Bændablaðið - 23.10.2014, Síða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. október 2014
Þann 1. nóvember verður
haldinn uppskeruhátíð á
Hótel Smyrlabjörgum
Borðhald hefst kl 20:00
Veislustjóri verður S. Sindri Sigurgeirsson
Meginstreymi mun leika fyrir dansi
Miðaverð er 6500 kr á mann
Sérstakt tilboð verður á gistingu
eða 6000 kr á mann.
Miðapantanir í síma 478-1074
Hlökkum til að sjá ykkur
Erfðalindasetur Landbúnaðarháskóla Íslands:
Tapaðar erfðaauðlindir verða ekki endurheimtar
Mikilvægi þess að varðveita
erfðaefni villtra og nytjastofna
dýra og plantna verður sífellt
meira enda liður í því að tryggja
fæðuöryggi.
Einsleit ræktun, lofts lags-
breytingar, eyðing búsvæða, mengun
og stríðsátök ógna víða fágætum
stofnum dýra og plantna sem gætu
reynst mikilvægar í framtíðinni.
Íslenskt erfðalindasetur var
formlega sett á stofn á vegum
Landbúnaðarháskóla Íslands
í samstarfi við erfðanefnd
landbúnaðarins og sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðuneyti Íslands
árið 2009. Aðsetur setursins er við
Landbúnaðarháskólann sem hefur
umsjón með rekstri þess og umsýslu.
Erfðanefnd landbúnaðarins hefur
fastan sess í setrinu og nýtur
þjónustu þess.
Setrið er samstarfsvettvangur
Birna Kristín Baldursdóttir,
umsjónarmaður setursins,
segir að setrið sé hugsað sem
samstarfsvettvangur allra þeirra sem
með einum eða öðrum hætti tengjast
varðveislu og sjálfbærri nýtingu
erfðaauðlinda í landbúnaði.
„Helstu verkefni setursins
snúa að umsjón verkefna á vegum
erfðanefndar landbúnaðarins en
setrið er jafnframt hugsað sem
staður fyrir ýmiss konar starfsemi
sem tengist erfðaauðlindum. Til að
mynda sem tengsla- og samskiptanet
setursaðila þar sem miðla má reynslu,
efla starfsemi og samskipti þeirra
fjölmörgu sem láta sig varðveislu
og sjálfbæra nýtingu erfðaauðlinda
varða. Hvort sem það er út frá
hagsmunum landbúnaðar, umhverfis
eða menningar í víðu samhengi.“
Nauðsyn líffræðilegrar fjölbreytni
Að sögn Birnu gefur erfðanefnd
landbúnaðarins á fimm ára fresti
út landsáætlun um erfðaauðlindir í
íslenskri náttúru og landbúnaði þar
sem stefnumörkun nefndarinnar er
sett fram.
„Samningur Sameinuðu þjóðanna
um líffræðilega fjölbreytni, sem Ísland
er aðili að, nær til allra tegunda
lífríkisins þar á meðal þeirra tegunda
sem hafa hagnýtt gildi í landbúnaði.
Með stefnumörkun sinni vill
erfðanefnd landbúnaðarins mæta þeim
skuldbindingum og benda á leiðir til
varðveislu og nýtingu erfðaauðlinda.
Í landsáætluninni er einnig samantekt
á því sem áunnist hefur.“
Hægt er að nálgast landsáætlunina
á heimasíðu nefndarinnar, www.
agrogen.is, en þar er einnig að
finna upplýsingar um íslenskar
erfðaauðlindir og verkefni þeim tengd.
Birna segir að helsta ástæða
þess að mikilvægt sé að varðveita
erfðaauðlindir sé að forsendur
landbúnaðarframleiðslu geti breyst
hratt vegna breytinga sem geta átt
sér stað í umhverfinu frá náttúrunnar
hendi eða af völdum manna.
„Við breyttar aðstæður getur verið
þörf fyrir aðra eiginleika en nú er og á
það við bæði um plöntur og dýr. Auk
þess má nefna að kröfur markaðarins
eftir landbúnaðarvörum eru sífellt
að breytast. Síðast en ekki síst er
menningarsögulegt gildi erfðaauðlinda
mikilvægt, þar sem ræktun plantna og
búfjár er hluti af menningarsögunni.
Það er því vert að hafa í huga að
varðveisla erfðaauðlinda er lykilatriði
í varðveislu líffræðilegrar fjölbreytni
og tapaðar erfðaauðlindir verða ekki
endurheimtar.“
Málþing um íslenska kúastofninn
Á undanförnum árum hefur setrið
skipulagt þematengd málþing um
mikilvægi erfðaauðlinda. Má þar
nefna rabarbara, kartöflur, íslenska
geitastofninn, ferskvatnsfiska og
fljótlega stendur til að halda málþing
um íslenska kúastofninn. „Umræða
um innflutning á nýju kúakyni eða
innskoti erfðaefnis vekur spurningar
um hver verði staða íslenska
kúastofnsins ef hann leggst af sem
framleiðslustofn.“
Erfðaefni varðveitt hér og á
Svalbarða
Birna segir að setrið sinni meðal
annars samskiptum við Norræna
genbankann (NordGen) og hafi
umsjón með verkefnum á hans vegum
sem tengjast Íslandi.
