Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2008, Side 48
48 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008
Ættfræði DV
60 ÁKA Á LAUGAKDAG
KRISTJÁN
JÓHANNSSON
ÓPERUSÖNGVARI
Kristján fæddist á Akureyri. Hann
lauk gagnfræðaprófl 1966, lærði ket-
il- og plötusmíði hjá Slippstöðinni á
Akureyri, lauk prófi í plötusmíði í Iðn-
skólanum á Akureyri 1970 og prófi í
dísilstillingum 1971.
Kristján var í söngnámi hjá Sigurði
Demetz Franzsyni í Tónlistarskóla
Akureyrar 1972-74, í Aosta á Ítalíu
1974-75, í Piacenza á Italíu hjá Gianni
Poggi 1975-78, í einkatímum hjá Ett-
ore Campogalliani í Mantova á ítalíu
1978-80 og hjá tenórsöngvaranum
Ferruccio Tagliavini.
Kristján rak fyrirtækið Dísilstill-
ingar hf. á Akureyri 1971-74.
Kristján byrjaði að syngja með
~Karlakómum Geysi á Akureyri 1970,
varð einsöngvari með kómum 1971,
söng íyrst í íslenskri óperuuppfærslu
í La Bohéme í Þjóðleikhúsinu 1981,
tók síðan þátt í nokkrum íslensk-
um óperuuppfærslum, hefur komið
fram á fjölda tónleika með Sinfón-
íuhljómsveit íslands og Mótettukór
Hallgrímskirkju og haldið fjölda ein-
söngstónleika hér á landi.
Kristján hefur verið búsettur á ít-
alíu frá 1976 og í ítalska bænum Des-
enzano við Gardavatn frá 1980. Hann
hefur frá þeim tíma sungið víða um
heim og oft í þekktustu óperuhúsum
veraldar, eins og á La Scala í Mílanó,
fyrst 1988, söng fyrst á The Lyric Op-
era í Chicago 1989, söng fyrst í Vínar-
ópenmni 1992, fyrst á Metropolitan í
New York 1993, söng fyrst á Royal Op-
era House í Covent Garden í London
1994. Hann hefur sungið margoft síð-
an við flest þessi óperuhús og fjölda
annarra kunnustu óperuhúsa á ítatíu,
í Þýskalandi, Frakklandi, Sviss, Aust-
urríki, í Bandaríiqunum, Kína og Jap-
an.
Meðal hljómplatna Kristjáns sem
gefnar hafa verið út hér á landi má
nefna: Hin ljúfa sönglist, (Jóhann Kon-
ráðsson og fjölskylda) 1980; Kristján
Jóhannsson, 1983; ítalskar aríur, 1988;
Með kveðju heim, 1989; Með Kristjáni,
1989; Af lífi og sál, 1993; Söngvamir
hans Kristjáns: Sönglög og óperuar-
íur, 1993; Helg eru jól, 1998; Hamra-
borgin, 2000, og Portami Via, 2004. Þá
hafa komið út með Kristjáni á vegum
Naxos, diskamir Best of Opera,vol. 5.;
Nessun Dorma and Other Favorits;
Italian Tenor Arias; Verdi: Aida; Verdi
Aida (Highlights); Verdi: Aida (Verona
1992); Very best of Verdi.
I seinni tíð hefur Kristján sinnt
söngkennslu í síauknum mæli, verið
með einkatíma og haldið fjölda söng-
námskeiða við ítalska tónlistarskóla.
Fjölskylda
Fyrsta kona Kristjáns var Áslaug
Kristjánsdóttir, f. 3.2. 1950, sjúkraliði
í Reykjavík. Foreldrar hennar: Kristj-
án Pálsson, vélvirki á Akureyri og Ása
Helgadóttir húsmóðir.
Börn Kristjáns og Áslaugar: Ingv-
ar Jóhann, f. 25.11. 1969, ritstjóri í
Reykjavík en kona hans er Þorgerður
Þráinsdóttír, sálfræðingur og starfs-
mannastjóri Lyfju en dóttir þeirra er
Þórey Ingvarsdóttír, f. 31.8. 2007; Bar-
bara Kristín, f. 8.7.1974, kennari í MA-
námi í mannauðsstjórnun við HÍ og
er dóttir hennar Júlía, f. 12.12.2006.
