Bændablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014 Tíðni mæðiveiki í sauðfé hefur verið að aukast í Bretlandi. Mæðiveiki og visna er sjúkdómurinn sem fyrst var skilgreindur hérlendis í kjölfar rannsókna dr. Níelsar Dungal. Ber sjúkdómurinn þess vegna íslenskt nafn og er á ensku nefndur „maedi visna“. Er nafnið lýsandi fyrir sjúkdóminn, sem leiðir til þess að sauðféð visnar upp og drepst. Mæðiveikivírusinn barst hingað til lands á fjórða áratugnum ásamt garnaveiki og kýlapest með karakúlfé sem kom hingað frá Þýskalandi en á uppruna að rekja til Úsbekistan. Var mæðiveikinni útrýmt hér með gríðarlega kostnaðarsömum niðurskurði um og upp úr 1950. Sjúkdómurinn barst einnig til Bretlands með innfluttu fé. Tíðin hefur tvöfaldast á 18 árum Í nóvember á síðasta ári var greint frá því að mæðiveikitilfelli í Bretlandi hafi tvöfaldast á 18 árum eða úr 13% í 24%. Þá var talið að um 109.000 fjár í Bretlandi væri sýkt í stofni sem telur í heild rúmlega 14,7 milljónir dýra. Greinilegt er af nýjustu fréttum að sýkingum fer ört fjölgandi. Sjúkdómurinn er útbreiddur um allt meginland Evrópu enda nær óheftur tilflutningur á fé milli landa. Þar hafa menn skýlt sér að bak við það að fénu fylgi vottorð frá viðkomandi löndum en sagan sýnir að slík vottorð hafa reynst afar haldlítil. Tölur frá Skotlandi, Englandi og Wales sýna mikla fjölgun smittilfella í sauðfé. Hefur sjúkdómurinn þegar valdið umtalsverðu tjóni og í einni hjörðinni var dauðatíðnin komin í 8%. Í annarri hjörð hefur sjúkdómurinn leitt til 20-40% minni frjósemi, sem hefur valdið tjóni sem talið er nema um 30-50 þúsund pundum. Vítin til að varast Eins og fyrr segir var þessum sjúkdómi útrýmt á Íslandi með miklum niðurskurði á fé, einkum á árunum frá 1950 til 1955. Var þá meðal annars öllu fé á Suðurlandi fargað og gengið kyrfilega úr skugga um að engin kind slyppi og var mikið haft fyrir að elta uppi hverja einustu kind af Suðurlandi á afréttum. Sauðfjárrækt var síðan aftur tekin upp á svæðinu með flutningi á líffé af öðrum ósýktum landssvæðum. Þessi staðreynd er m.a. einn af þeim þáttum sem hefur knúið menn til að fara mjög varlega í innflutningi á hráu kjöti og lifandi dýrum. Vottanir hafa reynst haldlitlar Athygli vekur að í umræðu um óheftan innflutning á hráu kjöti hafa menn einmitt beitt röksemdum um að allt sé það vottað með opinberum pappírum sem mörg dæmi eru um að sé lítils virði. Kom það berlega í ljós í hneykslinu sem upp kom varðandi sölu á nautakjötsafurðum í Evrópu á árunum 2012 og 2013, þar sem lítið reyndist vera að marka stimpla og pappíra um innihalds- og upprunamerkingar. Þar reyndist stórfyrirtækið Findus ekki barnanna best þrátt fyrir að það væri margvottað af opinberum aðilum. Í frétt BBC frá 7. febrúar 2013, kom m.a. fram að nautakjöts- lasagna frá Findus innihélt ekkert nautakjöt, aðeins 100% hrossakjöt. Dýralæknar skora á bændur að vera á varðbergi Í breska bændablaðinu Farmers Weekly var birt frétt um málið 25. júní síðastliðinn undir fyrirsögninni „Aukning á mæði/visnu sýkingum í sauðfé“. Þar segir að dýralæknar reyni nú að höfða til bænda um að vera á varðbergi vegna vaxandi ógnar sem stafar af hinum banvæna sjúkdómi, mæðiveiki. Sérfræðingar frá Skoska dreifbýlisháskólanum (Scotland Rural College – SRUC) segja að hátt hlutfall sýkinga af þessum ólæknandi sjúkdómi hafi fundist í nokkrum sauðfjárhjörðum. Þá sé staðfest að aukin fjöldi sýkingartilfella sé í öllum sauðfjárstofninum, líka í Wales og í Suðvestur-Englandi. Í sýnum sem dýralæknaþjónustu SRUC barst úr 12 kindum úr einni hjörðinni reyndust 11 ær