáldinu og er svona
einskonar vonabí eithvað en hefur
þó ekki náð lengar en að skrifa
um kvimyndir og bandið hans
Bubba hinn hjá Fréttablaðinu er
greindur beiskur maður sem fýrir
margt löngu síðan voru bundnar
miklar vonir við en því miður
Rættist bara ekki úr honum og
hann virðist gera sér grein fýrir því
hann og Jónas kristjánsson eiga
það sameiginlegt fullir af grefti
segir Bubbi - og er greinilega heitt
í hamsi.
mww
■
DAGURTIL
NEWYORK
í dag heldur kvikmyndagerðarmað-
urinn Dagur Kári Pétursson til New
York en brátt hefjast þar æfingar fyrir
nýjustu kvikmynd hans, The Good
Heart. Kvikmyndin gerist í New York
og að sögn Dags Kára munu tökur
fara þar ffam að hluta til en allar inni-
tökur fara ff am hérlendis. Tökurnar
hefjast í apríl en í aðalhlutverkum eru
leikarinn Paul Dano sem þekktastur
er fýrir hlutverk sitt í Little Miss Suns-
hine og There Will Be Blood og Brian
Cox sem nú síðast sást í kvikmynd-
inni Zodiac. Leikararnir eru væntan-
legir til íslands í maí til að kiára tökur
á myndinni og mun The Good Heart
verða frumsýnd snemma á næsta ári.
Valgeir Sigurðsson tónlistarmaður er um þessar mundir að leggja
lokahönd á tónlist sem hann er að semja fyrir nýja spennuþætti sem
fara í loftið um páskana. Þættirnir, sem verða sýndir á
RÚV, heita Mannaveiðar og þeim er leikstýrt af
Birni Brynjúlfi Björnssyni ogbyggjast
á skáldsögunni Afturelding eftir
Viktor Arnar Ingólfsson.
Valgeir var í óða önn að mixa tónlistina þegar DV náði tali
af honum í hljóðveri hans, Gróðurhúsinu í Breiðholti. Þar
hefur hann verið að hljóðrita strengjasveit og blásara,
ofan í eigið spilirí og má því ætla að hér sé öllu tjaldað
til.
„Ég held að það sé dálítið mikið lagt í þetta prójekt
þannig að ég var bara mjög spenntur að taka þátt í
þessu," segir Valgeir. „Þetta eru fjórir þættir og ég er að
semja fyrir þá alla."
Hvernig tónlist er þetta? „Vonandi eitthvað
spennandi. Þetta er svolítill svona draugadrungi. Þarna
eru dularfull morð og spennó stemning sem þarf að
túlka í tónlistinni."
Á vel við þig að skora svona sjónvarpsþætti? „Já,
mér finnst þetta skemmtilegt. Ég fæ mjög frjálsar
hendur og þótt það sé ákveðin lína sem ég fýlgi fæ ég
líka að segja söguna eða túlka hana á minn hátt. Mér
var bara treyst tif að gera það sem mér þætti viðeigandi.
Þarna eru líka hörkuleikarar á ferðinni, þetta er alvöru
glæpasería," segir Valgeir.
Ætlar þú að búa þessa tónlist til útgáfu? „Það
hefur hvarflað að mér, en ég veit það ekki. Ég er á
lokasprettinum með þetta núna og ætfa bara að sjá
til þegar ég er búinn að koma þessu frá mér. Ég
þarf smá fjariægð á þetta til þess að sjá hvort þetta
stendur eitt og sér."
Valgeir rekur útgáfufyrirtældð Bedroom Community
ásamt bróður sínum Míó og tóniistarmönnunum Ben
Frost og Nico Muhly. Fyrirtækið gaf nýverið út plötu með
bandaríska þjóðlagasöngvaranum Sam Amidon, „All is
Well" og er að undirbúa útgáfu nýrrar plötu með Nico.
Sjálfur sendi Valgeir frá sér sína fyrstu breiðskífu,
„Ekvilibríum" á dögunum en þá gafst enginn tími tíl að fylgja
henni eftir með tónieikahaldi þar sem hann var þá búinn að
lofa sér í tvö önnur verkefni með söngkonunum Ane Brun og
Camille sem hann dembdi sér í. Á vordögum hyggst hann þó
bæta úr því og halda í Evróputúr ásamt hljómsveit sinni og
Sam Amidon.
GILLZENEGGER LOFAR KRAFTI í ÚRSLITUNUM:
LOFAR FULLUM
KRAFTINÆST
„Við gerðum bara það sem við þurftum til
þess að komast áfram," segir Egill Gillzen-
egger Einarsson, forsprakki The Mercedes
Club, um flutning lagsins Hey, Hey, Hey, We
Say Ho, Ho, Ho í Laugardagslögunum um
síðustu helgi. Lagið, sem var af flestum tal-
ið það sigurstranglegasta, var ekki jafnöflugt
í flutningi og það var upphaflega og misstu
margir trú á Gillz og félögum. Gillz segir
ástæðu þess að lagið hljómaði kraftlítið ein-
falda. „Áf hverju að splæsa í allt proppsið og
allan kraftinn í undanúrslitum? Ég skil ekki
þessa umræðu. Menn þurftu bara að losa
sig við smá skrekk, sem er nú farinn. Þetta
var alveg eins og við æfðum það," segir Gillz
og bendir á að flutningurinn hefði ekld ver-
ið nema upphitun fyrir úrslitakvöldið sem
haldið verður 23. febrúar. „Þá verður allur
krafturinn settur í gang og kóngurinn mun
springa af Smáralindartíllanum, því get ég
lofað," segir Egill, en úrslitakvöldið verður
haldið í Smáralindinni.
Gillzenegger Segir
The Mercedes Club hafi
aðeins verið að hita
upp um síðustu helgi.
VALGEIR SIGURÐSSON TÓNLISTARMAÐUR:
MIKI
&
LAGT
IMANNAVEIÐAR