Bændablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 19

Bændablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 19
19Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014 Samkvæmt upplýsingum á vef Hagstofu Íslands voru flutt inn rúm 185 tonn af mómosamold og annarri mold árið 2013 og rúm 70 tonn á fimm fyrstu mánuðum 2014. Sem dæmi um innflutning á lifandi plöntum voru flutt inn rúm 32 tonn af ávaxtatrjám, berjarunnum, rósum og lyngrósum 2013 og rúm 11 tonn fyrstu fimm mánuði 2014. Matvælastofnun annast eftirlit og vottun vegna plöntuheilbrigði við innflutning plantna og plöntuafurða til landsins auk þess sem stofnunin hefur eftirlit með innflutningi á gróðurmold. Einn starfsmaður sinnir eftirliti með innflutningi á lifandi plöntum og mold. Jón Guðmundsson, plöntu- eftirlits maður hjá Matvælastofnun, segir að engar lifandi plöntur eða mold flutta inn til landsins án þess að sendingunni fylgi heilbrigðisvottorð frá framleiðslulandinu. „Reglurnar gera ráð fyrir að vottorðin votti að varan standist þær kröfur sem við gerum og séu gefin út af opinberum og viðurkenndum eftirlitsaðila í framleiðslulandinu.“ Eftirlit og sýnataka Annað slagið eru tekin sýni úr innfluttri mold og þau rannsökuð með tilliti til sýkingahættu og sendingar með lifandi plöntum skoðaðar og athugað hvort einhverjar óæskilegar lífverur fylgi með sendingunni. Að sögn Jóns kemur oft fyrir að sendingar séu stöðvaðar vegna þess að þær standast ekki heilbrigðiskröfur og þá yfirleitt sendar aftur til uppruna landsins eða eytt hér á landi. Hann segir algengara að mold í pokum standist ekki heilbrigðiskröfur en lifandi plöntur. „Heilbrigðisvottorð frá útflutnings landinu má ekki vera eldra en fjórtán daga gamalt þegar varan er send og eftirlit er haft með sumum tegundum í allt að átta vikur fyrir það,“ segir Jón. Reglur um innflutning á mold Á heimasíðu Matvælastofnunar segir að almenna reglan sé sú að óheimilt sé að flytja inn jarðveg, safnhaugamold, óunninn eða kurlaðan trjábörk og húsdýraáburð. Tvenns konar mold er undanskilin. Annars vegar er undanskilin mómosamold til ræktunar sem að meginhluta samanstendur af mómosa. Sú mold þarf að vera tekin úr mógröfum þar sem aldrei hefur verið stundaður landbúnaður, ekki innihalda safnhaugamold, óunnin eða kurlaðan trjábörk né húsdýraáburð. Hins vegar er undanskilin sú mold sem fylgir rótum plantna. Í þeim tilfellum á heilbrigðisvottorðið sem fylgir plöntunum einnig að ná yfir þá mold sem fylgir með. Vakin athygli á því að ef plönturnar koma frá löndum þar sem nýsjálenski flatormurinn er útbreiddur þurfa plönturnar að vera alveg lausar við mold, nema að sérstök yfirlýsing sé á heilbrigðisvottorði um að plönturnar komi frá svæði þar sem flatormurinn finnst ekki. Reglur um innflutning á lifandi plöntum Samkvæmt reglum verður opinbert plöntuheilbrigðisvottorð að fylja eftirfarandi plöntum og plöntuafurðum við innflutning og varan að vera laus við skilgreinda skaðvalda. Plöntur með rót eða plöntuhlutar, græðlingar, blómlaukar, stöngul- og rótarhnýði og kartöflur. Afskornum blómum og greinum. Rótarlausum barrtrjám og barrgreinum frá Evrópu og er innflutningsbann á nokkrum ættkvíslum. Innflutningsbann er er á trjávið með berki. Fræ og vatnaplöntur ætlaðar í fiskabúr eru undanskilin heilbrigðisvottorði. Óheimilt er að flytja inn eftirfarandi plöntutegundir: álm, birki, furu, greni, lerki, víði, ösp og barrtré frá löndum utan Evrópu og vatnaplöntur af ættkvíslinni Elodea. /VH Innflutningur á lifandi plöntum og mold: Ekkert flutt inn án heilbrigðisvottorðs Í KUBOTA M108s sameinast tveir eftirsóknarverðir kostir, einfaldleiki og gæði. Vélin er laus við óþarfa rafmagnsbúnað en hefur þó allt það sem prýða skal alhliða dráttarvél. Það eru fáar dráttarvélar sem standast KUBOTA vélunum snúning þegar kemur að lipurð og beygjuradíus, enda er beygjuradíus KUBOTA M108s vélarinnar einungis 4,7 m. KUBOTA M108s skilar aflinu mjög vel og þeir bændur á Íslandi sem eiga M108s eru allir sammála um það að olíueyðslan sé ótrúlega lág. Allt þetta og meira til er sönnun þess að það er leit að betri dráttarvélakaupum á Íslandi í dag. - Líttu við og kynntu þér þér þessar einstöku dráttarvélar KUBOTA M108s Ein bestu dráttarvélakaupin í dag Áreiðanleiki í fyrirrúmi ár á Íslandi KUBOTA M108s með samlitum ámoksturstækjum kostar aðeins frá kr. 8.590.000,- án vsk 4ra strokka KUBOTA mótor 108 hestöfl Kúplingsfrír vendigír 32 gírar áfram / 32 gírar aftúrábak Kúplingsfrír milligír Loftkæling í húsi Loftpúðafjaðrandi ökumannssæti Brettakantar útfyrir afturhjól Ámoksturstæki með 3ja sviði, dempara, hraðtengi, EURO festingum og skóflu 2,05 m. Vökvaútskjótanlegur dráttarkrókur 3 tvöföld vökvaúr tök (1 með stillanlegu flæði) Vökvavagnbremsa Tveggja hraða aflúr tak 540 / 750 Aflúr tak sett inn / tekið af með rofa Lipur og sparneytin alhliðavél sem hentar vel í íslenskan landbúnað. ÞÓR HF | Reykjavík: Krókhálsi 16 | Akureyri: Lónsbakka | Sími: 568-1500 | www.thor.is

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.