Bændablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 12

Bændablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014 Fréttir Bygggrasræktunarskápar Fóðurlausna vöktu athygli á Landsmóti hestamanna: „Viðtökurnar framar björtustu vonum“ – segir Einars Nilsen, þjónustustjóri fyrirtækisins Einars Nilsen, þjónustustjóri fyrirtækisins, sýndi gestum á Landsmóti hestamanna á Hellu bygggrasræktunarskáp sem vakti mikla athygli. Myndir HKr. Mikill áhugi virðist vera á ræktun bygggrass í sérstökum ræktunarklefum sem fyrirtækið Fóðurlausnir hefur verið að kynna að undanförnu. Greint var frá þessu í síðasta Bændablaði og var fyrirtækið með sýningarklefa á Landsmóti hestamanna á Hellu í síðustu viku. Einars Nilsen, þjónustustjóri Fóðurlausna, segir að kornið sexfaldi þyngd sína á sex dögum við að láta það spíra í vatnsbaði og láta vaxa upp af því bygggras. „Þá tólffaldast næringargildið á sama tíma í samspili raka, hitastigs og ljóss.“ Samkvæmt þessu ætti að vera augljós ávinningur hjá bændum sem þurfa að nota korn m.a. við mjólkurframleiðslu að margfalda ávinninginn af kornnotkuninni. Þá segir Einar að sauðfjárbændur hafi einnig sýnt þessari aðferð mikinn áhuga. Í ræktunarskápunum er vaxtarferlinu stýrt við nákvæmt hita og rakastig auk lýsingar. Skáparnir eru þannig hannaðir að þeir eiga að vera algjörlega óháðir lofthitanum úti. Er ræktunarskápurinn sem kynntur var á hellu hannaður fyrir aðstæður í Alaska og á að virka þó hann standi úti í allt að 40 stiga frosti. Allur frágangur skápanna er miðaður við að þeir geti staðið undir berum himni. Við skápana þarf síðan einungis að tengja rafmagn og garðslöngu fyrir vatnið. Afköst á skáp eins og þarna var sýndur eru að meðaltali 50 kg af ferskfóðri á dag, eða 300 kg á sex daga vaxtartíma. Skáparnir eru síðan til í ýmsum stærðum. Hugmyndin á bak við Fodder Solutions er áströlsk en búið er að setja upp samsetningarfyrirtæki í Bandaríkjunum. Þurrt kornið er einfaldlega sett á sérstaka bakka sem fara í ræktunarskápinn. Eftir sex daga kemur út um 8 kg grasmotta með rótum. Þar sem þetta er ræktað í vatnsbaði eru engin jarðvegsefni með þessu þannig að kýr og sauðfé geta étið grasmotturnar upp til agna. Viðtökur framar björtustu vonum „Bændur sem eru að gefa bygg geta sexfaldað þyngdina á fóðrinu með þessu móti og búið til ferskt fóður sem er margfalt næringarríkara og mun auðmeltara en hreint bygg. Þannig ná menn hámarksafköstum út úr bygginu.“ – En hvernig hafa bændur tekið þessari nýjung? „Viðtökurnar hafa verið framar björtustu vonum. Hér á sýningunni er búið að handsala tveim samningum. Hugmyndin hjá okkur er síðan að fara hring um landið og sýna þennan búnað. Þá stefnum við á að byrja í Skagafirði og fara norður í Fljót, þar sem snjóaði á dögunum. Það hafa komið til okkar kúabændur að skoða þetta og líka fjárbændur. Einn fjárbóndi taldi sig t.d. aðeins þurfa að auka fallþungann hjá sér um eitt kíló fyrir slátrun til að greiða upp slíka einingu á tveim árum,“ sagði Einar. Taldi hann að fyrir kúabónda gæti svona kerfi verið að borga sig upp á 12 til 18 mánuðum og þá ef litið væri einungis til þess að bóndinn gæti helmingað kjarnfóðurkostnað sinn. /HKr. Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Landsmót hestamanna fór fram samkvæmt venju og nú á Gaddstaðaflötum við Hellu. Veðurguðirnir settu mark sitt á mótið og sannarlega spillti rigning, rok og kuldi mótshaldinu framan af, en þó voru tveir síðustu dagarnir veðurfarslega ágætir. Dró að þúsundir manna Landsmótið er stærsta landbúnaðarhátíð sem haldin er hér á landi og ein fjölmennasta útihátíð landsins. Landsmótið var velsótt þótt ljóst sé að veðrið hafi dregið nokkuð úr aðsókn. Hitt skal svo sagt hér að fáir ef nokkur atburður annar, fengi þúsundir manna allsstaðar að úr heiminum til að fylla brekkurnar af fólki dag eftir dag í kulda og