Glóðafeykir - 01.05.1967, Side 41

Glóðafeykir - 01.05.1967, Side 41
GLOÐAFEYKIR 41 og kona hans Monika Sigurlaug Indriðadóttir, bónda á írafelli, Arnasonar. Fékkst Sigmundur, faðir Magnúsar nokkuð við smá- skammtalækningar, svo sem og gerði sr. Magnús bróðir hans Andrésson, prestur og alþm. á Gilsbakka í Hvítársíðu. Magnús ólst upp með foreldrunr sínum, fyrst á Irafelli og Lýtingsstöðum og síðan á Vindheimum frá 11 ára aldri. Búfræð- ingur frá Hólum 1913. Bóndi á Vindheim- um frá 1920 og bjó þar hinu mesta mynd- arbúi meðan dagur entist. Kvæntist 1924 Önnu Jóhannesdóttur bónda á Neðra-Nesi á Skaga, Jóhannessonar, og konu hans Margrétar Stefánsdóttur. Þrjú eru börn þeirra hjóna: Ragnheiður, frú í Reykjavík, Sigurlaug, húsfreyja og ljósmóðir á Bíldu- dal, og Sigmundur, bóndi á Vindheimum. Magnús Sigmundsson var hár maður og beinvaxinn, grannleitur, festulegur á svip, stilltur, orðvar, prúður og viðmótshlýr. Allur var maðurinn þannig, að hann vakti óskorað traust. Að honum stóðu gildar bændaættir á báða bóga, önnur úr Arnesþingi, hin skagfirzk, enda var hann búinn mörgum beztu eðliskostum hins íslenzka bónda: góðri greind og farsælli, miklum manndómi, æðrulausum huga, ríkri ábyrgðartilfinningu og þeirri höfuðdyggð, að gera um alla hluti hærri kröfur til sjálfs sín en annarra. Magnús á Vindheimum var vammlaus maður, enda naut hann hvers manns virðingar. Hann gegndi ýms- um trúnaðarstörfum fyrir sveit sína, sat m. a. lengi í hreppsnefnd og var hvarvetna vel metinn, enda jafnan tillögugóður. Margrét Valdimarsdóttir, húsfreyja á Sauðárkróki, andaðist 19. dag júnímán. 1952. Fædd var hún á Flateyri við Önund- arfjörð 7. jan. 1922 og var því aðeins þrítug að aldri, er hún lézt. Voru foreldr- ar hennar af hinni kunnu Arnardalsætt. Óx hún upp með þeim vestur þar á Flat- eyri. Arið 1946 gekk luin að eiga Kristján Margrét Valdimarsclóttir. Skarphéðinsson bifvélavirkja frá Hvammi

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.