Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Blaðsíða 41
PV Helgarblad FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2008 41 „Þetta er búinn að vera mjög góð- ur tími, alla vega áhugaverður, þó svo að stundum verði maður mjög frústrer- aðuryfir öllum seina- ganginum" „Þetta er ekkert einfalt. Það er mjög sérstök til- finning að koma úr al- gjörlega ólíkum menn- ingarheimi og finnst manni stundum að mað- ur sé að brjótast inn stöðug leit að alls kyns samskipta- flötum milli íslands og Japans." Mikill áhugi á íslandi Þórður Ægir segir leitina að samskiptaflötum milli landanna tveggja í rauninni frekar einfalda. „fsland hefur ákveðinn tón sem fellur vel að þeirra heimsmynd. Við getum nefnt eldfjöllin, jarðskjálfta, fiskinn og svo eru þessar þjóðir auðvitað báðar eyríki. Þetta höfðar mjög til þeirra og þeim þykir ísland mjög spennandi. Ahuginn er mjög mikill og við gætum haldið fyrir- lestra hér í sendiráðinu daglega ef við kæmumst yfir það. Þetta snýst auðvitað líka mikið um peninga og núna höfum við svona um það bil tvær til þrjár kynningar í mánuði." Friðarsúla Yoko Ono ísland fær töluverða athygli í Japan, að sögn Þórðar Ægis. „At- hyglin sem við fáum fer stigvax- andi og við höfum fengið mjög góða pressu. Það er talsvert skrifað um okkur í blöðunum og þá aðal- lega um umhverfismál. Friðarsúla Yoko Ono fékk til dæmis töluverða athygli. Við erum svolítið öfunduð af þessari athygli af öðrum litlum aðilum hérna sem þurfa að berjast um að koma sér á framfæri," segir Þórður, greinilega mjög sáttur við þann áhuga sem landinu er sýnd- ur. Bestu „fórnarlömbin" Árlega sækja um sex þúsund Japanir fsland heim og þannig hef- ur það verið í þó nokkurn tíma. „En það hefur gengið frekar hægt að fjölga heimsóknum og er kannski meginástæðan sú að við höfum ekki beint flug. Það stóð til að bæta flugsamgöngur milli þessara landa og um tíma var leiguflug, alveg þar til síðasta haust. En við erum engu að síður mjög ánægð með að heim- sóknum hefur ekki fækkað," og Þórður bætir því við að það sé meira um að eldra fólk komi til íslands enda fara Japanir frekar snemma á eftirlaun, eða um sextugt. „Japanir ferðast mikið í hópum eins og fólk hefur eflaust tekið eftir en það er nú að breytast með yngri kynslóðum og eru þeir nú í aukn- um mæli farnir að voga sér einir í ferðalög. Þó svo að meirihluti jap- anskra ferðamanna sé í eldri kant- inum er þetta að breytast og við sjáum okkur leik á borði og reyn- um markvisst að fara í skóla og ná til þessara ungu krakka. Þau eru í rauninni bestu „fórnarlömbin" því það mun vafalítið skila sér eitt- hvað í framtíðinni. En ísland er al- veg nýtt í þessu landi, sendiráðið hefur aðeins verið hér í sex ár, svo við erum enn að finna leiðir til að brjótast inn í samfélagið." Viðskiptatengslin ekki mikil Viðskiptatengsl íslands og Jap- ans eru ekki mikil enn sem kom- ið er. Fiskurinn hefur jú samein- að þjóðirnar að einhverju leyti og einhverjar þreifingar eru á öðrum sviðum. „Viðskiptalífið er á fullu hér eins og í Kína en það virðist ekki vera jafnmikill áhugi hjá við- skiptalífmu heima á Japansmark- aði og er á Kínamarkaði. Kerfið hér í Japan er venjubundið kerfi, kapi- taliskt eins og í Evrópu. Það er líka svolítið erfitt að koma sér á fram- færi og tryggja sig á markaðinum. Þá komum við aftur að því að þeir eru svo fastir í sínu, þannig að það þarf svolítið mikið til." Beðinn um að telja upp ástæð- ur þess hve erfitt er að koma sér á framfæri á Japansmarkaði tekur Þórður Ægir dæmi af Ikea. „Þeir reyndu að koma hérna