Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Blaðsíða 35
DV Sport
íáSTUPAGUR 15. FEBRÚAR 2008 35
Einn allra besti knattspyrnumaður allra tíma, Brasilíumaðurinn Ronaldo,
meiddist alvarlega á miðvikudaginn þegar hann féll skringilega í teig
Livorno í italska boltanum. Ronaldo hefur áður glímt við erfið hnémeiðsli
á sínum ferli og nú er óttast að The Phenomenon eða undrið hafi leikið
sinn síðasta knattspyrnuleik.
RONALDO
KVEDU
VIÐURKENNINGAR RONALDOS
Leikmaður ársins hjá FIFA: 1996, 1997, 2002
Knattspyrnumaðurársins: /996, 1997,2002
Besti leikmaður Evrópu (Gullknötturinn): 1997,2002
Onze cl'Or: 1997,2002
Mikilvægasti leikmaður UEFA:/998
Gullskórinn: 1997
Markahæsti leikmaðurCopa America 1999
Markahæsti leikmaður spænsku deildarinnar: 1996-1997, 2003-2004
Markahæsti leikmaður hollensku deildarinnar: 1994-1995
STÓRA
Ronaldo Luis Nazário de Lima, betur
þekktur sem Ronaldo, er einn af
bestu framherjum allra tíma. Hann
er kallaður „The Phenomenon1' og
nefndi sjálfur Pele hann sem einn af
125 besm knattspymumönnum allra
tíma.
Ronaldo hefurunnið allt semhægt
er að vinna á knattspyrnuvellinum.
Tvisvar sinnum hefur hann orðið
heimsmeistari 1994 og 2002 og
er markahæsti leikmaður HM frá
upphafi með 15 mörk. Hann hefur
þrisvar sinnum verið valinn besti
leikmaður heims 1996,1997 og 2002
og er ásamt Zinedine Zidane eini
maðurinn sem unnið hefur þann titil
þrisvar sinnum.
Ronaldo fæddist í Bento Ribeiro,
fátækrahverfi í Rio de Janeiro í
Brasilíu. Eins og margir Brassar
hóf hann að leika knattspyrnu á
götunum í hverfinu. Eftir að hafa
verið uppgvötaður hélt hann í víking
til Evrópu og sló í gegn með PSV
þar sem hann lék með Eið Smára
Guðjohnsen nokkra leild. Þaðan
fór hann til Barcelona og skoraði
34 mörk í 37 leilcjum í deildinni.
Mörg hver stórglæsileg. Hann var
keyptur til Inter Milan þar sem hann
dvaldi í erfiðum meiðslum og lék
aðeins 68 leild á fimm árum. Engu
að síður skoraði hann 49 mörk.
Eftir Heimsmeistarakeppnina í
Japan og Suður-Kóreu árið 2002
söðlaði Ronaldo um og gekk í raðir
stjömuprýdds liðs Real Madrid. Ekld
vom allir sáttir með þá álcvörðun
og varð hann aldrei vinsæll meðal
stuðningsmanna ReaJ vegna tengsla
sinna við Barcelona. Ferill hans hjá
Real lauk skyndilega í janúar og
fór hann þá aftur til ítalíu og aftur
til Milano en gekk í raðir AC. Á
miðvikudag lauk hans ferli að öllum
líkindum. Hann féll til jarðar inni í
teig Livomo og var borinn af velli
sárþjáður og kvalinn.
HEIMSMEISTARAKEPPNIN
Markahæsti leikmaðurfra upphafi 15 mork i 19 leikjum
2006 Bronsskórinn 3 mörk
2002 Gullskórinn 8 mörk
1998 Besti leikmaðurinn
1998 Silfurskórinn 4 mork
Meiðslasagan
21. nóvemb erl999íleikmeðlnter
Milan gegn Lecce féll Ronaldo við og
þurfti að yfirgefa völlinn. Eftir skoðun
var ákveðið að senda hann í aðgerð.
í apríl 2000 eftír aðeins sjö mínúma
leik lá Ronaldo í grasinu, sárþjáður
og ferlinum ógnað vegna alvarleika
meiðslanna. Hann fór í tvær aðgerðir
og var ff á í 20 mánuði og flestir vom
búnir að afskrifa hann.
Svo kom HM 2002 og át Ronaldo
gagnrýnisraddimar í morgunmat.
Hann ffemur en aðrir í liði Brasilíu var
maðurinnábakviðheimsmeistaratitil
2002. Hann vildi fara frá Inter eftir
sífeld rifrildi við Hector Cuper þjálfara
og var seldur til Real Madrid. Hann
lék samt ekki með Real Madrid fýrr
en í október vegna meiðsla en skoraði
tvö mörk í sínum fyrsta leik.
Hann fór til AC Milan fyrir ári
og skoraði 7 mörk í 14
leikjum. Hann hafði
aðeins spilað 60 mínútur
með AC Milan á þessu
tímabili og mildð verið ffá
vegna meiðsla. Hann kom inn á
sem varamaður á miðvikudaginn
gegn Livomo þar sem hann meiddist.
Þetta em sömu meiðsli og héldu hon-
um ff á knattspymuiðkun í 20 mánuði
frá 2000 til 2002.
Peleog Zico eru
einu Brasilíumennirnirsem
hafa skorað meira en Ronaldo
í gula buningnum.
Ronaldo meiddist
alvarlega á
miðvikudagskvöld
gegn Livorno.
SVIÐIÐ