Bændablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 18

Bændablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014 Á hverju ári er flutt til landsins talsvert magn af lifandi stofu- p löntum, ávaxtatr jám, berjarunnum, skrautrunnum og fleiri tegundum plantna í pottum. Moldin í pottunum er iðandi af lífi og í sumum tilfellum geta fylgt með lífverur sem ílengjast hér á landi. Erling Ólafsson, skordýra- fræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, segir að innflutningur á plöntum og þá sérstaklega með rótum í mold bjóði hættunni heim hvað varði alls konar smákvikindi og plöntusjúkdóma sem ekki eiga hér heima. Lífið í moldinni „Innflutningur á plöntum er talsverður hvort sem það er gert til endursölu eða af einstaklingum sem taka með sér plöntur sem þeim þykir fallegar og vilja rækta hér. Í jarðvegi plantna sem fluttar eru inn í pottum er að finna heilt vistkerfi og fjölbreytt samfélag lifandi vera. Mold er lítils virði ef það er ekkert líf í henni og til þessa hún virki þurfa að vera í henni allt í senn örverur, sveppir og smádýr. Ég hef skoðað lítillega í mold sem fylgir ávaxtatrjám sem flutt eru inn og plantað í garða. Þar hefur ýmislegt leynst og stundum iðað af lífi. Sumar þessar lífverur geta hæglega náð fótfestu hér en aðrar gera það ekki. Það er heldur ekki þar með sagt að allar þessar lífverur séu skaðlegar eða af hinu illa en það þarf heldur ekki marga skrattakolla til að valda tjóni,“ segir Erling. Takmarkað heilbrigðisvottorð „Innfluttum plöntum á að fylgja heilbrigðisvottorð sem tryggir að ákveðnar lífverur eða sjúkdómar fylgi ekki með í sendingunni samkvæmt reglugerð. Listinn er ekki langur og um leið tryggir hann ekki að margt annað sem ekki er á honum geti ekki borist hingað. Auðvitað eru til margir aðrir skaðvaldar en þeir sem erum listanum og heilbrigðisvottorð hefur ekkert með þá að gera.“ Erling segir að því miður sé það svo að fullgilt heilbrigðisvottorð sé engin trygging fyrir því að skaðvaldar fylgi ekki sendingum. „Mönnum getur yfirsést og sjálfur hef ég komið að plöntusendingu í gámi þar sem allir pappírar fylgdu og voru rétt stimplaðir þrátt fyrir að það væri búið að éta öll laufblöð af plöntunum þegar þær bárust til landsins.“ Rakin til framleiðenda og birgja „Spánarsnigill er dæmi um kvikindi sem hefur skotið upp kollinum hér og þar um landið frá því að hann greindist hér fyrst fyrir rúmum áratug en það er ekki þar með sagt að hann sé landlægur um allt land. Meðal fundarstaða hans er Hveragerði, á höfuðborgarsvæðinu, í Hnífsdal, Ólafsfirði, Vestmannaeyjar, Akureyri og Höfn í Hornafirði. Í sumum tilfellum er bara um eitt staðfest tilfelli að ræða.“ Erling segir að í sumum tilfellum megi rekja Spánarsnigla sem finnast á nýjum stöðum til plöntusendinga frá framleiðendum eða birgjum þar sem hann er þekktur fyrir hvort sem það eru plöntur sem ræktaðar eru hér á landi að fluttar inn í pottum. Vafasamur innflutningur „Í mínum huga er það nánast tilræði við íslenska náttúru að flytja inn jarðveg og lifandi plöntur í pottum og öllu því sem þar getur fylgt með. Ef ég man rétt var ekki fyrir svo löngu bannað að fylja inn allan jarðveg en eftir að það var leyft hefur innflutningurinn aukist mikið. Að mínu mati er mjög vafasamt að gera þetta og þrátt fyrir að slíkt megi ættu menn að hafa vit á því að gera það ekki og hugsa dæmið til enda,“ segir Erling Ólafsson, skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun. /VH Allt iðandi af lífi – heilu vistkerfin geta fylgt innfluttum plöntum í pottum Talið er að spánarsnigill hafi borist til Íslands skömmu eftir 2000 og hefur hann fundist víða um landið og í öllum lands- hlutum síðan þá. Spánarsniglar eru frekir til fæðu og éta nánast allt sem að kjafti kemur, hvort sem það eru matjurtir, skraut- jurtir, hræ smádýra eða hunda- og kattaskítur. Spánarsniglar eru rauðir, rauðgulir eða rauðbrúnir á litinn og kuðungalausir og geta orðið allt að 15 sentímetra langir. Tegundin er talin upprunnin í Suðvestur-Evrópu, en þaðan fór hún að berast norður á bóginn af mannavöldum skömmu eftir 1960. Loftslag er þurrt á upphaflegum heimaslóðum snigilsins og vegna þess er hann tiltölulega mein- laus þar. Hann dafnar aftur á móti vel í röku loftslagi Norður-Evrópu og er víðast litið á hann sem meindýr og skaðvald þar sem hann nær fótfestu. Spánarsniglar gefa frá sér gult slím og eiga sér fáa náttúrulega óvini. Frjóvga sig sjálfir Spánarsniglar eru tvíkynja og geta frjóvgað sjálfa sig eða aðra spánarsnigla þegar tveir hittast. Eftir að spánarsnigill klekst úr eggi tekur það hann um fimm vikur að verða kynþroska og verpa tugum, jafnvel hundruðum, eggja sem klekjast út á þremur til fimm vikum eftir hitastigi. Lifa veturinn af Spánarsniglar grafa sig í jörð á haustin og liggja í dvala yfir veturinn og lifa af hér á landi sé frost í jörð ekki mikið. /VH Spánarsniglar eiga sér fáa náttúrulega óvini Spánarsnigill. Mynd / Erling Ólafsson Pardussnigill er nánast eini óvinur Spánarsnigilsins hér á landi, en hann nam hér land um síðustu aldamót. Hann Mynd / Atli Gunnarsson

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.