Bændablaðið - 23.10.2014, Qupperneq 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 23. október 2014
Jólasveinar ganga um gólf
PRJÓNAHORNIÐ garn@garn.is
Nú styttist óðum til jóla og tíminn
fljótur að líða. Með það í huga
komum við með uppskriftir að
jólasveinum utan um vínflösku eða
þá saftflösku, maltflösku og fyrir
hnífapörin á jólaborðið.
Þetta ætti að vera fljótprjónað, tók
tvö kvöld að prjóna utan um stærri
flöskuna og eitt kvöld þá minni.
Efni: Tyra garn nr AN 3129 jólarautt, 1 dokka dugar
í tvo jólasveina.
Simli kristal hvítt, 1 dokka.
Tölur fyrir augu, mætti nota augntölur sem fást
í föndurbúðum.
Prjónar: Sokkaprjónar nr 3,5 og heklunál nr 3.
Prjónfesta: 20L og 28 umferðir gera 10x10 sm
Aðferð:
Byrjað að neðan og prjónað í hring með
sokkaprjónum með Tyra garninu, síðan með 2
þráðum af Kristal simli. Tekið úr fyrir flöskuhálsinum.
Skeggið og pífan að neðan og efst heklað með Simli
kristal einföldu.
Stærri jólasveinninn.
Bolur:
Fitja upp 40 lykkjur með Tyra á 4 sokkaprjóna og
prjóna í hring upp að flöskuhálsinum ca 16 sm.
Þá er prjónað með hvítu Simli kristal 2 þráðum 15
umferðir slétt í hring.
Aftur með rauðu Tyra 4–5 umferðir eftir stærð
flöskunnar.
Úrtaka fyrir flöskuhálsinum 2 sl L saman 2 L allan
hringinn.
Prjónið nú 4 umferðir slétt, prjóna því næst með
úrtöku 2 sl L saman og 1 L sl á milli allan hringinn.
Prjónið 2 umferðir slétt og takið því næst 2 L saman
og 2 L sléttar á milli í næstu umferð.
Prjónið nú ca 16 umferðir sléttar í hring eða sem
nemur flöskuhálsinum á hæð.
Fellið af og gangið frá öllum endum.
Kantur að neðan er heklaður með Simli kristal hvítu
þannig:
3 loftlykkjur 1 fastalykkja í hverja prjónaða lykkju
allan hringinn, tekið þvert á lykkjuna. Klippa og
ganga frá endanum.
Sama við stútendann, 3 loftlykkjur og 1 fastalykkja í
hverja prjónaða lykkju með Kristal simli hvítu.
Skegg:
Skeggið er staðsett við neðri skil rauða og hvíta
litarins og í boga upp til hliðanna.
Merkið fyrir miðju skegginu við samskeytin.
Teljið 7 L til vinstri og 5 lykkjur upp á andlitið.
Heklið þar 1 fastalykkju síðan 12 loftlykkjur festið
þetta með 1 fastalykkju í næstu prjónalykkju á ská
að miðju einni lykkju neðar í hvert skipti. Endurtekið
2 sinnum þá á að vera komið niður að brún á
samskeytum á hvítu og rauðu, nú eru heklaðar 18
loftlykkjur og festar til hliðar við síðustu 12 l næst
18 loftlykkjur á sama hátt og þá 20 loftlykkjur tvisvar
sinnum og að lokum 24 loftlykkjur sem er miðjan
á skegginu. Síðan áfram á sama hátt til hinnar
hliðarinnar.
Festa tölur sem augu.
Minni jólasveinninn.
Bolur:
Fitja upp 32 L með rauðu Tyra á fjóra prjóna.
Prjónið í hring 13 sm, síðan 11 umferðir með hvítu
Kristal simli þá 6 umferðir með rauða Tyra garninu.
Takið nú úr 2 L saman 3 sléttar allan hringinn.
Prjónið 2 umferðir slétt, síðan er úrtaka 2 L saman
3 L slétt .
2 umferðir slétt og að lokum 2 L saman og 3 l slétt.
Prjónið nú 11 umferðir slétt með rauðu Tyra og síðan
6 umferðir slétt með hvítu Kristal simli.
Fellið af og gangið frá öllum endum.
Kantur að neðan heklaður með hvítu Kristal simli
þannig : 1 fastalykkja fest þversum á prjónalykkju,
3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í næstu prjónalykkju,
heklað þannig allan hringinn , klippt frá og gengið
frá endanum.
Sama er gert á samskeytum hvíta og rauða litarins
að ofan og við efri brún stútsins 2 rendur.
