Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2008, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 23. MA( 2008
Umræða DV
ÚTGÁFUFÉLAG: DagblaðiO-Vlsir útgáfufélag ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir
RITSTJÓRAR:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og ReynirTraustason, rt@dv.is
FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Janus Sigurjónsson, janus@dv.is
FRÉTTASTJÓRI:
Brynjólfur Þór Guðmundsson, brynjolfur@dv.is
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Ásmundur Helgason, asi@birtingur.is
DREIFINGARSTJÓRI:
Jóhannes Bachmann, joib@birtingur.is
DV Á NETINU: DV.IS
AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 70 40.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viötöl blaösins eru hljóðrituð.
SAM)K()K\
■ Ólafur F. Magnússon borg-
arstjóri hefur ekki ferðast fyrir
eina krónu á kostnað Reykja-
víkurborg-
ar, sam-
kvæmt úttekt
sem barst
ffátjarnar-
bakkanum
í gær. Jafn-
aðarmaður-
inn Andr-
és Jónsson
spurði á bloggsíðu sinni í gær
hvort borgarstjórinn væri svona
svakalega sparsamur fyrir hönd
okkar borgarbúa eða hvort
hann væri flughræddur. Ólaf-
ur F. svaraði þeirri spurningu
í samtali við DV í vetur með
kunnuglegum hættí: „Þetta er
óviðeigandi spurning."
■ Einn af þeim sem lýstu yfir
ánægju sinni með framlag fs-
lands tíl Eurovision í ár er Aron
Pálmi Ágústsson. Rök hans
_ - fyrir ágæti
íslenska
framlags-
ins eru þó
býsna frum-
leg. Hann
telur textann
vera óvenju
vandaðan og
djúpan, en
Páll Óskar Hjálintýsson samdi
textann. This Is My Life segir
frá erfiðleikum og réttí hvers og
eins tíl að stjórna sínu eigin lífi.
Sjálfur var Aron sjö ár í barna-
og unglingafangelsi í Texas og
öðlaðist loksins stjórn á eigin lífi
í lok ágúst síðastliðins.
■ Geir Haardc braut ísinn á Al-
þingi í fyrradag og grínaðist úr
ræðustól, líkt og forveri hans,
Davíð Oddsson, gerði ósjald-
an. Pétur
Gunnars-
son skrifaði
dóm um
frammi-
stöðu Geirs
í að „leika
Davíð" á
Eyjunni.is.
Hann gefur
grínistan-
um Geir falleinkunn, þar sem
vantað hafi brodd og þunga.
■ Endurreistí þingmaðurinn
Árni Johnsen uppljóstraði á
Alþingi í fýrradag að grænmetí,
sem augiýst væri íslenskt, væri
í rauninni oft útlenskt græn-
metí skolað með íslensku vatni.
Margir
virðast hafa
svo miklar
áhyggjur af
erlendum
mat, að það
jaðrar við
fordóma.
Þannig er til
dæmis sagt
að erlend-
ur kjúklingur sé sýktur. Árni fer
skrefi lengra og líkir grænmet-
inu við IG'nverja: „Eigum við að
taka upp þá reglu að ef Kínverji
kemur tíl íslands og fer í bað í
íslensku vatni getí hann kallast
íslendingur?"
Netníðingar
LEIÐARI
REYNIRTRAUSTASON RITSTJORISKRIFAR.
Stöðugt fjölgar þeim glæpum
sem eiga sér stað á netinu.
Þessi samskiptavettvangur er
notaður til að vega að nafn-
greindu fólki og þá gjarnan úr laun-
sátri. Hienur er að finna í öllum sam-
félögum heimsins. Þetta er fólk sömu
gerðar og launmorðingjar sem hafa
hvatir til að stinga samborgara sína í
bakið fremur en að berjast augliti til
auglitis. Alls staðar er að finna hætt-
ur á netinu. Unglingar hafa lent í ein-
elti í gegnum þennan farveg og dæmi
eru um að fólk hafi fyrirfarið sér þess
vegna. Barnaníðingar hafa fundið sér
veiðilendur þar og laða til sín börn til
að svipta þau sakleysi.
Önnur dæmi um siðleysi er að
finna í því að nafnlaust fólk í myrk-
viðum netsins siglir undir fölsku
fiaggi og stofnar síður í nafni annarra.
Sjónvarpskonan Inga Lind Karlsdótt-
ir varð fyrir þeirri grófu persónulegu
Nuiidsynlegt erad konia böndum á nidingana scm lædast um á þcssinn háskaslódum.
árás að stofnuð var síða í hennar nafni
á MySpace. Fleira frægðarfólk hefur
lent í sömu stöðu. Með þessum hætti
er verið að rjúfa friðhelgi einkalífs
fólks með grófum hætti. Þótt vanda-
málið hvað varðar siðferðisbrest og I
óeðli á netinu sé alþjóðlegt er engin
ástæða fyrir íslensk lögregluyfirvöld
til að vera með sinnuleysi. Ungur mað-
ur tapaði 400 þúsund krónum þegar
hann ætlaði að kaupa bíl á netinu en
lenti í þýskri svikamyllu. íslensku lög-
reglunni var sama og hún aðhefst ekki
eins og kom fram í DV. Blaðamönnum
dv.is bárust líflátshótanir á síðu sem
haldið var úti af netníðingum. Lög-
reglunni var sama og ekkert var að-
hafst í þeim efnum. Almenningur á
íslandi verður að taka höndum sam-
an um að fordæma níðingana á net-
inu. Nauðsynlegt er að koma böndum
á níðingana sem læðast um á þessum
háskaslóðum nútímans.
