Glóðafeykir - 01.11.1973, Blaðsíða 62
62
GLÓÐAFEYKIR
greindur og bókhneigður, en heilsulítill í æsku og seínþroska að
vexti. Hann hóf búnað á Skúfsstöðum 1906 og bjó þar unz hann
!ézt, með börnum sínum síðustu árin, eftir að kona hans dó. Þótt
Sigurður væri ekki breytingagjarn og hlypi
sízt eftir nýjungum í búnaðarháttum, þá
bjó hann jafnan við góðan efnahag, eink-
um síðustu árin, enda aðsjáll og eigi eyðslu-
gjarn. Eigi gekk Sigurður menntaveg og
var þó vel til nánxs fallinn. Með sjálfsnámi
að öðru en eins vetrar námsdvöl í bænda-
skólanum á Hólum, reyndist hann vel
starfshæfur í öllu, er stéttarbræðrum hans
mátti í hlut falla af félagslegum skyldum.
Hann átti mörg ár sæti í hreppsnefnd og
skattanefnd, enn þá lengur í sóknarnefnd,
í stjórn Sparisjóðs Hólahrepps. Margar slík-
ar skyldukvaðir féllu honum í hlut. Vann hann öll slík skyldustörf
af mikilli skyldurækni og nákvæmni." (Kolb. Kristinss.).
Arið 1904 (1905?) kvæntist Sigurður Önnu Sigurðardóltur, alsyst-
ur Haialdar Sigurðssonar, verzlunarmanns á Sauðárkróki, sjá þátt
um hann í Glóðafeyki 1972, 13. hefti, bls. 55. „Anna var mikil starfs-
kona, rómuð vegna stillingar og mannkosta." (K. K.). Hún lézt 1943.
Börn þeirra voru 5: Jón, húsmaður á Skúfsstöðum: Guðrún, hús-
freyja á Akureyri; Haraldur, búsettur á Siglufirði: Marleinn, látinn:
Þórey, verkakona á Akureyri.
Sigurður á Skúfsstöðum var fremur lágur maður vexti og eigi
gildvaxinn, svaraði sér vel; dökkhærður, fölur á yfirlit, eygður vel.
„Hann var hagur á srníði, en stundaði lítt." Hann var allra manna
nákvæmastur í starfi, svo að nærri stappaði fullkominni smámuna-
semi. Kom þar fram „vandvirkni bókfærslumannsins og nauðsynleg
skylda að láta allar tölur falla til fulls samræmis, svo að hvergi mun-
aði um eyri. Var hann og hárglöggur og snjall bókfærslumaður.
Vafalaust hefur hann verið bezt til skrifstofustarfa fallinn, þótt ann-
ars staðar lægi að mestu starfssvið hans. Hann skrifaði frábærlega
fagra rithönd og var sjálfum sér kröfuharður um vöndun og smekk-
vísi.“ (K. K.).
Páll Þorgrimsson, fyrrum skólavörður á Sauðárkróki, lézt þ. 5. maí
1965. - Fæddur í Enni á Höfðaströnd 25. marz 1893, sonur Þorgríms
bónda þar og síðar í Tumabrekku, Kristjánssonar Schel bónda í