vera sýktar. Í 48 sýnum úr annarri hjörð reyndust 41 kind vera sýkt. Má ekki vanmeta sjúkdóminn „Framleiðendur hafa ekki efni á að vera andvaralausir og van meta þennan sjúkdóm,“ segir Ian Pritchard, stjórnandi heilsufarsáætlunar SRUC. Hann segir að sjúkdómurinn sé illskeyttur og erfitt að greina hann. Nokkur einkenni eru þó þekkt sem fylgifiskur sjúkdómsins eins og þyngdartap, lungnabólga, slæmt skrokkástand, léleg frjósemi, júgurbólga, liðabólga og útlimalömun. Dýralæknar segja að allt líffé sem bændur kaupi ætti að setja í sóttkví og taka úr því sýni til rannsókna áður en slíku fé er hleypt inn í hjörð viðkomandi bónda. Yfir 2.600 þátttakendur eru í sérstöku mæðuveikiverkefni og taka þeir reglulega sýni úr fé og fylgja ströngum reglum sem settar hafa verið. Hvetur Ian Pritchard alla þá sem selja líffé að taka þátt í þessu verkefni. /HKr. Fréttir Sýklalyfjaónæmi er stórvandamál Aðalfundur Æðarræktarfélags Íslands verður haldinn 23. ágúst næstkomandi í félagsheimilinu Árnesi, Trékyllisvík á Ströndum. Boðið verður upp á léttan hádegisverð. Í eftirmiðdaginn verður skoðunarferð undir leiðsögn heimamanna. Sameiginlegur kvöldverður hefst kl. 19.30. Auk hefðbundinna aðalfundar- starfa verða haldin erindi bæði til gagns og gamans fyrir félagsmenn. Fundurinn hefst klukkan 11.00 og ráðgert er að hann standi til kl. 15.00. Ráðstefna á Blönduósi: Um sauðfé, ull og ullarvinnslu Dagana 4.-8. september næstkomandi verður haldin á Blönduósi 4. ráðstefnan um norður- evrópskt sauðfé, ull og ullarvinnslu. Aðild að henni eiga auk Íslands: Færeyjar, Grænland, Hjaltlandseyjar, Noregur, Orkneyjar og Suðureyjar. Fyrirlesarar koma víða að en flestir erlendu þátttakendurnir verða frá Norður-Evrópu. Jafnframt verður lista- og handverkssýning með munum úr ull og fleiru. Þá verður farið í kynnisferðir til að skoða sauðfé og skilyrði til sauðfjárræktar hér á landi. Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna til 10. ágúst næstkomandi í www. woolconference2014@gmail.com. Nánari upplýsingar verða á www. bondi.is og í Bændablaðinu 14. ágúst næstkomandi. Tíðni banvænnar mæðiveiki í sauðfé eykst í Bretlandi – Veiran barst með innfluttu fé og hefur tíðni sjúkdómsins tvöfaldast á 18 árum Von er á mjög góðri kartöflu- uppskeru í sumar, en kartöflubændur landsins byrjuðu sumir að taka upp um síðustu mánaðamót. Hafa nýjar kartöflur síðan verið að streyma inn á markaðinn við góðar undirtektir viðskiptavina. Ástæðan fyrir því að kartöflurnar koma svo snemma á markað er að vorið var einstaklega hagstætt kartöflubændum, hlýtt og góður raki. „Þetta lítur mjög vel út. Ég hef aldrei verið svona snemma í því að taka upp, kartöflurnar eru stórar og fínar,“ segir Kristján Gestsson, kartöflubóndi í Forsæti IV í Flóahreppi. Hann hefur ræktað kartöflur í 44 ár. „Við tókum fyrstu kartöflurnar upp 3. júlí og höfum haldið stöðugt áfram enda landsmenn sólgnir í nýjar íslenskar kartöflur á þessum árstíma,“ bætir Kristján við. /MHH Á myndinni er Kristján Gestsson vélinni. Sú sem er nær honum heitir Anna Fía Ólafsdóttir frá Skálatjörn og hin er eiginkona hans, Anna Guð bergsdóttir. Mynd / MHH Breskir dýralæknar skora á breska bændur að vera á varðbergi gagnvart mæðiveikinni. Mynd / Farmers Weekly Bændablaðið bar þessa frétt Farmers Weekly undir dr. Ólaf R. Dýrmundsson, ráðunaut hjá Bændasamtökum Íslands, en hann bjó í Wales frá 1966- 1972 þar sem hann stundaði búvísindanám við Háskólann í Aberystwyth. „Mæði/visna var ekki mikið vandamál á Bretlandseyjum fyrir 50 árum, var til en lítt útbreidd, og voru m.a. stundaðar rannsóknir á þess