Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Qupperneq 19
PV Helgarblað
FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2008 19
Hanna Birna Skipar2.
sæti á lista og er því næsti
maður á eftir Vilhjálmi.
Sagan er henni hins vegar
ekki hliðholl því sjaldan
hefur 2. maður á lista
fengið leiðtogastóiinn.
Markús Örn Antonsson Var fenginn til leiðtoga-
hlutverks Sjálfstæðisflokksins árið 1991. Þá sat hann
ekki á lista og goggunarröðin hafði ekkert að segja.
„Það eru vissulega
nokkrar ættir í Sjálf-
stæðisflokknum sem
hafa verið mjög öfl-
ugar. Það eru bæði til
sterkar ættir sem eiga
sögu langt aftur í tím-
ann og nýlegri dæmi."
ar. Víða eru dæmi í nágrannlönd-
unum um að fjölskyldur hafi látið
mikið að sér kveða í stjórnmálum,
til að mynda í Danmörku og Bret-
landi. Þar finnast dæmi um feðga
og bræður sem hafa verið þing-
menn og ráðherrar. í Bandaríkj-
unum er líka öflugar fjölskyldur,
Gore-fjölskyldan og Kennedy-ætt-
in. Sennilega er ekki hægt að taka
öflugra dæmi en Kennedy-ana."
Mikið fyigi
Sjálfstæðisflokkurinn var
stofnaður 25. maí 1929 við sam-
runa íhaldsflokksins og Frjáls-
lynda flokksins. Með stofnun
Sjálfstæðisflokksins þá og Komm-
únistaflokksins 1930, lauk nýskip-
an flokkakerfisins sem staðið hafði
yfir frá stofnun Alþýðuflokksins og
Framsóknarflokksins 1915. íhalds-
flokkurinn var mun stærri flokk-
ur en Frjálslyndi flokkurinn, enda
varð Jón Þorláksson fyrsti formað-
ur Sjálfstæðisflokksins en hann
hafði áður verið formaður íhalds-
flokksins. íhaldsmenn höfðu lang-
flestir komið úr röðum Heima-
stjórnarmanna sem var flokkur
Hannesar Hafstein, en frjálslynd-
ir, með Sigurð Eggertz í broddi
fylkingar, komu úr klofningsarmi
gamla Sjálfstæðisflokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur frá
stofnun verið sú stjórnmálahreyf-
ing landsins sem notið hefur mests
fylgis og komið að landsstjórninni
í 22 af þeirri 31 ríkisstjórn sem
mynduð hefur verið frá stofnun
hans og veitt 15 þeirra forystu.
Flokkurinn hefur lengst af haft
á bilinu 37-40 prósenta fýlgi frá
stofnun og kjörnir fulltrúar hans
hafa látið verulega að sér kveða.
Bestu kosningu fékk flokkurinn
1933, eða 48 prósent á landsvísu,
og lélegustu kosningu árið 1987,
eða 27 prósent.
Öflugir formenn
Áratug eftir stofnun flokksins
féllst hann á að taka þátt í ríkis-
stjórn með Alþýðuflokknum og
Framsóknarflokknum, þjóðstjórn-
inni, undir forsæti Hermanns Jón-
assonar í aprílmánuði árið 1939.
Miklar deilur urðu innan flokksins
um myndun stjórnarinnar og þátt-
töku í henni. Upp úr þjóðstjórn-
arsamstarfinu slitnaði 1942 og
Ólafur Thors, formaður Sjálfstæð-
isflokksins, myndaði fyrstu ríkis-
stjórnina undir forsæti Sjálfstæð-
isflokksins.
Fyrsti formaður flokksins var
Jón Þorláksson, verkfræðingur og
síðar borgarstjóri í Reykjavík. Ól-
afur Thors tók við embættinu árið
1934. Því næst varð Bjarni Bene-
diktsson formaður árin 1961-1970,
þá Jóhann Hafstein til ársins 1973,
næstur kom síðan Géir Hallgríms-
son til 1983, þá Þorsteinn Pálsson
til ársins 1991, Davíð Oddsson
til 2005 og Geir H. Haarde hefur
gegnt formannsembættinu allt frá
því Davíð hætti.
Sagan er Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, forseta borgarstjórnar, ekki hliöholl. Hún
sækist eftir oddvitasæti borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna þegar kemur að
því að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hættir enda er hún næsti maður á lista.
G0GGUNARRÖÐ
RÆÐURENGU
Saga Sjálfstæðisflokksins sýnir að
oddviti flokksins í borgarstjórn er
ekki valinn eftir goggunarröð. Sú
leið hefur ekki átt upp á pallborðið
hjá flokknum síðustu þrjá áratugi
þar sem leiðtogarnir hafa ýmist ver-
ið valdir neðar af lista borgarfulltrú-
anna eða jafnvel utan listans. Borg-
arstjórnarflokkurinn lítur því ekld á
það sem sjálfsagðan hlut að annar
maður á lista taki sjálfkrafa við held-
ur að leiðtoginn sé valinn af flokkn-
um.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, odd-
viti sjálfstæðismanna í borgarstjórn,
hefur lýst því yfir að yfirstandandi
kjörtímabil sé hans síðasta. Líkur
eru jafnvel taldar á að hann klári
ekki einu sinni kjörtímabilið og
stígi til hliðar þegar öldur hafi lægt.
