Glóðafeykir - 01.05.1967, Blaðsíða 8
8
GLÓÐAFEYKIR
Sr. Helgi KonráÖsson, Jón Sigurðsson Sigurður Sigurðsson,
Sauðárkróki. á Reynistað. sýslumaður Skagfirðinga.
hafa allir lagt fram mikla vinnu við samningu bókanna, Jón á
Reynistað þó langmest, enda átti hann hugmyndina að verkinu og
hefur mótað það frá upphafi og ásamt sr. Helga Konráðssyni verið
helzti áhuoamaðurinn í starfi félagsins. Höfundar 1. bindis voru
17, en 2. bindis 31. Okkur, sem að útgáfunni höfum unnið, er full-
Ijóst, að til þess að útgáfan eigi framtíð, verða enn fleiri að taka sér
penna í hönd og skrifa um menn, sem þeir þekktu og enn hafa ekki
komið þættir um. Sérstaklega hafa sveitirnar út að austan orðið af-
skiptar, og mikil hjálp væri það útgáfunni, þótt menn skrifuðu
ekki nema 1—2 þætti hver. Ég vil hvetja menn til að hafa um þetta
samband við ritstjóra verksins, Eirík Kristinsson frá Tungukoti,
kennara á Skagaströnd, eða einhvern útgáfunefndarmanna. Þeir
munu leiðbeina byrjendum og gefa góð ráð. Einnig er nú mikil
nauðsyn að halda til haga öllurn gömlum mannamyndunr og skrifa
á þær nöfn fyrirmyndanna, svo þau falli ekki í fyrnsku. A Héraðs-
skjalasafninu er nú mjög merkilegt myndasafn, sem fúslega tekur
við gömlum myndum, annað hvort til eignar eða eftirtöku. Þetta
er verk sem heillar hvern þann nrann, er sögulegunr fróðleik ann.
Það getunr við allir staðfest, senr höfunr notið þess að verja ein-
hverju af tómstundunr okkar til þessa.
Glóðafeykir er blað samvinnumanna hér í Skagafirði. Því nota ég
tækifærið hér til að skora á nrenn að leggja þessu nráli lið. Hér
þarf samvinnuhugsjónin að vinna sitt verk. Útgáfa þessi er undir
því konrin, að góð samvinna takist nreð öllum áhugamönnum okk-
ar um þjóðleg fræði. Þá nrun sá draumur rætast, að ritverk þetta