BJ0RGUM HEIMINUM
SVARTHÖFÐI
Sagt er að hvalveiðar standi
ekki undir sér, því enginn vilji
kaupa hvalkjötið. Það er líka
sagt að íslendingar hafi brugðist í
aðstoð við þriðja heims ríki. Svart-
höfði hefur fundið einfalda lausn
á þessum málum og fleirum. Eins
konar heildarlausn.
íslendingar þyrftu ekki að hafa
samviskubit yfir hvalveiðum eða
vanda þriðja heimsins ef þeir
myndu bara senda hvalkjötið út
í heim. Það væri til dæmis eng-
in ástæða til að taka við flótta-
mönnum ef þeir gætu svolgrað í
sig hrefnukjöt daginn út og inn.
Það yrði sannkallaður hvalreki fyrir
þriðjaheiminn.
Um leið og við leysum hung-
ursneyðir og hvalveiðideil-
una á einu bretti hverfur
annar vandi eins og dögg fýrir sólu.
Hvalurinn étur ógnarmikið
magn af fiski úr hafinu. Á fs-
landsmiðum er hann álíka
afkastamikið átvagl og
mannkynið, þegar kemur
að fiskistofnunum. Því
myndu fiskistofnarnir
taka gríðarlegan vaxtar-
kipp. Þorskstofninn myndi
dafna sem aldrei fyrr og um
leið leysist annað þrálátt mein í ís-
lensku samfélagi. Það væri hægt að
afnema „íjandans kvótakerfið".
u
m leið og okkur tekst að af-
nema kvótakerfið með því
að metta þriðja heiminn
með hvalkjöti leysast tvö vanda-
mál tíl, sem plaga íslensku
þjóðina. f fyrsta lagi verður
byggðavandinn hjóm eitt,
því stórauknar fiskveiðar
fylla firði og dali af iðandi
mannlífi. Duggur stíma
tvist og bast, og mannfólk-
ið slægir, beitir og verkar í
hvívetna. Bræðslulyktin bregður
sér út fyrir skorsteinana og gælir við
hvers manns nef, líkt og forðum.
*
Iannan stað hverfa efnahags-
vandræði íslands eins og mar-
tröð við hanagal. Örendur kan-
arífuglinn í kolanámunni rís eins og
fuglinn Fönix. Örverpi Danaveldis
verður gullegg á ný. Það er hag-
fræðileg staðreynd að stóraukinn
útflutningur íslendinga á fiskin-
um sem hvalurinn étur ekki lengur
styrkir íslensku krónuna og hjálpar
okkur um leið að greiða upp þjóð-
arskuldirnar. Bankarnir bjargast og
landslýður með.
ótrök umhverfisvernd-
arsinna eru eftirfarandi:
Hvalir eru krútt.
varthöfði er realískur húman-
isti. Hann borðar kjöt og áttar
sig fyllilega á því að stórfelld
dráp á dýrum eiga sér stað dag
hvern. f Bandaríkjunum einum
og sér eru hundruðum þúsunda
nauta drepin á hverjum degi. Svo
eru það svínin, grísirnir, lömbin
og allt annað kvikt sem fyrirfinnst í
Hálsaskógi. Svarthöfði veit að það
þarf að drepa til að lifa. Meira að
segja spekingurinn Nietzsche sagði
að það væri frumspekilegt atriði,
sem ekki væri komist hjá. Svart-
höfði viðurkennir að nauðugur vel-
ur hann mennina fram yfir dýrin.
Með tárin í augunum kjamsar hann
á hvers lags marineruðu hnossgætí
sem áður var holdgervingur hins
krúttlega.
Tuttugu og níu þúsund börn
undir fimm ára aldri deyja á
hverjum degi. 21 barn deyr
á mínútu. Mörgum þeirra mætti
bjarga með því að
drepa krúttlega
hvali. Svart-
höfði velur
börnin fram
yfir hvalina.
Hversu mörg
börn þurftu að
svelta vegna þess að
náttúruhippar vildu frelsa Keikó
nauðugan úr búrinu? Heldur hefði
mátt metta tóma maga með fjár-
magninu. En einfaldasta lausnin til
að bjarga heiminum er án efa sú að
drepa hvali. Ingibjörg Sólrún ætti
að senda út tilkynningu nú þegar,
um að íslendingar hafi ákveðið að
metta hungraðan þriðja heim-
inn með hvölum. Ekki geta hippar
kvartað yfir því.
„Já, ég ætla að fara upp í sumarbústað í
Grímsnesið. Þar ætla ég að njóta góða
veðursins sem við höfum hérna á
íslandi
Dóra Hilmarsdóttir, 60 ára
öryrki
„Nei, því miður. Ég er að fara eftir 3
vikur í heimsreisu sem hefst (Mexíkó.
Ferð minni er síðan heitið um Mið- og
Suður-Amer(ku, að minnsta kosti."
Esther ösp Valdimarsdóttir, 21 árs
nemi
„Já, ég er að fara hringin með
hljómsveitinni minni, Mammút. Við
ætlum að leggja landið að fótum
okkar. Það er alltaf gaman að skoða
landið sitt."
Andri Bjartur Jakobsson, 19 ára
tónlistarmaður
„Nei, ég mun ferðast á milli Þýskalands
og ítalfu í sumar með fjölskyldunni. Við
erum að reyna ferðast um sem flest
lönd (heiminum og eigum eftir að fara
til (talíu og Þýskalands."
Arnar Ómarsson, 13 ára
grunnskólanemi