Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Side 46
4« FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2008 Helgarblaö DV Umjón: Kolbrún P. Helgadóttir. Netfang kolbrun@dv.is Þvegið í svefni Það getur verið margra klukkustunda erfiði að þrífa grillgrind. En með þessari aðferð er það leikur einn. Smurðu grindina vel með grænsápu og settu hana í stóran plastpoka. Lokaðu pokanum vandlega svo ekkert loft komist inn. Þá vinnur sápan betur. Láttu þetta standa yfir nótt og næsta dag ætti að vera auðvelt að þrífa grindina með svampi. Síðan þarf bara að þvo hana með uppþvottalegi eða setja hana í uppþvottavélina. Mundu að nota góða gamal- dags grænsápu - það er ekki hægt að smyrja fljótandi sápu á grindina. Gerumheimilis- verkiii skemmtileg Flestum unglingum finnst hálfleiöin- legt að sinna heimilisstörfunum. Ef þú ert foreldri sem átt erfitt með að fá þinn ungling til að ganga frá eftir matinn, fara með fötin (óhreina tauið og svo framvegis skaltu koma upp einhvers konar kerfi á heimilinu. Bjóddu unglingnum til dæmis að sjá um eldhúsið eitt kvöld í viku. Þetta eina kvöld má unglingurinn elda það sem hann langar í fyrir sig og fjölskylduna. f þessu kvöldi felst þó lika að ganga frá eftir matinn og bera fulla ábyrgð á öllu því sem fram fer ( eldhúsinu. Unglingurinn mun finna fyrir ákveðinni ábyrgð og ánægju ef vel gengur með eldamennskuna. Hvað þvottinn varðar er ágætis regla að þvo ekkert sem ekki er farið með inn í þvottahús. Húsfrúin hefur í nógu öðru að snúast en að ganga um gólf og tína upp óhreina sokka og annan fatnað. Unglingurinn þinn fer fljótt að finna fyrir fataleysi og verður eflaust fljótur að snúa við blaðinu. Þetta ráð á við þá sem eru extra slæmir, hinum má svo einfaldlega kenna á þvottavélina. Að lokum er mjög fljótlegt og þótt ótrúlegt megl virðast skemmtilegt að búa til einn dag (viku þar sem öll fjölskyldan sameinar krafta sína, tekur til og þrifur. Skiptið með ykkur verkum, setjið góða og hvetjandi tónlist á fóninn og ef vel gengur er tilvalið aö fjölskyldan verðlauni sig með góðum mat á eftir. í nýjasta tölublaði Gestgjafans sem tileinkað er börnum og unglingum er skemmtilegur þáttur með unglingum í Rimaskóla sem hafa matreiðslu sem valfag. Hér eru þeir félagar Alex Pétursson og Jan Eyþór Páltfflta&eð einn af sínum unnáhaMsréttum. 0G METALL TANDOORI-KJUKLINGUR • 1/2laukur, mjög smátt saxaður • 2 msk. sítrónusafi • 2dlab-mjólk • 2 msk. tandoori-kryddblanda • 3 skinnlausar kjúklingabringur Hitið ofninn í 250°C. Blandið öllu nema kjúklingabringum saman í skál. Skerið kjúklingabringurnar í frekar breiða strimla og veltið þeim upp úr tandoori-blöndunni þannig að allur kjúklingurinn verði vel hjúp- aður. Látið standa við stofuhita í 30 mínútur (best er að láta kjúklinginn bíða í ísskáp í 4-6 tíma eða yfir nótt). Setjið örlitla olíu í eldfast mót eða form og dreifið vel um allan botn- inn. Hellið kjúklingnum og sósunni í mótið og bakið næstefst í um það bil 20 mínútur. Berið fram með naan- brauði og soðnum hrísgrjónum. NAAN-BRAUÐ MEÐ GARAM MASALA OG HVÍTLAUKSSMJÖRI • 1 msk. sykur • 2 tsk. þurrger • 1 'h dl volg mjólk (hitið í u.þ.b. 'h mínútu í örbylgjuofni) • 5 % dl hveiti • %tsk. salt 1 tsk. lyftiduft 2 msk. ólífuolía 1 'h dl Aab-mjólk U.þ.b. 1 msk. garam masala-duft 1 tsk. Maldon-salt Hitið ofninn í 250°C. Mælið syk- ur og þurrger í skál. Hellið volgri mjólk yfir og látið standa í 10 mín. Blandið hveiti, salti, iyftidufti, olíu og ab-mjólk saman við með sleif. Bætið meira hveiti saman við ef deigið er of blautt. Hnoðið vel og látið lyfta sér á hlýjum stað í 10 mínútur. Skiptið deiginu í 8 hluta og fletjið með höndunum í frekar þunnar kökur. Setjið garam mas- aia og Maldon-salt á disk og þrýstíð annarri hliðinni á kökunum ofan í kryddið. Raðið á bökunarplötu með kryddhliðina upp. Það er mjög gott að strá kókosflögum ofan á brauðin en því má sleppa. Bakið næstefst í ofni í 5-7 mínútur. Penslið brauð- in með hvítíaukssmjöri um leið og þau koma úr ofninum og rað- ið þeim á fat. Berið fram með ind- verskum réttum. HVÍTLAUKSSMJÖR: Til að pensla ofan á nýbökuð brauðin • 25 g íslenskt smjör • 2 hvítlauksgeirar, pressaðir • 'h tsk. Maldon-salt Bræðið smjör í örbylgjuofni og bætið hvítlauk og salti saman við. Penslið brauðin um leið og þau koma úr ofninum. Ef eitthvað smjör verður eftir má bera það fram með brauðunum og gestir geta bætt við smjöri eftir smekk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.