trekki eða slagveðri annar en íslenski hesturinn. Hestamenn báru lof á ræktunarstarfið og mér er til efs að nokkru sinni hafi svo margir glæsihestar og snilldarreiðmenn komið til landsmóts eins og nú. Hér áður var allt nokkuð vitað fyrir fram þá báru nokkrir hestar og hestamenn höfuð og herðar yfir aðra en nú koma til leiks tugir hesta og afreksknapa og ekkert er fyrirséð fyrr en að dómarar ljúka störfum, hver sigrar. Eigi að síður komu nú fram einstakir höfðingjar sem báru af í sínum flokki og voru aldrei í hættu, þeir Spuni frá Vesturkoti í A-flokki gæðinga og Loki frá Selfossi í B-flokki, annar með 9,30 og hinn 9,39. Þessir hestar báðir eru svo stórkostlegir á góðum degi að margt í þeirra fari og fasi er svo flott að manni finnst það ekki af þessum heimi. Þar sýndu Þórarinn Ragnarsson og Sigurður Sigurðarson snillingana og hestamenn og knapar voru í fremstu röð. Engu að kvíða Engu er að kvíða um framtíðina hvað hestakostinn varðar, en Arion frá Eystra-Fróðholti, Stormur frá Herríðarhóli og Konsert frá Hofi voru stórkostlegir ásamt mörgum öðrum yfirburðahestum. Arion banki ætti að verðlauna sjálfan sig með nafna sínum og semja um að gera sérstakan sparibauk honum til heiðurs því bankinn ber nafn hestsins en ekki öfugt, Ársæll Jónsson var á undan með nafnið. Heiðursverðlaun hlutu svo tveir merkir stóðhestar, þeir Vilmundur frá Feti og Stáli frá Kjarri. Hestamenn eiga stórleik Ég óska hestamönnum innilega til hamingju með Landsmótið og okkur öllum til hamingju með hestinn og reiðmennina snjöllu, frábært fólk. Eftir þetta landsmót verða aðstandendur landsmótsins að setjast niður og velta fyrir sér framtíðinni. Ég fann að nokkur þreyta er kominn í hestamenn með að mótið skuli standa yfir í átta daga. Bæði er það langur tími og mjög dýrt fyrir þá sem bera uppi þungann á mótinu, hestamennina og hrossabúgarðana. Spurningin er þessi, er hægt að fækka dögum um helming, fara niður í fjóra landsmótsdaga í stað átta? Er hægt að fækka hrossum skráðum inn á landsmót um helming? Er hægt að byggja upp enn meiri spennu og hátíðleika, ekki síst inn á tvo síðustu dagana, að þeir verði nokkurs konar þjóðhátíð eða þjóðarleikar sem flestir vilja upplifa og fjölga fólki verulega sem sækir mótið? Ég sá gott viðtal við hrossa- bóndann á Hofi í Skagafirði, Baltasar Kormák, kvikmyndaleikstjórann snjalla, sem setti fram sterkar skoðanir um breytingar sem ég get tekið undir. Nú er rétti tíminn að ræða breytingar. Það eru aðeins þeir bestu sem eiga erindi inn á landsmót. Hátíð þarf að vera stutt og snörp og hátindurinn hverju sinni með mikið aðdráttarafl, því verða hestamenn að meta aðstæður landsmótanna upp á nýtt. Hinn stóri atburðurinn er svo heimsmeistaramótið um íslenska hestinn sem fram fer annað hvert ár í Evrópu. Nú eru menn vonandi hættir að deila um staðsetningu landsmótanna, þar eru þrír staðir sterkastir; Hella, höfuðborgar- svæðið og Skagafjörðurinn, að vísu með þeirri breytingu að mínu mati að færa mótið heim að Hólum aftur. Hólar hafa allt til að bera sem landsmótsstaður og þar verður fjárfestingin m.a. nýtt af Háskólanum og hestamönnum árið um kring. Fyrir utan hitt að Hjaltadalurinn með sína sögu og fegurð er síst verri en Vindheimamelar. Og uppbyggingin heima á Hólum væri landsmóti mikilvæg og öfugt. Það verður spennandi að fylgjast með umræðunni um landsmótin í hesthúshornunum hringinn í kringum landið. Hestamenn eiga leik og það stórleik. Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra: Glæsihestar og snilldarreiðmenn Byggið, sem sést hér í miðjubakkanum í neðri hillunni, verður að tilbúnu fersku næringarríku fóðri fyrir búfé á sex dögum. Framleiðsluskáparnir eru smíðaðir í Bandaríkjunum og eru mjög vandaðir. Þeir eru gerðir til að geta sinnt hlutverki sínu í allt að 40 stiga frosti.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.