Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2008, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2008, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 Ættfræði DV 60 ÁKA Á LAUGAKDAG KRISTJÁN JÓHANNSSON ÓPERUSÖNGVARI Kristján fæddist á Akureyri. Hann lauk gagnfræðaprófl 1966, lærði ket- il- og plötusmíði hjá Slippstöðinni á Akureyri, lauk prófi í plötusmíði í Iðn- skólanum á Akureyri 1970 og prófi í dísilstillingum 1971. Kristján var í söngnámi hjá Sigurði Demetz Franzsyni í Tónlistarskóla Akureyrar 1972-74, í Aosta á Ítalíu 1974-75, í Piacenza á Italíu hjá Gianni Poggi 1975-78, í einkatímum hjá Ett- ore Campogalliani í Mantova á ítalíu 1978-80 og hjá tenórsöngvaranum Ferruccio Tagliavini. Kristján rak fyrirtækið Dísilstill- ingar hf. á Akureyri 1971-74. Kristján byrjaði að syngja með ~Karlakómum Geysi á Akureyri 1970, varð einsöngvari með kómum 1971, söng íyrst í íslenskri óperuuppfærslu í La Bohéme í Þjóðleikhúsinu 1981, tók síðan þátt í nokkrum íslensk- um óperuuppfærslum, hefur komið fram á fjölda tónleika með Sinfón- íuhljómsveit íslands og Mótettukór Hallgrímskirkju og haldið fjölda ein- söngstónleika hér á landi. Kristján hefur verið búsettur á ít- alíu frá 1976 og í ítalska bænum Des- enzano við Gardavatn frá 1980. Hann hefur frá þeim tíma sungið víða um heim og oft í þekktustu óperuhúsum veraldar, eins og á La Scala í Mílanó, fyrst 1988, söng fyrst á The Lyric Op- era í Chicago 1989, söng fyrst í Vínar- ópenmni 1992, fyrst á Metropolitan í New York 1993, söng fyrst á Royal Op- era House í Covent Garden í London 1994. Hann hefur sungið margoft síð- an við flest þessi óperuhús og fjölda annarra kunnustu óperuhúsa á ítatíu, í Þýskalandi, Frakklandi, Sviss, Aust- urríki, í Bandaríiqunum, Kína og Jap- an. Meðal hljómplatna Kristjáns sem gefnar hafa verið út hér á landi má nefna: Hin ljúfa sönglist, (Jóhann Kon- ráðsson og fjölskylda) 1980; Kristján Jóhannsson, 1983; ítalskar aríur, 1988; Með kveðju heim, 1989; Með Kristjáni, 1989; Af lífi og sál, 1993; Söngvamir hans Kristjáns: Sönglög og óperuar- íur, 1993; Helg eru jól, 1998; Hamra- borgin, 2000, og Portami Via, 2004. Þá hafa komið út með Kristjáni á vegum Naxos, diskamir Best of Opera,vol. 5.; Nessun Dorma and Other Favorits; Italian Tenor Arias; Verdi: Aida; Verdi Aida (Highlights); Verdi: Aida (Verona 1992); Very best of Verdi. I seinni tíð hefur Kristján sinnt söngkennslu í síauknum mæli, verið með einkatíma og haldið fjölda söng- námskeiða við ítalska tónlistarskóla. Fjölskylda Fyrsta kona Kristjáns var Áslaug Kristjánsdóttir, f. 3.2. 1950, sjúkraliði í Reykjavík. Foreldrar hennar: Kristj- án Pálsson, vélvirki á Akureyri og Ása Helgadóttir húsmóðir. Börn Kristjáns og Áslaugar: Ingv- ar Jóhann, f. 25.11. 1969, ritstjóri í Reykjavík en kona hans er Þorgerður Þráinsdóttír, sálfræðingur og starfs- mannastjóri Lyfju en dóttir þeirra er Þórey Ingvarsdóttír, f. 31.8. 