„Þar má nefna verkefni sem
tengist rannsókn á erfðabreytileika og
skyldleika íslenska fjárhundsins við
hundakyn á Norðurlöndum og víðar
um Evrópu.
Fræ af íslenskum nytjajurtum eru
varðveitt í Norræna genbankanum í
frægeymslu á Svalbarða, meðal þeirra
eru fræ af hálíngresi, skriðlíngresi,
snarrót, túnvingli, vallfoxgrasi og
vallarsveifgrasi. Ýmsar matjurtir eru
einnig varðveittar hjá genbankanum
og má þar nefna kartöflur, melgresi
og gulrófur.
Sumar nytjajurtir þarf að
varðveita í klónasöfnum og hefur
verið leitað eftir samstarfi við
grasagarða og byggðasöfn til
varðveislu á til dæmis rabarbara.“
Rabarbari hefur verið ræktaður
hér á landi með farsælum hætti
í að minnsta kosti 130 ár. Talið
er að rabarbarinn hafi borist
hingað til lands með dönskum
embættismönnum í kringum 1880.
Í dag eru hér á landi fjölmörg
rabarbarayrki og hefur Grasagarður
Reykjavíkur tekið að sér varðveislu
á 15 þeirra.
Erfðanefnd landbúnaðarins
er einnig ætlað að skapa faglega
umgjörð um rannsóknir á
erfðaauðlindum landsins og efla
og styrkja aðkomu nemenda að
rannsóknum á erfðaauðlindum
landsins. Nefndin hefur veitt
styrki til ýmissa verkefna en
fjármagn til hennar hefur verið
skorið mikið niður undanfarin ár
og styrkveitingar að hennar hálfu í
samræmi við það.
Verndun íslenska geitastofnsins
Birna er með meistaragráðu
í erfða- og kynbótafræði frá
LbhÍ og fjallaði lokaverkefni
hennar um erfðafjölbreytileika
íslenska geitastofnsins. Hún
segir að undanfarin misseri hafi
verndaraðgerðir vegna íslenska
geitastofnsins verið í brennidepli og
hafi erfðalindasetur komið að þeim
aðgerðum með ýmsum hætti.
„Árið 2010 hafði setrið forgöngu
um að safna frystu hafrasæði sem
mun hafa mikla þýðingu fyrir framtíð
geitastofnsins þar sem flutningur
lífdýra er mjög takmarkaður milli
sauðfjárveikivarnarhólfa. Sæðingar
munu þar hjálpa til við að sporna
við aukinni skyldleikarækt og einnig
er mikilvægt að eiga erfðaefni sem
baktryggingu ef á þarf að halda síðar
meir. Fyrirhugað er að safna fyrstu
hafrasæði aftur nú í haust.“
Birna segir að erfðanefnd
landbúnaðarins hafi gefið út
verndaráætlun fyrir geitastofninn
árið 2012 og er hún höfð til hliðsjónar
við skipulagningu aðgerða til verndar
stofninum.
„Landbúnaðarráðherra skipaði
starfshóp síðastliðið vor til að
koma með tillögur til verndar
og viðhalds stofnsins og hefur
landbúnaðarráðuneytið á grundvelli
tillagna starfshópsins aukið styrki
til geitfjárræktar sem kemur til
framkvæmdar á þessu ári. Auk þess
hafa Bændasamtök Íslands uppi áform
um að gera rafrænan upplýsingagrunn
fyrir geiturnar hliðstæðan þeim sem
notaður er í sauðfjárræktinni og er
það mjög mikilvægt til að hægt sé
að halda utan um upplýsingar um
stofninn, bæði vegna ræktunar og
verndaraðgerða,“ segir Birna Kristín
Baldursdóttir, umsjónarmaður
Erfðalindaseturs Landbúnaðarháskóla
Íslands, að lokum. /VHninn.
-
Norðmenn hafa ákveðið að veita
Vestur-Afríkuríkinu Líberíu 150
milljónir Bandaríkjadala, um
1,8 milljarða íslenskra króna, í
þróunaraðstoð að því tilskildu
að öllu skógarhöggi verði hætt í
landinu fyrir árið 2020.
Skógar í Líberíu eru ekki eins
stórir og í nágrannalöndunum en
þar er samt að finna um 45% af því
sem eftir stendur af regnskógum í
þessum hluta álfunnar. Líffræðileg
fjölbreytni skóga í Líberíu er einnig
mikil, þar er meðal annars að finna
sjaldgæfa tegund simpansa, fíla og
hlébarða og því talið mikilvægt að
vernda skógana.
Forseti landsins veitti einka-
fyrirtækjum heimild til að fella
58% af frumskógum landsins árið
2012 en í kjölfar hrinu mótmæla
var hluti heimildanna dreginn til
baka. Þróunaraðstoð Norðmanna
er meðal annars háð því skilyrði
að 30% af núverandi skóglendi
Líberíu verði friðað fyrir ársbyrjun
árið 2020. /VH
Þróunaraðstoð Norðmanna:
Greiða Líberíumönnum fé
til að hætta skógarhöggi