f viðtali við DV fyrr í vikunni lýsti
hann yfir að þegar að því kemur að
hann hætti muni hann hafa mik-
ið um það að segja hver taki við af
honum. Aðspurður vildi hann ekki
gefa upp að svo stöddu hver það er
sem hann styður til verksins. Hann
hefur þó bent á ________ þá
stað-
reynd að til greina komi að næsti
maður á lista taki við, líkt og hann
sjálfur gerði er hann tók við af Birni
Bjarnasyni dómsmálaráðherra og
fyrrverandi oddvita Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórn, fýrir kosn-
ingarnar 2006.
Röðinerekkimálið
Vilhjálmur var borgarstjóri frá
13. júní 2006 til 16. október 2007
er meirihlutasamstarf Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks sprakk
vegna REI-málsins. Sjálfstæðis-
flokkurinn komst eins og frægt er
orðið aftur til valda í gegnum sam-
starf við F-lista þar sem Ólafur F.
Magnússon settist í borgarstjóra-
stólinn. Samkvæmt samkomulagi
er gert ráð fyrir því að Vilhjálmur
taki við eftir rúmt ár og sitji út kjör-
tímabilið. Hann hefur hins vegar
sagst æda að taka sér góðan tíma í
að ákveða hvort hann taki við emb-
ættinu. Flestir viðmælendur DV
telja það ólíklegt og búast við því að
Vilhjálmur bíði eftir að um róist og
stígi þá til hliðar.
Áður en Vilhjálmur varð borgar-
stjóri hafði Sjálfstæðisflokkurinn
verið í minnihluta í þrjú kjör-
tímabil þegar R-listinn réði
ríkjum. Ýmsum oddvitum
var stillt upp í þeirri von
að ná völdum á nýjan
leik og sagan sýnir að
göggunarröðin skipt-
ir ekki
neinu máli þegar að leiðtogavalinu
er komið. Reyndin er sú að sá borg-
arfulltrúi sem setið hefur í 2. sæti
borgarstjómarlistans hefur iðu-
lega ekki verið valinn sem oddviti.
Til verksins hafa ffekar verið valdir
aðrir fulltrúar neðar af listanum eða
fulltrúar sem ekki vom á lista, líkt og
gert var í tilvikum Markúsar Arnar
Antonssonar, fyrrverandi borgar-
stjóra, árið 1991 og Björns Bjarna-
sonar árið 2002.
Vilja kjósa
Saga síðustu þriggja áratuga er
því Hönnu Birnu Kristjánsdóttur,
forseta borgarstjórnar, ekki hlið-
holl þar sem goggunarröðin hefur
ekki sagt til um hver taki við odd-
vitahlutverki Sjálfstæðisflokksins
í borgarpólitíkinni, fyrir utan það
þegar Vilhjálmi var stillt upp fýr-
ir síðustu kosningar. Árið 1980 var
Ólafur B. Thors, annar maður á
lista, ekki skipaður oddviti held-
ur Davíð Oddsson sem sat í 4. sæti
listans. Hið sama gerðist árið 1991
þegar Markús Örn Antonsson, fyrr-
verandi borgarstjóri, var sóttur
út fyrir list- ann og still upp sem
leiðtogaefni
flokks-
ins. Aft-
'MIIKim ur kom
þaðfýr-
ir árið
í'* 1994, er
Mark-
ús Örn hætti, að goggunarröðin
réði ekki för. Þá var 7. manni á lista
fyrir kosningar stillt upp sem odd-
vita, Árna Sigfússyni, hann hafði þá
reyndar í millitíðinni hlotið 2. sæt-
ið í prófkjöri fýrir kosningar sem
þá voru í aðsigi. Árið 1998 er eng-
in undantekning, þá var Ingu Jónu
Þórðardóttur stillt upp en hún var
þriðja á listanum. Þá var Vilhjálm-
ur Þ. í 2. sæti en Inga Jóna færð
fram fyrir.
Hanna Birna skipar í dag 2. sæti
borgarstjórnarlista Sjálfstæðis-
flokksins og vilja sumir flokksmenn
sjá hana taka við af Vilhjálmi sem
oddviti flokksins. Hún er talin hafa
sannað gildi sitt undanfarnar vikur
og sumir viðmælenda DV telja ein-
faldlega rökrétt að næsti maður á
listanum taki við. Aðrir benda á sög-
una og segja goggunarröðina engu
máli skipta. Sumir flokksmenn vilja
meira lýðræði en svo, þrátt fýrir að
Hanna Birna hafi raðast í 2. sæt-
ið í prófkjöri, og vilja að borgar-
stjórnarflokkurinn hreinlega kjósi
um næsta leiðtoga. Þannig kjósi 14
borgarfulltúar, bæði aðalmenn og
varamenn, eftirmann Vilhjálms.
Spennandi verður að fýlgjast með
baráttunni um næsta leiðtoga Sjálf-
stæðisflokksins og hvort goggun-
arröðin verði látin ráða að þessu