Bændablaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 40

Bændablaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. október 2014 Fróðleiksbásinn Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur Við sem erum komin hátt á sjöunda áratuginn eða eitthvað ofar en það í aldri og munum eftir sveitastörfum og sveitalífi um miðbik síðustu aldar getum eiginlega með sanni sagt að við höfum lifað tímana tvenna. Í minni sveit var ekki kominn bílfær þjóðvegur, ekkert rafmagn og varla símasamband nema á tveim bæjum. Tún slegin með orfi og ljá og engjaheyskapur nokkur. Hálfþurr slægjan reidd í sátum heim á klifberum, eða flutt á bátum yfir fjörð, til þurrkunar á velli. Þar var hún rifjuð, rökuð upp í föng, lanir eða galta eftir því hvernig viðraði á heyskapinn. Það var stungið út úr fjárhúsum og mykjan beið í fjóshaugnum. Hvort tveggja var svo borið á túnið á réttum tíma. Svo slóðadregið. Slóðinn hengdur aftan í hross. Áður en grænkaði um of var því sem ekki vannst ofan í völlinn rakað af. Afrakinu safnað saman og notað til að reykja kjötið að hausti. Tilbúinn áburður þekktist, en kaup á honum voru býsna takmörkuð. Mig rekur minni til að eitthvað hafi það aukist eftir að búnaðarráðunauturinn Agnar Guðnason fór að setja upp markvissar áburðartilraunir á svo til hverjum bæ í minni sveit um miðjan sjötta áratuginn. Þar hafa sennilega orðið tímamót í búskaparsögunni: „Hefðbundin ræktun“ hóf innreið sína og traktorinn kom strax á eftir. Hvað þýða hugtökin? Myndin hér að ofan kemur upp í hugann í nútímanum þegar minnst er á „lífræna ræktun“, „lífaflsræktun“, „vistræktun“ og eitthvað eru hugtökin og skilgreiningarnar fleiri þegar talað er um ræktunaraðferðir sem heppilegri séu fyrir hollustuhætti og heilbrigði lýðs og láðar en þeir búskaparhættir sem almennt eru gildandi um allt land í víðri veröld núorðið og kallast „hefðbundin ræktun“. En hvað fela þessi hugtök í sér og hvernig eru þau skilgreind? Hinar „óhefðbundnu“ ræktunaraðferðir eru nokkuð samhljóma um að hollara og eðlilegra sé að stunda ræktun og landbúnað í takti við tif árstíðanna, líkt og var hér áður fyrr, og getu landsins til að fæða og klæða það líf sem reiðir sig á það. Og víst er um að kenningarnar ná yfir stærra svið en ræktunina eina. Hvert hugtak er eiginlega lífsstíll sem nær til allra þátta í lífi þeirra sem aðhyllast þau. Og eins og í öllum trúarbrögðum er auðvitað hinn eini og rétti sannleikur fólginn í kenningunni. Lífræn ræktun – organic Lífræn ræktun felur í sér að við ræktunina megi hvergi og aldrei notast við áburð eða efni sem ekki eru náttúruleg að eðli eða uppruna og falla hundrað prósent inn í hringrás lífræns efnis á Móður Jörð. Allt sem til fellur í náttúrunni eða verður til eftir náttúrulegum lögmálum er aðalmálið. Ekki má ganga á náttúruauðlindir eða nota neitt sem orðið er til við kemísk eða tæknifræðileg inngrip í náttúruferlin. Tæki og tól er æskilegast að séu gerð í höndunum, úr efnum sem mannkynið þekkti og kunni að nýta sér í upphafi skipulagðrar ræktunar þegar hún hófst á skilum brons- og járnaldar. Öll vinna og viðvik eru framlag fólks. Hver og einn einstaklingur fær að njóta sín eftir getu og hæfileikum. Í öllu skal hlúð að hinu smáa. Sjúkum skal sinna og um aldraða skal annast af virðingu. Samfélagið er samfellt og háir sem lágir hafa sama rétt. Í framkvæmd er lífræn ræktun samt allmjög móderníseruð. Hagræðing og vottun beinist fyrst og fremst að því að skilyrðunum um takmarkaða efnanotkun – eða rétta sagt um rétta efnanotkun – sé fullnægt. Félagslegu þættirnir eru síður teknir með í dæmið og að mestu er horft framhjá þeim vélakosti og eldsneytisnotkun sem starfseminni fylgir til að hún standi undir sér. Lífaflsræktun – biodynamic Í stórum dráttum er lífaflsræktun ekki frábrugðin lífrænni ræktun. Helsti munurinn er að í lífaflsræktun er mikið hugað að andlegum og kosmískum háttum. Andi hlutanna og hið kosmíska eðli er með í spilunum. Afstaða himintungla, hnattstaða, jarðeðlið með straumum og orkusviði. Þakkir til æðri máttarvalda, hver sem þau eru og hvar sem þau eru, jákvætt lífsviðhorf og samhverfing við allt umhverfið er snar þáttur í þeirri lífspeki sem lífaflsræktun byggist á. Allt sem er í einu samfelldu flæði efnis og orku. Eitt er öðru háð og ekkert undanskilið. Vistrækt – permaculture Hugtakið vistrækt er eiginlega vond þýðing á hugtakinu „permaculture“. Enska hugtakið er samsett nýyrði sem á að halda utan um orðin „permanent“ sem þýðir stöðugur og „agriculture“ sem þýðir akuryrkja. Hugsanlega væri betra að segja „síyrkja“ á íslensku. En vegna staðhátta hérlendis gengur það ekki vel upp. Í vistrækt