Skegg:
Skeggið er gert á sama hátt og á stærri jólasveininum
nema merkja fyrir miðju telja 7 L til vinstri og 5
umferðir upp, byrjað er á 10 loftlykkjum þá 12 , síðan
þrisvar sinnum 15 og síðan 17 í miðjunni og þá
þrisvar sinnum 15 þá 12 og loks 10 l í hverjum boga.
Festa tölur fyrir augu og ganga frá öllum endum.
Jólasveinn fyrir hnífapör.
Fitja upp með rauðu Tyra 20 L og nú er gott að vera
með stutta prjóna.
Prjóna í hring 12 sm, skipta þá og prjóna 8 umferðir
hvítt Kristal simli.
Fella nú af helminginn af hvítu lykkjunum þannig
að eftir verði 10 L á prjónunum og nú er prjónað
með rauðu slétt fram og til baka. Passið bara að
slétta hliðin snúi fram.
Prjónið nú 10 umferðir fram og til baka slétt, þá er
tekin úr 1 L í byrjun hverrar umferðar þar til 3 L eru
eftir á prjóninum, þá eru þær felldar af.
Ganga frá endum.
Sauma saman að neðan og hekla síðan hvíta pífu
allan hringinn á sama hátt og á jólasveinunum.
1 fastalykkja í prjónalykkju festa hana þversum 3
loftlykkjur festa hana með 1 loftlykkju í næstu
prjónalykkju.
Sama í toppinn á jólasveininum í hring.
Skegg:
Skeggið gert á sama hátt og á jólasveinunum nema
10-12-15-17-15-12-10 L eru í skeggbogunum.
Lengsti boginn i miðjunni og byrjað í 4 lykkju frá
miðju og 4 lykkju frá samskeytum á hvítu og rauðu.
Gengið frá endum.
Hnífapörum stungið ofan í .
Gaman að geta dekkað borð á jólum með einu setti
við hvern disk.
Góða skemmtun.
Inga Þyri Kjartansdóttir
Lausn á síðustu krossgátu
LAND Í
ASÍU
Á KIND
FLATFÓTUR
BÓK-
STAFUR GLJÚFUR
AUGN-
VEIKI
PÚKA
AFSPURN Á
SÞIL K I L V E G G U R
P
HEIM-
SKAUT
ERINDI Ó L L
KVIKMYND
SAMTÖK F I L M A
EV R S A F L Á T GAPA
E I T A MÁLMUR KÓFFUGL K A F
VEFNAÐAR-
VARA Í RÖÐ
RÉTTUR
BEIN R A G Ú SJOKKRÁS Á F A L L
UÞVERSLÁ
RESPA
STÖÐVUN
RÍKI
H E R R A HVERSU
SPENNA
MÆLI-
EININGU N Æ L A KÆRA FISK ATITILL
U F S I
FLÖTUR
FRAM-
VEGIS H L I Ð
TAFL
ÁTT S K Á KFISKUR
N N
FLÓNSKUR
UNDIR-
ÖLDU F Á V Í S
SÁLDRA
EYJA S A L L AÓNEFNDURSÝRA
D I K
SKREF
HELGI-
MYNDIR F E T
EGGJA
GÆFULEYSI M A N A LÍFFÆRI AUMAE
A ÞRÁÐURTRAÐKAÐI V Í R STILLA R Ó A BLÓÐSUGAÓLÆTI I G L A
S T I K A KVK NAFNSIÐA A G L A EYRIRANGAN A U RSTAUR
Ú R K O M A SKYLDIÍ RÖÐ Æ T T I
ÖFUG RÖÐ
UPP-
HRÓPUN N MRIGNING
R
A
Ó
Ð
U
SLÍMDÝR
N
A
HÆFILEIKI
M
G
A
Á
B
F
A
A
KVEINA
BRENNA
E
L
M
O
J
G
A
ASEFUN
TIL
2
x x
12 x x 12
12 x x 12
12 x x x x x x x 12
18 20 20 24 20 20 18
Stærri jólasveinn skegg.
x x
10 x x 10
12 x x 12
15 x x x x x 15
15 15 17 15 15
Minni jólasveinn skegg
x x
10 x x 10
12 x x x 12
15 17 15
Hnífaparajólasveinn
Skýringarmynd fyrir skegg
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Þung
3 1 9 4
1 4 8 9 3
2 3 5
8 5
7 2 6
9 6 2 7
3 8 6 4
2 8
Þyngst
1 7 6
9 3
9 7 5 1 2
4
3 5
1 2 7 3 5
6 3
6 1 2
7 8
8 7 1
2 5 9
5 6 8
1 6
1 4 2
2 3
3 5 6
2 4 1
6 9 7
1 2
8 3
5 4 2 6 8
4 7 8
9 8 6
3 6 7 5 9
7 5
1 2
Létt Miðlungs