háttar sjúkdómum í Edinborg. Þar sá ég kind með votamæði vorið 1978 sem þátttakandi í British Council-námskeiði um sauðfé og sauðfjársjúkdóma. Bretland gekk í Evrópusambandið 1973 og þá voru allar gáttir opnaðar fyrir frjálsa verslun, m.a. með búfé af ýmsum kynjum,“ segir Ólafur. „Skemmast er frá því að segja að í kjölfarið hafa mæðiveiki og ýmsir aðrir búfjársjúkdómar átt greiða leið inn á Bretlandseyjar og þessi válegu tíðindi benda til þess að sjúkdómavarnir ESB sem byggjast aðallega á vottorðum og pappírseftirliti virki alls ekki eins og til var ætlast. Karakúlfénu,sem flutt var til Íslands frá Dýra- lækninga stofnuninni í Halle í Þýskalandi árið 1933, fylgdu hin ágætustu vottorð sem ekki reyndust pappírsins virði því að með fénu komu a.m.k. votamæði, þurramæði, visna og garnaveiki. S p o r i n hræða, því að vottorð duga skammt eins og reynslan hefur sýnt og vottorðatrú getur reynst skammvinnur vermir. Við sem erum að reyna að berjast gegn f r j á l s u m innflutningi hrás kjöts, hvað þá heldur búfjár, verðum allt of oft vör við tómlæti um þessi efni en til mikils er að vinna. Ísland hefur mikla sérstöðu, er laust við fjölda smitsjúkdóma í búfé sem þekktir eru í nágrannalöndunum. Útbreiðsla mæði/visnu á Bretlandseyjum á seinni árum er vissulega víti til varnaðar. Íslendingum tókst, eftir kostnaðarsama of erfiða þolraun að útrýma mæði/visnu, þ.e. votamæði 1952 mæði/visnu 1965. Eflaust vildu breskir sauðfjárbændur standa núna í sporum íslenskra stéttarbræðra. Þeir fá þó ekki vörnum við komið vegna taumlausrar markaðshyggju og vottorðatrúar Evrópusambandsins sem fyrir löngu hefur gengið sér til húðar í öllu matvæla- og sjúkdómaeftirliti eins og dæmin sanna.“ /HKr. Afleiðing taumlausrar markaðs- hyggju og vottorðatrúar Ólafur Dýrmundsson. Mjög gott útlit með kartöfluuppskeru sumarsins: Stórar og fallegar kartöflur í Flóanum Trékyllisvík á Ströndum: Aðalfundur Æðar- ræktarfélagsins Samkvæmt upplýsingum Evrópumiðstöðvar sjúkdóma- varna ECDC látast um 25.000 Evrópubúar árlega vegna sýklalyfjaónæmis. Sýklalyfin virka einfaldlega ekki til að meðhöndla sjúkdóma þessa fólks og þessi vandi fer ört vaxandi. Bent hefur verið í þessu sambandi á ofnotkun sýklalyfja sem læknar ávísa og vegna mikillar notkunar á sjúkrahúsum og í heilsugæslu. Það sem hefur þó valdið sprengingu í áunnu ónæmi fólks fyrir sýklalyfjum er þó talið vera ofnotkun þeirra sem vaxtarhvata í landbúnaði víða um heim, aðallega við eldi á nautgripum, kjúklingum og svínum. Um 70 til 80% af öllum sýklalyfjum fara til notkunar í landbúnaði, að því er fram kom í umfjöllun danska blaðsins Politiken fyrir nokkru. Þá er sýklalyfjum gjarnan blandað í vatn eða fóður til að tryggja að dýrin haldi heilsu þar til þeim er slátrað. Þetta gerir það að verkum að mikið að sýklalyfjum verður eftir í kjötinu sem fólk neytir og þar með er fjandinn laus. Þessari aðferðafræði við eldi dýra hefur hins vegar ekki verið beitt á Íslandi. Dýraheilbrigðisstofnun Banda- ríkjanna (The Animal Health Institute of America – AHI) hefur áætlað að án notkunar sýklalyfja og annarra vaxtarhvetjandi efna þyrfti að rækta aukalega 452 milljónir kjúklinga á ári í Bandaríkjunum til að anna eftirspurn. Þá þyrfti að auka framleiðsluna um 23 milljónir nautgripa og 12 milljónir svína af sömu ástæðu. Augljóst er því að gríðarleg notkun sýklalyfja og stera er fyrst og fremst efnahagslegt hagsmunamál kjöt- og lyfjaframleiðenda. Um leið er verið að búa til stórkostlegt heilsuvandamál fyrir almenning sem neytir afurðanna. /HKr.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.