er í stórum dráttum unnið eftir lífrænum aðferðum og viðmiðunum. En fyrst og fremst með því að nýta náttúrulegar aðstæður og vinna eftir þeim og með þær til að skapa kjörlendi fyrir sjálfbært mannlíf og mannlegar þarfir í sjálfbærri ræktun og afkomu. Uppruna „Vistræktarhreyfingarinnar“ má rekja til tveggja Ástrala, Bills Mollison og Davids Molmgren, sem settu kenninguna fram um 1978. Áður höfðu að sjálfsögðu komið fram margar svipaðar kenningar, sem höfðu einhvern veginn ekki náð fram. Og hátt uppi í austurrísku Ölpunum var bóndinn og „sérvitringurinn“ Sepp Holzer kominn vel af stað með sitt sérstæða býli þar sem sjá mátti ótrúlegan árangur í ræktun á alls kyns viðkvæmum gróðri sem ættaður er frá mildari slóðum, jafnvel frá ylsælustu héruðum við strönd Miðjarðarhafsins. Holzer hafnar því að kenna búskap sinn við „permakúltúr“ og segist bara beita eigin hyggjuviti og oft nokkuð stórtækum aðgerðum við að laga jörð sína að vistfræðilegum endurbótum. Holzer býr á svæði sem ef til vill er sambærilegt við Dalvík veðurfarslega en þar er mun lengra sumar með mörgum hitafarstoppum. Sepp Holzer verðskuldar ýtarlegri umfjöllun hér síðar. En þeir Mollison og Holmgren settu fram mjög skipulega skipulögð skipulög í mörgum liðum og mörgum greinum. Þau má lesa á netinu með því að slá inn leitarorðið í síðari lið millifyrirsagnarinnar hér. Og þeir kunnu að markaðssetja markmið sín og kennisetninguna. Sjálft orðið „permaculture“ er markaðsverndað og þrátt fyrir að leiðir þeirra hafi skilið vegna nokkurs ágreinings þeirra í milli fyrir nokkrum árum hala þeir inn, hvor um sig, drjúgan skilding með fyrirlestrahaldi víða um lönd. Og enginn má leiðbeina í fræðunum nema að undangenginni leiðbeinendaskólun. Út af fyrir sig er hugmyndin samt mjög áhugaverð. Lífrænt – ólífrænt og allt það! Andi hlutanna og hið kosmíska eðli er með í spilunum. Námskeið í gæðastýringu í sauðfjárrækt Eitt af skilyrðum fyrir þátttöku í gæðastýrðri sauðfjárframleiðslu er að hafa sótt undirbúningsnámskeið. Fyrirhugað er að halda námskeið dagana 10. –14. nóvember nk. Fjöldi og staðsetning námskeiða verður ákveðið með tilliti til þátttöku. Skráning Þeir sem óska eftir að sækja fyrirhuguð námskeið eru vinsamlegast beðnir að skrá þátttöku til Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins fyrir 5. nóvember næstkomandi. Unnt er að skrá þátttöku í síma 516-5000 eða á tölvupósti bella@rml.is. Gefa þarf upp nafn, síma, heimili og póstnúmer þátttakenda. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Bændasamtök Íslands, Bændahöllinni við Hagatorg, 107 Reykjavík Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Hafa áhrif um land allt! Alvöru vambir fást nú á sláturmarkaði Krónunnar og Nóatúns Í síðasta Bændablaði var greint frá því að engar vambir fengjust lengur frá afurðastöðvum í sláturtíðinni. Nú hafa mál hins vegar þróast með þeim hætti að SAH á Blönduósi hefur tekið að sér að fullverka nokkurt magn vamba fyrir tvær verslanir Kaupáss – og komu þær í verslanir 15. október síðastliðinn. Í blaðinu var sagt frá því að Sláturfélag Suðurlands (SS) hafi verið síðasta afurðastöðin til að bjóða viðskiptavinum sínum upp á alvöru vambir í sláturtíðinni. SS hefði hins vegar hætt því af hagkvæmnisástæðum fyrir þetta haust. Í umfjöllun blaðsins staðfesti Ólafur Júlíusson, innkaupastjóri fyrir verslanir Kaupáss, þann orðróm, að talsverð eftirspurn væri eftir alvöru vömbum. Húsmóðir á Selfossi kom málinu af stað Ólafur segir að hreyfing hafi komist á málið eftir ábendingu frá húsmóður á Selfossi, sem taldi að samstarf ætti að geta náðst á milli SAH og Kaupáss um að bjóða almenningi upp á þessa vöru. „Við settum okkur í kjölfarið í samband við Kjarnafæði á Blönduósi og afleiðing þessa samstarfs er að við getum í dag boðið upp á vambir á sláturmörkuðum okkar, annars vegar í Krónunni á Selfossi og hins vegar Nóatúni í Austurveri. Við settum auglýsingu í fjölmiðla um síðustu helgi þar sem við óskuðum eftir pöntunum og við fengum á mjög stuttum tíma um þúsund pantanir.“ Hálfhreinsaðar vambir samkvæmt samykki MAST Gunnar Tryggvi Halldórsson, framkvæmdastjóri hjá SAH á Blönduósi, segir að þeir hafi farið af stað með hálfhreinsaðar vambir eftir að Matvælastofnun gaf grænt ljós á þá vöru. „Í framhaldinu tókum við ákvörðun um að fullhreinsa einn dag og selja Kaupási í eina stóra pöntun. Þetta hefur svo hlaðið utan á sig og við erum að hreinsa í fleiri pantanir fyrir Kaupás. Þegar þetta flæði er komið af stað getum við einnig boðið fullhreinsaðar vambir á heimamarkaði einhverja daga fram að mánaðamótum.“ /smh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.