Glóðafeykir - 01.11.1973, Síða 11
GLÓÐAFEYKIR
11
Neyzlumjólkursalan varð aðeins um 10% af innveginni mjólk til
samlagsins, en 90% af mjólkinni fór til vinnslu.
Framleiðsla mjólkursamlagsins 1972 varð þessi: skyr 65.6 tonn,
smjör 147 tonn, ostar 457.1 tonn og kasein 41.6 tonn.
Smjörbirgðir höfðu lækkað verulega á árinu, en ostabirgðir auk-
izt nokkuð.
Heildargreiðslur til framleiðenda á árinu 1972 voru 146.5 millj.
króna, og endanlegt verð til þeirra fyrir mjólkina 1972 varð kr.
19,09,6 pr. ltr., sem er um 15 aurum umfram staðargrundvöll.
Samlagsráð:
Á aðalfundi samlagsins var í fyrsta skipti kosið sérstakt samlags-
ráð, en það skipa nú: Sigurður Sigurðsson, Brúnastöðum, Jón Guð-
mundsson, Óslandi og Ólafur Þórarinsson, Flugumýrarhvammi, en
auk þeirra á samlagsstjóri, Sólberg Þorsteinsson, og kaupfélagsstjóri,
Helgi Rafn Traustason, sæti í ráðinu. Ný reglugerð var samþykkt
á fundinum fyrir mjólkursamlagið.
AÐALFUNDUR KAUPFFLAGS SKAGFIRÐINGA
var haldinn 10. og 11. maí sl., á Sauðárkróki.
Á sl. ári urðu kaupfélagsstjóraskipti hjá félaginu, en þá lét Sveinn
Guðmundsson af því starfi eftir 26 ára starf, en við tók Helgi Rafn
Traustason, en hann hafði áður í 9 ár starfað sem fulltrúi kaupfélags-
stjóra.
Helgi Rafn Traustason, kaupfélagsstjóri, flutti yfirlitsræðu um
hag og horfur félagsins, og skýrði reikninga þess fyrir sl. ár.
í ræðu Helga kom m. a. fram, að félagsmenn í árslok voru 1.356.
Á framfæri félagsmanna að þeim sjálfum meðtöldum eru 3.119
manns. íbúar í Skagafirði voru 1. desember sl. 4.040.
Heildarvelta kaupfélagsins og fyrirtækja þess var 709.5 millj. kr.
og hafði hækkað um 105 milljónir frá 1971, eða 17.5%.
Sala á vörum og þjónustu nam 344 milljónum króna, og hafði
vaxið um 21.5% frá árinu á undan. Sala á innlendum afurðum með
niðurgreiðslum varð samtals kr. 308.6 milljónir. Heildarvelta Fisk-
iðjunnar varð 56.5 millj. kr.