inn fyrir sex til átta árum en það féll fljótt allt eins og spilaborg. En nú er fyr- irtækið komið aftur, opnaði í fyrra og nú gengur þetta alveg glimrandi vel. Taktíkin sem þeir beittu í byrj- un var hreinlega vitlaus. Þeir átt- uðu sig ekki á því að það þurfti að laga sig að ólíkum stærðarhlutföll- um og svo var markaðssetningin hreinlega vitlaus." (slenskt vatn og skyr í Japan „Við erum nú að reyna að koma skyri á markað hjá stærsta mjólkur- framleiðanda Japans. Þetta er enn á frumstigi en lofar engu að síð- ur mjög góðu. íslenskt vatn er líka komið á markað en það er Japans Tobaco sem selur," segir Þórður Ægir þegar hann er spurður hvaða vörum sé verið að reyna að koma á markað. „Það er hins vegar svolítið flókið að koma sér upp samböndum í Jáp- an. Það tekur tíma að vinna traust manna. En um leið og þú mynd- ar samband við Japani myndast móralskt samband sem þú þarft að muna að rækta og sýna virðingu." Hægagangur í viðskiptalífinu Þetta kemur íslenskum við- skiptajöffum vafalítið spánskt fyr- ir sjónir enda einkennist okkar samfélag af miklum hraða þar sem svona lagað mundi tefja ferlið um of. „Það má til dæmis aldrei byrja fundi strax á erindinu. Það verður að byrja á smá spjalli og gefa því svona fimm mínútur. Þetta gildir um allt. Viðskiptalífið gengur mjög hægt fýrir sig," segir ÞórðurÆgir. „Það erýmislegt svona sem hafa þarf í huga. Til dæmis ef haldið er boð, þá er ótal margt sem þarf að íhuga áður en boðskortin eru send út. Þú þarft að fara vel yfir öll þau nafnspjöld sem þér hafa verið af- hent - það má enginn gleymast. Ef það gerist lætur fólk okkur stund- um vita, sendir ábendingu um að þessi og hinn megi ekki gleymast og ef þú gleymir einhverjum - þá er sambandið búið og það virkar mjög neikvætt út á við." íslensk tónlist - góð land- kynning í tíð sinni sem sendiherra í Jap- an hefur Þórður Ægir tekið á móti mörgum íslenska tónlistarmann- inum þar í landi og mætt á allflesta tónleikana. Það má líka eflaust full- yrða að fáir menn í hans stöðu hafa jafnmikla þekkingu og hann á ís- lenskri tónlist. Þórður segist vera sannfærður um mikilvægi íslenskr- ar tónlistar þegar kemur að því að kynna land og þjóð. „Hér er til dæmis kennd fslenska við einn há- skólann og ég veit að slatti af þessu fólki er að læra íslensku út af tón- listinni sem frá (slandi berst. Tón- listin kveikir svo mikinn áhuga, eins og til dæmis Björk og Sigur Rós. Það er fullt af fólki sem ferðast til íslands út af tónlistinni því það vill vita hvaðan þessir tónlistar- menn koma. Þannig var þetta líka þegar ég var í Austurríki. Af þess- um sökum tel ég mjög mikilvægt að nota tónlist meira til að kynna ísland og ná þannig til yngri kyn- slóðarinnar." Líklega á heimieið Þórður Ægir gerir ráð fyrir því að fá tilkynningu nú í sumar frá utan- ríkisráðuneytinu sem flytur honum þær fréttir að nú sé komið gott, nú eigi hann að fara heim. „Ég er bú- inn að vera svo lengi. Nú líður á mitt fjórða ár hér í Japan sem er oftast það sem miðað er við. Það er ekki talið gott að vera of lengi því þá er hætt við að fólk samsami sig samfé- laginu um of og gleymi hvað það er að gera þarna. Fólk hættir að vera á tánum fýrir því að kynna samfélag sitt og lífið færist í of mikla rútínu. Þetta er búinn að vera mjög góð- ur tími, alla vega áhugaverður, þó svo að stundum verði maður mjög frústreraður yfir öllum seinagang- inum," segir Þórður Ægir Óskars- son, þessi vinalegi maður, og kveð- ur blaðamann með handabandi og hneigingu. bergimd@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.