Önnur kona Kristjáns var Doriet
Kavanna, f. 30.12.1950, d. 30.12.1983,
óperusöngkona.
Kristján kvæntist 27.12. 1986 Sig-
uijónu Sverrisdóttur, f. 7.5.1959, leik-
konu. Foreldrar hennar em Sverrir
Jónsson, fyrrv. starfsmaður íslands-
banka, og Rannveig Guðmundsdóttir,
fyrrv. alþm.
Börn Kristjáns og Sigurjónu em
Sverrir, f. 4.8. 1987, háskólanemi í
Brescia á ítalíu; Víkingur, f. 22.8.1989,
nemi í menntaskóla í Brescia; Rann-
veig, f. 15.9.1997.
Systkini Kristj áns em Heiða Hrönn,
f. 10.1.1939, sjúkraliði á Akureyri, gift
Birgi Stefánssyni bifvélavirkja; Anna
María, f. 3.1. 1940, húsmóðir á Akur-
eyri, gift Birgi Marinóssyni kennara;
Konráð Oddgeir, f. 9.4. 1943, d. 2000,
ffamkvæmdastjóri félagsheimilisins
Ámess í Gnúpverjahreppi, kvæntur
Lilju Helgadóttur húsmóður; Jóhann
Már, f. 10.1.1945, skipasmiður og b. í
Keflavík á Hegranesi, kvæntur Þóreyju
Jónsdóttur húsfreyju; Svavar Hákon, f.
15.3. 1946, ketil- og plötusmiður, b. í
Litladal í Húnavamssýslu, kvæntur
Sigurbjörgu Jónsdóttur húsfreyju;
Björgvin Haukur, f. 17.1. 1953, tann-
smiður á Akureyri, kvænmr Ragn-
heiði Haraldsdóttur húsmóður.
Foreldrar Kristjáns: Jóhann Kon-
ráðsson, f. 16.11.1917, d. 27.12.1982,
söngvari og gæslumaður á geðdeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri,
og kona hans, Fanney Oddgeirsdóttir,
f. 14.9.1917, fyrrv. gæslukona á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri.
ÆTT
Faðir Jóhanns var Komáð, gull-
smiður á Akureyri, Jóhannsson, b. á
Végeirsstöðum í Fnjóskadal Kristjáns-
sonar, b. þar Guðmundssonar. Móðir
Jóhanns á Végeirsstöðum var Lísibet
Bessadóttir, b. á Skógum í Fnjóskadal
Eiríkssonar.
Móðir Jóhanns söngvara var
Svava, systir Jónasar, föður Kára,
fýrrv. fréttastjóra og ritstjóra. Svava
var dóttir Jósteins, b. í Naustavík í
Hegranesi, hálfbróður, samfeðra,
Gísla skólastjóra, föður Jónasar guð-
ffæðiprófessors. Jósteinn var son-
ur Jónasar, b. og læknis í Hróarsdal í
Hegranesi Jónssonar, og Stemunnar
Jónsdóttur frá Kjartansstaðakoti.
Fanney er systír Hákonar óp-
erusöngvara og Agnesar, móður
Magnúsar Jónssonar ópemsöngv-
ara. Fanney er dóttir Oddgeirs, út-
gerðarmanns á Hlöðum í Grenivík
Jóhannssonar, b. í Saurbrúargerði á
Svalbarðsströnd Gíslasonar. Móðir
Oddgeirs var Kristín Björg Sigurðar-
dóttir, b. á Fellsseli í Kinn Bjarnason-
ar. Móðir Fanneyjar var Aðalheiður
Kristjánsdóttir, systír Jóhanns á Vé-
geirsstöðum. Systir Aðalheiðar var
Friðrikka, amma Stefáns Hermanns-
sonar, fyrrv. borgarverkfræðings í
Reykjavík og ffamkvæmdastjóra
AusturbaJdca.
jkkar er www.normx.is
eiðsla
Norm - X hefur sérhæft sig í framleiðslu heitra potta frá 1982 sem henta íslenskum aðstæðum einstaklega vel og
ætlaðir fyrir hitaveituvatn. Við bjóðum einnig allan tengibúnað, nudd, Ijósabúnað og tvær gerðir af lokum.
Lok, fjótandi veitingabakka og m.fl. Við seljum einnig kamínur verð kr. 43.900