2007; Bar- bara Kristín, f. 8.7.1974, kennari í MA- námi í mannauðsstjórnun við HÍ og er dóttir hennar Júlía, f. 12.12.2006. Önnur kona Kristjáns var Doriet Kavanna, f. 30.12.1950, d. 30.12.1983, óperusöngkona. Kristján kvæntist 27.12. 1986 Sig- uijónu Sverrisdóttur, f. 7.5.1959, leik- konu. Foreldrar hennar em Sverrir Jónsson, fyrrv. starfsmaður íslands- banka, og Rannveig Guðmundsdóttir, fyrrv. alþm. Börn Kristjáns og Sigurjónu em Sverrir, f. 4.8. 1987, háskólanemi í Brescia á ítalíu; Víkingur, f. 22.8.1989, nemi í menntaskóla í Brescia; Rann- veig, f. 15.9.1997. Systkini Kristj áns em Heiða Hrönn, f. 10.1.1939, sjúkraliði á Akureyri, gift Birgi Stefánssyni bifvélavirkja; Anna María, f. 3.1. 1940, húsmóðir á Akur- eyri, gift Birgi Marinóssyni kennara; Konráð Oddgeir, f. 9.4. 1943, d. 2000, ffamkvæmdastjóri félagsheimilisins Ámess í Gnúpverjahreppi, kvæntur Lilju Helgadóttur húsmóður; Jóhann Már, f. 10.1.1945, skipasmiður og b. í Keflavík á Hegranesi, kvæntur Þóreyju Jónsdóttur húsfreyju; Svavar Hákon, f. 15.3. 1946, ketil- og plötusmiður, b. í Litladal í Húnavamssýslu, kvæntur Sigurbjörgu Jónsdóttur húsfreyju; Björgvin Haukur, f. 17.1. 1953, tann- smiður á Akureyri, kvænmr Ragn- heiði Haraldsdóttur húsmóður. Foreldrar Kristjáns: Jóhann Kon- ráðsson, f. 16.11.1917, d. 27.12.1982, söngvari og gæslumaður á geðdeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, og kona hans, Fanney Oddgeirsdóttir, f. 14.9.1917, fyrrv. gæslukona á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri. ÆTT Faðir Jóhanns var Komáð, gull- smiður á Akureyri, Jóhannsson, b. á Végeirsstöðum í Fnjóskadal Kristjáns- sonar, b. þar Guðmundssonar. Móðir Jóhanns á Végeirsstöðum var Lísibet Bessadóttir, b. á Skógum í Fnjóskadal Eiríkssonar. Móðir Jóhanns söngvara var Svava, systir Jónasar, föður Kára, fýrrv. fréttastjóra og ritstjóra. Svava var dóttir Jósteins, b. í Naustavík í Hegranesi, hálfbróður, samfeðra, Gísla skólastjóra, föður Jónasar guð- ffæðiprófessors. Jósteinn var son- ur Jónasar, b. og læknis í Hróarsdal í Hegranesi Jónssonar, og Stemunnar Jónsdóttur frá Kjartansstaðakoti. Fanney er systír Hákonar óp- erusöngvara og Agnesar, móður Magnúsar Jónssonar ópemsöngv- ara. Fanney er dóttir Oddgeirs, út- gerðarmanns á Hlöðum í Grenivík Jóhannssonar, b. í Saurbrúargerði á Svalbarðsströnd Gíslasonar. Móðir Oddgeirs var Kristín Björg Sigurðar- dóttir, b. á Fellsseli í Kinn Bjarnason- ar. Móðir Fanneyjar var Aðalheiður Kristjánsdóttir, systír Jóhanns á Vé- geirsstöðum. Systir Aðalheiðar var Friðrikka, amma Stefáns Hermanns- sonar, fyrrv. borgarverkfræðings í Reykjavík og ffamkvæmdastjóra AusturbaJdca. jkkar er www.normx.is eiðsla Norm - X hefur sérhæft sig í framleiðslu heitra potta frá 1982 sem henta íslenskum aðstæðum einstaklega vel og ætlaðir fyrir hitaveituvatn. Við bjóðum einnig allan tengibúnað, nudd, Ijósabúnað og tvær gerðir af lokum. Lok, fjótandi veitingabakka og m.fl. Við seljum einnig kamínur verð kr. 43.900
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.