Bændablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 19
19Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014
Samkvæmt upplýsingum á vef
Hagstofu Íslands voru flutt inn
rúm 185 tonn af mómosamold og
annarri mold árið 2013 og rúm
70 tonn á fimm fyrstu mánuðum
2014. Sem dæmi um innflutning
á lifandi plöntum voru flutt inn
rúm 32 tonn af ávaxtatrjám,
berjarunnum, rósum og
lyngrósum 2013 og rúm 11 tonn
fyrstu fimm mánuði 2014.
Matvælastofnun annast eftirlit og
vottun vegna plöntuheilbrigði við
innflutning plantna og plöntuafurða
til landsins auk þess sem stofnunin
hefur eftirlit með innflutningi á
gróðurmold. Einn starfsmaður
sinnir eftirliti með innflutningi á
lifandi plöntum og mold.
Jón Guðmundsson, plöntu-
eftirlits maður hjá Matvælastofnun,
segir að engar lifandi plöntur
eða mold flutta inn til landsins
án þess að sendingunni
fylgi heilbrigðisvottorð frá
framleiðslulandinu. „Reglurnar
gera ráð fyrir að vottorðin votti að
varan standist þær kröfur sem við
gerum og séu gefin út af opinberum
og viðurkenndum eftirlitsaðila í
framleiðslulandinu.“
Eftirlit og sýnataka
Annað slagið eru tekin sýni úr
innfluttri mold og þau rannsökuð
með tilliti til sýkingahættu og
sendingar með lifandi plöntum
skoðaðar og athugað hvort
einhverjar óæskilegar lífverur fylgi
með sendingunni.
Að sögn Jóns kemur oft
fyrir að sendingar séu stöðvaðar
vegna þess að þær standast ekki
heilbrigðiskröfur og þá yfirleitt
sendar aftur til uppruna landsins
eða eytt hér á landi. Hann segir
algengara að mold í pokum standist
ekki heilbrigðiskröfur en lifandi
plöntur.
„Heilbrigðisvottorð frá
útflutnings landinu má ekki vera
eldra en fjórtán daga gamalt þegar
varan er send og eftirlit er haft með
sumum tegundum í allt að átta vikur
fyrir það,“ segir Jón.
Reglur um innflutning á mold
Á heimasíðu Matvælastofnunar
segir að almenna reglan sé sú að
óheimilt sé að flytja inn jarðveg,
safnhaugamold, óunninn eða
kurlaðan trjábörk og húsdýraáburð.
Tvenns konar mold er undanskilin.
Annars vegar er undanskilin
mómosamold til ræktunar sem
að meginhluta samanstendur af
mómosa. Sú mold þarf að vera
tekin úr mógröfum þar sem aldrei
hefur verið stundaður landbúnaður,
ekki innihalda safnhaugamold,
óunnin eða kurlaðan trjábörk né
húsdýraáburð.
Hins vegar er undanskilin sú
mold sem fylgir rótum plantna. Í
þeim tilfellum á heilbrigðisvottorðið
sem fylgir plöntunum einnig að ná
yfir þá mold sem fylgir með. Vakin
athygli á því að ef plönturnar koma
frá löndum þar sem nýsjálenski
flatormurinn er útbreiddur þurfa
plönturnar að vera alveg lausar við
mold, nema að sérstök yfirlýsing
sé á heilbrigðisvottorði um að
plönturnar komi frá svæði þar sem
flatormurinn finnst ekki.
Reglur um innflutning
á lifandi plöntum
Samkvæmt reglum verður
opinbert plöntuheilbrigðisvottorð
að fylja eftirfarandi plöntum og
plöntuafurðum við innflutning og
varan að vera laus við skilgreinda
skaðvalda.
Plöntur með rót eða plöntuhlutar,
græðlingar, blómlaukar, stöngul- og
rótarhnýði og kartöflur. Afskornum
blómum og greinum. Rótarlausum
barrtrjám og barrgreinum frá
Evrópu og er innflutningsbann
á nokkrum ættkvíslum.
Innflutningsbann er er á trjávið
með berki. Fræ og vatnaplöntur
ætlaðar í fiskabúr eru undanskilin
heilbrigðisvottorði.
Óheimilt er að flytja inn
eftirfarandi plöntutegundir: álm,
birki, furu, greni, lerki, víði, ösp
og barrtré frá löndum utan Evrópu
og vatnaplöntur af ættkvíslinni
Elodea.
/VH
Innflutningur á lifandi plöntum og mold:
Ekkert flutt inn án heilbrigðisvottorðs
Í KUBOTA M108s sameinast tveir eftirsóknarverðir kostir, einfaldleiki og gæði. Vélin er laus við óþarfa
rafmagnsbúnað en hefur þó allt það sem prýða skal alhliða dráttarvél. Það eru fáar dráttarvélar sem
standast KUBOTA vélunum snúning þegar kemur að lipurð og beygjuradíus, enda er beygjuradíus
KUBOTA M108s vélarinnar einungis 4,7 m. KUBOTA M108s skilar aflinu mjög vel og þeir bændur á
Íslandi sem eiga M108s eru allir sammála um það að olíueyðslan sé ótrúlega lág. Allt þetta og meira
til er sönnun þess að það er leit að betri dráttarvélakaupum á Íslandi í dag. - Líttu við og kynntu þér þér
þessar einstöku dráttarvélar
KUBOTA M108s
Ein bestu dráttarvélakaupin í dag
Áreiðanleiki í fyrirrúmi
ár á Íslandi
KUBOTA M108s með samlitum ámoksturstækjum
kostar aðeins frá kr. 8.590.000,- án vsk
4ra strokka KUBOTA mótor
108 hestöfl
Kúplingsfrír vendigír
32 gírar áfram / 32 gírar aftúrábak
Kúplingsfrír milligír
Loftkæling í húsi
Loftpúðafjaðrandi ökumannssæti
Brettakantar útfyrir afturhjól
Ámoksturstæki með 3ja sviði, dempara, hraðtengi, EURO festingum og skóflu 2,05 m.
Vökvaútskjótanlegur dráttarkrókur
3 tvöföld vökvaúr tök (1 með stillanlegu flæði)
Vökvavagnbremsa
Tveggja hraða aflúr tak 540 / 750
Aflúr tak sett inn / tekið af með rofa
Lipur og sparneytin alhliðavél sem
hentar vel í íslenskan landbúnað.
ÞÓR HF | Reykjavík: Krókhálsi 16 | Akureyri: Lónsbakka | Sími: 568-1500 | www.thor.is