Skírnir - 01.01.1981, Blaðsíða 211
SKÍRNIR
RITDÓMAR
209
DIE SAGA VON EGILL
Aus dem Altislandischen herausgegeben und iibersetzt von
Kurt Schier
Eugen Diederichs Verlag, Diisseldorf - Köln 1978
Þessi nýja Egluútgáfa, sem dr. Kurt Schier prófessor í Miinchen hefur látið
þýskum lesendum í té, markar upphaf nýrrar fornsagnaraðar sem nefnist
Saga. Verður ekki minna sagt en hér sé „allvel róið í fyrirrúminu", þvi vand-
fundin mun jafn vönduð og rækileg lestrarútgáfa þessarar sögu og sú er
hér birtist. Á undan meginmálinu er stuttur formáli en neðan þess á flest-
um síðum málskýringar. Meira máli skiptir þó að á eftir sögunni og kvæð-
unum eru nánari athugasemdir og skýringar fyrir hvern kafla hennar að
ógleymdum samanburðartexta úr veraldarsögu Orosíusar. Þá tekur við lang-
ur eftirmáli, um 40 blaðsíðna þéttprentuð ritgerð um söguna. Loks eru skrár
um rit, ættir, nöfn og atriði auk korta og mynda. Þegar þess er gætt að mest-
allt það efni, sem útgefandi leggur bókinni til, er prentað með smáu letri
mun láta nærri að það sé helmingur hennar en alls er hún 416 síður.
Árið 1911 kom Egils saga út í þýskri þýðingu eftir Felix Niedner (Thule
III). Þótt sú þýðing sé vönduð er hér um nýja að ræða og hefur Kurt Schier
látið ýmis önnur sjónarmið stjórna verkinu. T.a.m. þýddi Niedner vísur og
kvæði sögunnar án þess að víkja frá bragforminu en við það hlutu ýmis
skáldskapareinkenni að fara forgörðum. Aftur á móti snýr K. Schier kveð-
skapnum i óbundið mál en kappkostar í staðinn að varðveita myndmál hans.
Sögutextann þýddi Niedner sömuleiðis á góða þýsku en gætti hins síður að
sérkenni sagnastílsins héldust þar sem þess var kostur. í nýju þýðingunni er
engin tilraun gerð til að slétta yfir frumstæð atriði sem nú mundu kölluð
stílhnökrar, en koma oft og tíðum fyrir í sögunum, jafnvel hinum snjöllustu.
Af slíku tagi mætti nefna óeðlileg skipti nútíðar og þátíðar, sömuleiðis
persónufornafnanna þú og þér, ennfremur einhæft orðaval sem veldur tíðum
endurtekningum sumra orða, t.a.m. sagnarinnar að vera, og síðast en ekki
síst langar lestir aðalsetninga sem hanga saman á og. Um þetta síðastnefnda
er eftirfarandi dæmi úr 40. kap.:
Þá reiddist Egill og hóf upp knatttréð og laust Grím, en Grímur tók
hann hönduin og keyrði hann niður fall mikið og lék hann heldur
illa og kveðst...
Niedner (Thule 3, 108):
Da ergrimmte Egil. Er hob das
Ballscheit auf und schlug nach
Grim. Dieser aber packte ihn mit
den Handen, warf ihn mit einem
gewaltigen Ruck zu Boden,
spielte ihm iibel mit und sprach,
Schier (bls. 105):
Da wurde Egil zornig und hob
das Spielholtz in die Höhe und
schlug auf Grim, aber Grim
fasste ihm mit den Handen und
warf ihn mit Gewalt nieder und
ging ziemlich iibel mit ihm um
und sagte,...
14